Skessuhorn


Skessuhorn - 25.10.2017, Page 38

Skessuhorn - 25.10.2017, Page 38
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 201738 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Finnst þér að eigi að lækka kosningaaldur niður í 16 ár? Spurni g vikunnar (Spurt í Hjálmakletti í Borgarnesi) Axel Örn Bergsson: Nei, það finnst mér ekki. Þeir sem eru undir 18 ára hafa ekki náð þeim þroska sem þarf til að mynda sér skoðun á stjórnmál- unum. Helga Dóra Jóhannsdóttir: Já, af því að við byrjum að borga skatta þegar við verðum 16 ára. Fannar Óli Þorvaldsson: Já, mér finnst að við unga fólkið eigum að geta haft áhrif fyrr. Svava Sjöfn Kristjánsdóttir: Nei, mér finnst það ekki. Okkur vantar á þeim aldri meiri þekk- ingu til að getað myndað okkur skoðun til að kjósa. Þórður Brynjarsson: Já, hann ætti að vera 16 ár. Sjálf- ræðisaldur líka og bílprófsaldur. ÍA heimsótti nýliða Gnúpverja í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudag. Skagamenn höfðu und- irtökin nær allan leikinn. Það var ekki fyrr en á lokamínútunum að Gnúpverjar náðu forystunni og sigruðu, 83-80. Var þetta fyrsti sigur Gnúpverja í 1. deild karla í sögu félagsins. Leikurinn var jafn og spennandi í upphafi. ÍA hafði undirtökin en Gnúpverjar fylgdu þeim eins og skugginn. Forskot ÍA var aldrei meira en tvö stig lengst framan af fyrsta leikhluta. Undir lok hans náðu Skagamenn smá spretti og leiddu með sex stigum að hon- um loknum, 18-24. Gnúpverjar jöfnuðu í 26-26 snemma í öðr- um fjórðungi og mikið jafnræði var með liðunum allt til hálfleiks. Skagamenn höfðu fjögurra stiga forskot í hléinu, 37-41. Skagamenn komu ákveðnir til síðari hálfleiks. Eftir að Gnúp- verjar minnkuðu muninn í eitt stig náðu Skagamenn góðum spretti og komust níu stigum yfir, 43-52. En Gnúpverjar spyrntu við fótum, minnkuðu muninn jafnt og þétt það sem eftir lifði þriðja leikhluta. Skagamenn leiddu með aðeins tveimur stigum að honum loknum, 57-59. Upphófst þá æsispennandi lokafjórðungur. Skagamenn náðu fimm stiga forskoti en Gnúpverjar börðust áfram og minnkuðu mun- inn í aðeins eitt stig. Þeir komust síðan yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar fjórar mínútur lifðu leiks, 75-72. Skagamenn tóku forystuna að nýju og komust þremur stigum yfir þegar innan við tvær mínútur lifðu leiks, 75-78. Gnúpverjar jöfn- uðu metin snarlega með þriggja stiga körfu. Skagamenn komust yfir að nýju, nú með tveimur víta- skotum, en aftur settu Gnúpverj- ar þrist og náðu eins stigs forystu og aðeins hálf mínúta á klukkunni. Skagamenn fengu dæmda á sig sóknarvillu í næstu sókn, Gnúp- verjar brunuðu upp í hraðaupp- hlaup og skoruðu auðveldlega og fengu vítaskot að auki með aðeins átta sekúndur eftir á klukkunni, 83-80. Þeir brenndu af vítinu, Skagamenn brunuðu upp í sókn og létu þriggja stiga skot vaða. Ofan í fór það ekki og sigur Gnúpverja staðreynd. Ármann Örn Vilbergsson var stigahæstur Skagamanna með 21 stig og Derek Shosue skoraði 19 stig og tók 13 fráköst. Þeir Jón Orri Kristjánsson og Fannar Freyr Helgason skoruðu 11 stig hvor. Everage Richardson átti stórleik fyrir Gnúpverja. Hann skoraði 37 stig og tók 7 fráköst. Eftir leikinn situr ÍA í 8. og næstneðsta