Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2017, Side 20

Skessuhorn - 22.11.2017, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201720 Liður í dagskrá uppskeruhátíðar ferðaþjónustunnar á Vesturlandi síðastliðinn fimmtudag var kynning Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur á fyr- irhugaðri uppbyggingu Vínlands- seturs í Leifsbúð í Búðardal. Þau eiga bæði sæti í Eiríksstaðanefnd og hafa unnið að hugmyndum um og undirbúningi stofnunar Vínlands- seturs í Leifsbúð. Þar verður rak- in sagan af landnámi Grænlands og tilraunum norrænna manna til að nema land í Ameríku. Hljóðleið- sögn verður um safnið og veitinga- staður á neðri hæð hússins. Kjartan sagði að upphaflega hafi verið unnið út frá hugmynd um Sögulandið Vesturland. Kvaðst hann hafa séð slíkt verkefni fyrir sér sem framhald Landnámsseturs- ins í Borgarnesi, en hann og Sirrý áttu sem kunnugt er frumkvæði að stofnun þess. Forsvarsmenn sendu á sínum tíma hugmyndina um Sögulandið Vesturland á stjórnend- ur allra sveitarfélaga í landshlutan- um. Dalabyggð sýndi verkefninu áhuga og hafði hug á sögualdarsýn- ingu, tengdri Laxdælu og sagnarit- un Sturlu Þórðarsonar, enda eiga þær sagnir hvað sterkust tengsl við Dalina. Fallið var frá þeim hug- myndum, þar sem ekki var talið að erlendir ferðamenn væru nægilega kunnugir þeim sögum. „En sagan af Leifi Eiríkssyni og Eiríki rauða er stöngin inn hér í Dölum,“ sagði Kjartan, en sagan af landafundum þeirra feðga er ferðamönnum að góðu kunn, einkum þeim frá ensku- mælandi löndum. Til að mynda er Dagur Leifs Eiríkssonar haldinn hátíðlegur ár hvert í Bandaríkjun- um. Ákveðið var því að Vínlands- setur skyldi rekja söguna af land- námi Grænlands og síðan tilraun- um norrænna manna til landnáms Ameríku. Hljóðleiðsögn verður um safnið og Kjartan sagði í stuttu máli frá því sem gestir safnsins myndu berja augum og sýndi á skjá skissur af útliti safnmuna sem hann teikn- aði sjálfur. Veitingastaður verður á neðri hæð Vínlandsseturs, rétt eins og í Landnámssetrinu í Borgarnesi. „Samlegðaráhrifin eru svo gríðar- lega mikil af því að hafa veitinga- stað við hlið svona sýningar,“ sagði Kjartan. Kostnaður um 230 milljónir Þessa dagana er unnið að fjármögn- un Vínlandsseturs. Heildarkostn- aður við verkefnið er áætlaður um 230 milljónir króna, að öllu með- töldu. Þannig er til dæmis fasteign- in Leifsbúð inni í þeim kostnaði, ásamt sýningum og framkvæmdum við húsið. Fjármagn sem þarf að afla er um það bil að upphæð 140 milljónir króna. Fram kom í máli Sirrýjar að þegar hefði tekist að afla um þriðjungs þess. Markmiðið er að verkefnið verði fjármagnað með þrennum hætti, það er að segja af sveitarfélaginu Dalabyggð, ríkis- valdinu og einkaaðilum. Erindi Kjartans og Sirrýjar vakti áhuga viðstaddra og fyrsta spurn- ingin sem þeim barst úr sal var ein- faldlega hvenær hægt yrði að opna Vínlandssetrið. Þau kváðust ekki geta svarað því að svo stöddu en um leið og búið væri að fá nægan pen- ing til að geta hafið framkvæmdir þá væri hægt að setja stefnuna á ein- hverja dagsetningu. Sirrý tók fram að framkvæmdir við Vínlandssetur myndu taka skemmri tíma en þeg- ar unnið var að því að koma Land- námssetrinu á fót á sínum tíma því húsið, Leifsbúð, væri þegar til stað- ar. Aðeins er gert ráð fyrir því að byggja við húsið 40 fermetra eld- hús, bæta við gluggum og aðrar minni framkvæmdir. Kjartan og Sirrý kváðust vona að Vínlandssetur yrði liður í því að efla ferðaþjónustu í Dölum. „Við verðum að fá fólk til að stoppa til að Dalabyggð hafi tekjur af ferða- mönnum. Þrjú hundruð þúsund manns aka hér í gegn á ári hverju og aðeins örfáir stoppa,“ sagði hann. Sirrý bætti því síðan við að mikilvægt væri fyrir Dalamenn að fá Skógarstrandarveg endurgerðan sem fyrst. „Þannig myndi opnast hringleið frá Snæfellsnesi til að fólk geti farið um Dali þegar það ætlar af Snæfellsnesi og norður í land. Sú umferð myndi bætast við þá umferð fólks sem fer um Dali nú þegar á leiðinni vestur á firði,“ sagði Sirrý og Kjartan tók undir hvert orð. kgk „Sagan af Leifi Eiríkssyni og Eiríki rauða er stöngin inn“ Kynnt var fyrirhuguð uppbygging Vínlandsseturs í Leifsbúð Kjartan Ragnarsson segir frá fyrirhugaðri uppbyggingu í Leifsbúð. Leifsbúð í Búðardal, þar sem fyrirhugað er að opna Vínlandssetur.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.