Skessuhorn - 23.08.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 23. áGúST 20176
Sauðfjár-
bændur boða
til auka
aðalfundar
LANDIÐ: Unnsteinn
Snorri Snorrason, fram-
kvæmdastjóri Landssam-
taka sauðfjárbænda, sendi
í síðustu viku út fundar-
boð um auka aðalfund í
samtökunum sem hald-
inn verður föstudaginn
25. ágúst á Hótel Sögu. Í
fundarboðinu kemur fram
að farið verði yfir tillögur
að aðgerðum vegna erf-
iðrar stöðu í sauðfjár-
rækt. Eins og rækilega
hefur komið fram í frétt-
um geta bændur vænst
allt að 35% verðlækkun-
ar fyrir afurðir í haust og
bætist sú lækkun við 10%
verðlækkun síðasta haust.
Fundur sauðfjárbænda
verður settur kl. 13:00 og
lýkur með sameiginleg-
um kvöldverði klukkan
18:30. Ekki kemur fram
hvað verður á matseðlin-
um, en vissulega má leiða
að því líkum.
-mm
Nýtt potta-
svæði vígt á
laugardag
AKRANES: Form-
leg vígsla á nýju potta-
svæði sundlaugarinnar
við Jaðarsbakka á Akra-
nesi verður laugardaginn
26. ágúst næstkomandi kl.
9:15. Sævar Freyr Þráins-
son bæjarstjóri og Þórð-
ur Guðjónsson, formaður
skóla- og frístundaráðs,
munu klippa á borða og
bjóða fyrstu gestina vel-
komna í nýju pottana. Í
tilefni vígslunnar verður
hægt að skella sér í sund
á Jaðarsbökkum án end-
urgjalds og boðið verður
upp á frostpinna að loknu
sundi, á meðan birgðir
endast.
-kgk
Atvinnuleysi
er 2,6%
á lands-
byggðinni
LANDIÐ: á öðrum árs-
fjórðungi 2017 var at-
vinnuþátttaka 84,4% hér
á landi. Hlutfall starfandi
mældist 81,5% og at-
vinnuleysi var 3,4%. Frá
öðrum ársfjórðungi 2016
fjölgaði starfandi fólki um
3.500 en hlutfall af mann-
fjölda lækkaði um 0,4 pró-
sentustig. Atvinnulaus-
um fækkaði á sama tíma
um 200 manns og hlutfall
atvinnulausra af vinnu-
afli lækkaði um 0,2 pró-
sentustig. Atvinnulaus-
ar konur voru 3.300 og
var atvinnuleysi á meðal
kvenna 3,5%. Atvinnu-
lausir karlar voru 3.700
eða 3,4%. Atvinnuleysi
var 3,9% á höfuðborgar-
svæðinu og 2,6% á lands-
byggðinni.
-mm
Nýir kvensjúk-
dómalæknar til
starfa
AKRANES: á kvennadeild
HVE á Akranesi eru tvö stöðu-
gildi sérfræðinga í kvensjúk-
dómum og fæðingarhjálp. Ný-
verið voru tveir kvensjúkdóma-
læknar ráðnir í hlutastöður og
von er á þriðja sérfræðingnum
og þegar sú ráðning gengur í
gegn verður hægt að fylla upp í
stöðugildin tvö. „Þetta er mikil
breyting frá því var fyrir nokkr-
um mánuðum og raunar í mörg
ár. átta ár eru liðin frá því tveir
kvensjúkdómalæknir voru sam-
tímis hér í starfi. Að sjálfsögðu
er mikil ánægja með hvern-
ig úr hefur ræst og ekki spillir
að annar nýju læknanna hefur
flust til Akraness með fjölskyldu
sína. Nægileg mönnun er m.a.
skilyrði fyrir að hægt sé að halda
úti fullri bakvaktaþjónustu utan
dagtíma,“ sagði Þórir Berg-
mundsson, framkvæmdastjóri
lækninga og rekstrar HVE, í
samtali við Skessuhorn. -bþb
Dregur úr veltu-
aukningu korta
LANDIÐ: Í júlí síðastliðn-
um nam erlend greiðslukorta-
velta hérlendis 33,2 milljörð-
um króna og hefur aldrei ver-
ið meiri. Í skýrslu Rannsókna-
seturs verslunarinnar segir að
verulega hafi þó dregið úr þeim
mikla vexti sem hefur verið í
kortaveltu erlendra ferðamanna
undanfarin ár en vöxtur frá því í
júlí í fyrra var nú 4,7%. Undan-
farna þrjá mánuði hefur korta-
veltan vaxið að meðaltali um
5,5% borið saman við sama
tímabil í fyrra. Til samanburðar
var ársvöxtur tólf mánaða tíma-
bilsins þar á undan 39%. -mm
Við Borgarbraut 57 í Borgarnesi
er nú búið að reisa fyrstu hæð nýs
fjölbýlishúss við hlið hótelsins sem
langt komið er að reisa á lóðinni
númer 59. Hótelbyggingin verð-
ur fjórar hæðir en á fimmtu hæð-
inni verður inndregin bygging með
stórum hótelherbergjum eða svít-
um. Hótelið verður alls með 84
herbergjum. Íbúðablokkin á lóð 57
verður lítið eitt hærri, eða alls sjö
hæðir. Líkt og í hótelbyggingunni
er gert ráð fyrir inndregnum mann-
virkjum á sjöundu hæðinni þar sem
verða þrjár íbúðir með miklu útsýni
til allra átta. Alls verða 28 íbúðir í
fjölbýlishúsinu. Þegar búið verð-
ur að reisa útveggi beggja húsanna
verður einnar hæðar tengibygging
reist milli þeirra. Það er fyrirtækið
Hús og lóðir ehf. sem byggir á báð-
um þessum lóðum eftir teikningum
frá Sigursteini Sigurðssyni arkitekt
hjá Gjafa.
