Skessuhorn


Skessuhorn - 25.10.2017, Síða 27

Skessuhorn - 25.10.2017, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2017 27 Hverjum fannst það góð hugmynd að bola henni Öllu minni í Kaffitári úr Leifs- stöð Eiríkssonar og troða inn hópi af vape-smókandi fuccbojjum í staðinn sem bjóða bara upp á djús og kramdar kalkúnasamlokur. Held í alvörunni að hæfnis- kröfur Joe & the Juice sé að umsækjandi þurfi að sporta veglegum snúð á höfð- inu, sé í rifnum Iron Mai- den bol úr H&M og þröng- um buxum þar sem klof- ið byrjar við hnén. Booztið þeirra er meira að segja yf- irlætislegt og ber nöfn sem enginn skilur. Ég yrði ekki hissa á því ef ég myndi sjá Aron Can í afgreiða eitt- hvað ógeðslega hipster latte til einhvers Primaloft-túr- istans og sjái í leiðinni um Nova snappið þann dag- inn sem ég væri á ferðinni í gegnum Leifsstöð. Þegar ég skrifa þetta verður mér hugsað til strákanna minna og í hvaða umhverfi þeir munu alast upp í. Við skulum renna aðeins yfir þá hluti sem hafa verið að taka sér bólfestu í íslensku samfélagi síðastliðin ár: Takkaskór sem líta út eins og sokkar (helst bleikir), Vape, síðir bolir, gallabuxur sem líta út eins og leggings. Jafnaldrar þeirra hafa ekki bílpróf vegna þess að þeir þurfa ekki að fara út fyrir bæjarmörkin, Snapchatstjörnur, fæðubótarefni. Umm hvað meira? Jú, markþjálfar og Dale-Carnegie siðblindingjar sem ætla sér að sigra heiminn með nýsköpun en enda bara í umfjöllun DV með slóð eyðileggingar á eftir sér, sjónvarpskokkar, matreiðslu- og lífstílsbloggarar, fuccbojs og rafbílar... Listinn er ekki tæmandi. Reyndar langar mig aðeins að ræða um þessa menningu sem fuccboj-arnir eru framverðir í. Uppáhalds fuccboj tískan fyrir mér er sú sem virðist vera að tröllríða æskunni í dag. Þessir krakkar vilja bara „liffa“ og „njóta“ (eða er það skrifað „að njóda“?) Fyr- ir mér stendur fuccboj tískan fyrir algeru skeyt- ingarleysi um hvað öðr- um finnst (halda þeir). Þá í því hvernig þeir klæða sig, tala og eru al- mennt atvinnulausir. Þetta er ákveðin kristall- ísering á þróun sem hófst hjá aldamótakynslóðinni (fólk fætt ca 1981-1999) og var að klæða sig eins og meðlimir Wu-Tang Clan á sínum táningsár- um. Nema að í dag eru fyrirmyndir fuccboja (og fuccstelpna) að miklu leyti Kanye West, Justin Bieber, Kendall Jenner og Rick Owens fatahönn- uður. Guð blessi Ísland segi ég. Ég vona bara að þegar hinn blákaldi veru- leiki, sem er daglegt líf eftir miðjan tvítugsaldr- inn, skellur á þessum krökkum að höggið verði ekki of mikið og þau viti að það er líf eftir kjánahrollinn. Allavega nóg af þessu. Ég vona bara að um þessar mundir að fólk drepist ekki úr leiðindum nú þeg- ar facebook fréttaveitan þeirra er orðin full af frásögnum frambjóð- enda um hversu vel var mætt og hvað það sé mikill kraftur og já- kvæðni í fólki hvar sem er stigið niður í kjördæmum landsins. Góð- ar stundir. Axel Freyr Eiríksson PISTILL Fuccbojs og kosningar Kosningar til Alþingis laugardaginn 28. október 2017 Kjördeild á Reykhólum Kjördeild við Alþingiskosningarnar laugardaginn 28. október 2017 verður á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a á Reykhólum, Reykhólahreppi. Kjörfundur hefst kl. 10 og stendur til kl. 18. Kjörskrá hefur verið gefin út af sveitarstjórn Reykhólahrepps og liggur hún frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Maríutröð 5a á Reykhólum. Kosningarnar fara fram í samræmi við lög um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000 með síðari breytingum. Kosningaathöfnin sjálf, sem og undirbúning hennar, atkvæðagreiðsla utan kjörstaða og á kjörstað, fer að öðru leyti fram samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Upplýsingar um lög um kosningar til Alþingis má m.a. nálgast á vefnum kosning.is. Þar má líka finna leiðbeiningar til kjósenda um framkvæmd kosninganna, kosningarétt og atkvæðagreiðslu. Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum. Þess vegna eru kjósendur sérstaklega minntir á að hafa skilríki meðferðis. Kjörstjórn Reykhólahrepps Steinunn Ó. Rasmus, formaður Sveinn Ragnarsson Leifur Z. Samúelsson SK ES SU H O R N 2 01 7 AUGLÝSING UM SKIPAN Í KJÖRDEILDIR Í BORGARBYGGÐ SK ES SU H O R N 2 01 7 Við alþingiskosningar laugardaginn 28. október 2017 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna. Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef innanríkisráðuneytisins, kosning.is, geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar. Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708. Kjörstjórn Borgarbyggðar Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit SK ES SU H O R N 2 01 7 Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit vegna Alþingiskosninga laugardaginn 28. október 2017 verður frá kl. 9:00 til kl. 22:00. Kjörstaður er í stjórnsýsluhúsinu við Innrimel 3 í Melahverfi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanni fram að kjördegi. Kjósendum ber að hafa persónuskilríki meðferðis. Kjörstjórn Snæfellsbær Auglýsing um kjörfundi vegna alþingiskosninga laugardaginn 28. október 2017 Ólafsvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00 Hellissands- og Rifskjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00 Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild: Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. Kosning hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00 Munið eftir persónuskilríkjum. Yfirkjörstjórn Snæfellsbæjar SK ES SU H O R N 2 01 6

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.