sæti deildarinnar, án stiga eftir fyrstu þrjá leiki vetrar- ins sem allir hafa tapast naumlega. Næsti leikur Skagamanna er Vest- urlandsslagur gegn Skallagrími næstkomandi föstudagskvöld, 27. október. Leikið verður í íþrótta- húsinu við Vesturgötu á Akranesi. kgk Skagamenn rétt misstu af sigri Fannar Freyr Helgason og liðsfélagar hans í ÍA þurftu að játa sig sigraða gegn Gnúpverjum. Ljósm. úr safni/ jho. Nú þegar haustið færist yfir með kólnandi veðri og styttri dögum eru sumir sem bíða í ofvæni eftir næsta sumri. En svo eru aðrir sem óska sér meiri kulda og lát sér bein- línis hlakka til vetrarins. Þeirra á meðal eru meðlimir í Skíðadeild UMFG í Grundarfirði en þar hef- ur mikil uppbygging verið síðustu ár og mikill metnaður. Allt er þetta gert í sjálfboðastarfi og með góðum styrkjum. Til dæmis hélt Lions- klúbbur Grundarfjarðar kúttmaga- kvöld 25. febrúar síðastliðinn þar sem allur ágóðinn rann til skíða- deildarinnar. Sá peningur er áfram nýttur í uppbyggingu á svæðinu en til dæmis er búið að endurnýja skíðaskálann töluvert, kaupa snjó- troðara, endurnýja vírinn í lyftunni og alla diska svo eitthvað sé nefnt. Skíðadeild UMFG vill koma fram þökkum til allra velunnara skíðasvæðisins sem styrktu deildina hvort sem er með peningastyrkj- um eða vinnu. Slíkt er ómetanlegt í þeirri uppbyggingu á svæðinu sem nú á sér stað. Hægt er að forvitnast um starfsemina og framgang upp- byggingar á fésbókarsíðu deildar- innar undir Skíðasvæði Snæfells- ness. Næst á dagskrá hjá deildinni er að ræsa fram vatn úr brekkunni, kaupa öryggisvörur og áframhald- andi uppbygging. tfk Skíðadeildin í Grundarfirði undirbýr veturinn Mynd frá einum af opnunardögum lyftunnar síðasta vetur. Frá kúttmagakvöldi Lions en ágóðinn rann til Skíðadeildarinnar. Næstkomandi föstudag, 27. októ- ber, fer fram málþing um áhrif knattspyrnunnar á Akranesi. Það verður haldið í Tónbergi og stend- ur yfir frá klukkan 15 til 18:40. „Þetta er risastórt forvarnarmál okkar Akurnesinga, ímyndarmál fyrir bæjarfélagið og stórt samein- ingartákn. Þá er þetta stórt upp- eldissmál og ætti að vera eitt af kosningamálunum, bæði í alþing- iskosningum og í bæjarstórnar- kosningum,“ segir í tilkynningu frá KFÍA sem heldur málþingið. Á málþinginu verða flutt erindi og panelumræður undir stjórn Heimis Fannars Gunnlaugsson- ar. Meðal frummælenda má nefna Gunnar Gunnar Sigurðsson fyrr- verandi formann KFÍA, Guðna Bergsson formann KSÍ og feðgana Jón Gunnlaugsson og Stefán Jóns- son. Gísli Gíslason mun fjalla um hvað Akraneskaupstaður hefur gert fyrir knattspyrnuna og hvaða áhrif hún hefur haft á bæjarlífið síðan 1951. „Hvað ungur nemur gamall temur,“ er heiti á framsögu þeirra Skarphéðins Magnússonar og Hjördísar Brynjarsdóttur. Hulda Birna Baldursdóttir fjallar um fót- bolta- og skólabæinn Akranes og dætur Ríkharðs Jónssonar koma fram. Viðar Halldórsson fjallar um afreksfólkið. Að lokum mun Magnús Guðmundsson formaður KFÍA ræða um veginn framundan. Frítt er inn og fer skráning fram á heimasíðu KFÍA. mm Málþing um áhrif knattspyrnunnar á Akranesi Ríkharður Jónsson að þruma boltanum í netið fyrir ÍA úti í Hamborg.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.