Fyrirtækið ánaborg hefur um-
sjón með framkvæmdum við bæði
húsin fyrir Hús og lóðir. Að sögn
Jóhannesar Freys Stefánssonar hjá
ánaborg hafa framkvæmdir geng-
ið vel eftir að þær fóru af stað eft-
ir langt hlé sem varð í vetur. Ger-
ir hann ráð fyrir að búið verði að
reisa einingar í allar hæðir fjölbýlis-
hússins í vetur. Þetta er nánast eina
íbúðarhúsnæðið sem er í byggingu í
Borgarnesi en verulega hefur skort
smærri eignir á markaðinn að und-
anförnu. Því ríkir bjartsýni um að
vel gangi að selja þessar eignir.
mm
Byrjað að reisa fjölbýlishús við Borgarbraut
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og
auðlindaráðherra, kynnti í ríkis-
stjórn á föstudaginn áform um að
koma á fót Þjóðgarðastofnun sem
tæki við verkefnum Vatnajökuls-
þjóðgarðs, Þjóðgarðsins á Þing-
völlum, Þjóðgarðsins Snæfellsjök-
uls auk annarra tiltekinna verk-
efna á sviði náttúruverndar á veg-
um Umhverfisstofnunar. Mark-
miðið er að efla og styrkja sameig-
inlega starfsemi og stoðþjónustu
þjóðgarða og friðlýstra svæða en
um leið viðhalda sjálfstæði í rekstri
þjóðgarðanna.
Nú fara þrjár opinberar stofn-
anir með umsjón með rekstri þjóð-
garða, friðlýstra svæða og ann-
arra náttúruverndarsvæða í land-
inu; Þjóðgarðurinn á Þingvöllum,
Vatnajökulsþjóðgarður og Um-
hverfisstofnun, en undir stofn-
unina heyrir Þjóðgarðurinn Snæ-
fellsjökull og friðlýst svæði utan
þjóðgarða. „Veigamikil rök eru til
þess að samþætta starfsemi þessara
stofnana sem fást við sambærileg
verkefni. Þar má nefna að málefni
náttúruverndar verða sífellt mikil-
vægari, aukinn rekstur og starfsemi
er á þessum svæðum og aukin krafa
um þjónustu, ekki síst vegna mik-
ils fjölda ferðamanna. Þannig hefur
á örfáum árum orðið mikil breyt-
ing á þessum svæðum, gestafjöldi
hefur margfaldast og mikil þörf er
á styrkingu starfseminnar,“ segir
Björt Ólafsdóttir.
Í tillögum hennar er gert ráð fyrir
að sameina verkefni sem m.a. tengj-
ast hvers konar verndaraðgerðum,
gerð stjórnunar- og verndaráætlana,
stýringu ferðamanna, landvörslu,
meðferð og útgáfu sérleyfa, veit-
ingu þjónustu og innheimtu þjón-
ustugjalda, uppbyggingu og rekstri
innviða, framkvæmdum á verndar-
svæðum og viðhaldi, framkvæmd
friðlýsinga, leyfisveitingum og ann-
arri stjórnsýslu. „áhersla er lögð á
að með sameiningu verkefna er fyrst
og fremst verið að styrkja faglegt
starf og stoðþjónustu og því verður
störfum sem lúta að þessum verk-
efnum ekki fækkað í tengslum við
stofnun Þjóðgarðastofnunar. „ á
næstu mánuðum verður unnið að
gerð lagafrumvarps um nýja Þjóð-
garðastofnun sem umhverfis- og
auðlindaráðherra hyggst leggja fram
á vorþingi 2018. Frumvarpið verð-
ur unnið í nánu samstarfi við þær
stofnanir sem um ræðir. mm
Ráðherra kynnti áform um
nýja Þjóðgarðastofnun