Skessuhorn - 22.11.2017, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201722
Fimmtán gráðu frost og gúmmílist-
arnir neita að sleppa takinu á hurð-
inni. Ég skelli hurðinni á bílnum
en hún hoppar aftur út, djöfulsins
frostið alltaf hreint, hurðin lokast
á endanum. Þó ekki fyrr en ég er
orðinn helblár á puttunum við að
beita bíllyklunum á klinkuna sem
gefur sig að lokum til baka. Sumir
hata veturinn, ég elska hann. Það er
bara svo „kósý“ að horfa út í snjóinn
hérna umvafinn einangrun frá Nor-
egi. Í Borgarfirði á bökkum Hvítár
er eins og Elsa prinsessa hafi mætt á
svæðið og fengið bræðikast, eða svo
segja litlu börnin. Þrátt fyrir smá
örðugleika sem tengjast hurðarlist-
um og hurðarlæsingu hafa þessi síð-
ustu dagar ekkert bitið á Cherokee-
inn minn sem rýkur í gang þrátt fyr-
ir fimbulkuldann, svo segja þeir að
Kaninn kunni ekki smíða bíla...
Á Syðra-Langholti í Hruna-
mannahreppi stendur maður úti við
glugga og kremur flugur í glugg-
anum með vísifingri, þær eru orðn-
ar svo svifaseinar um þessar mund-
ir. Hann er reyndar hissa á því hvað
flugurnar hafa lifað lengi inn í vetur-
inn, hann býr jú í sveit svo kannski
er þetta ekkert skrítið. „Muna að
láta eitra næsta vor,“ hugsar Sig-
urður Ingi þegar hann snýr sér til
að ná sér í fyrsta kaffibolla dagsins
(ég vona að hann drekki kaffi, sum-
ir gera það ekki). Honum sem líkaði
svo vel við Helga Hrafn, hann hefur
kannski hugsað að hann gæti togað
hann úr þessari bévítans tölvuvit-
leysu. Kannski boðið honum í rétt-
ir næsta haust eða jafnvel að rýja í
vor. En þessu var sjálfhætt, þreifing-
ar og pot – ekkert meir. Bíllinn, sem
er búinn að vera í gangi í meira en
klukkutíma. Er orðinn vel heitur og
bíður eftir því að flytja hann á fund
örlaganna.
Ráðherrabílnum er lagt fyrir utan
ráðherrabústaðinn. Vel greiddur
og klæddur Bjarni Ben situr örlítið
lengur í bílnum sínum, hann er bú-
inn að einbeita sér að saumunum
í stýri bílstjórans síðan hann sett-
ist upp í bílinn fyrir utan hús sitt í
Garðarbænum: „Hvernig er þetta
eiginlega hægt?“ Hugsar hann með
sér og spilar í huga sínum myndband
af youtube sem sýnir konu sauma
sæti og stýri í Lamborghini. Vestið
keypti hann líklega í Kultur Men í
Kringlunni. Ekki of formlegt, ekki
of stíft, það má ekki styggja vinstrið.
Bílstjórinn, sem situr þögull í kyrrð-
inni sem fylgir á eftir þegar búið er
að drepa á bíl, segir: „Herra minn,
við erum komnir.“ Bjarni rankar við
sér og stígur út.
Katrín lýkur við lotuáhorf sitt á
Stranger Things um kl. 01:24 og
sofnar í sófanum. Eðlan sem hún
lét Gunna gera fyrr um kvöldið er
orðin köld, rjómaosturinn og salsa-
sósan orðin að einu gumsi. Svona
kannski eins og næsta ríkisstjórn.
Hún vissi að það væri mikilvægur
fundur á morgun en þessir þættir
eru bara svo ógeðslega góðir. Kolli
Proppé var búinn að segja að þess-
ir þættir væru geðveikir svo það var
ekkert um annað að ræða en að taka
þá í einni lotu því það verður ekki
tími til að horfa á sjónvarp næstu
daga. Hún dregur upp kröftuglega
ofinn ullartrefilinn og þegar hún er
búin að vefja honum utan um háls-
inn heyrist bjölluhljóð í símanum:
„Thu endar sem forsatisradherra,
trudu mer. ekki bakka þumlung. kv
steini j“. „Hann verður að fara að
fá sér snjallsíma,“ hugsar Katrín og
skellir í lás.
Ég vona bara að þessu verði lokið
fyrir jól.
Kveðja,
Axel Freyr Eiríksson
Sandkorn í
skítakulda
PISTILL
Áratugahefð er fyrir því í versluninni Bjargi við Stillholt á
Akranesi að bjóða viðskiptavinum upp á Gott kvöld í aðdrag-
anda aðventu. Síðastliðinn fimmtudag var opið langt fram á
kvöld og streymdi fólk í verslunina til að nýta sér spennandi
tilboð á fatnaði og snyrtivörum og þiggja um leið veitingar.
Við látum meðfylgjandi myndir tala sínu máli. mm
Gott kvöld í Bjargi
„Körfuboltamenn frá öðrum EES
ríkjum eiga að hafa sömu réttindi til
atvinnu á Íslandi og íslenskir leik-
menn.“ Þannig hefst frétt á heima-
síðu ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA,
frá því á miðvikudag. Stofnunin hafði
til umfjöllunar svokallaða 4+1 reglu
Körfuknattleikssambands Íslands,
sem felur í sér að íslensku körfuknatt-
leiksliði er aðeins heimilt að hafa
einn erlendan leikmann inni á vellin-
um í leik. Samkvæmt rökstuddu áliti
sem ESA sendi til Íslands sama dag
felur þetta í sér brot á skuldbinding-
um ríkisins samkvæmt EES-samn-
ingnum „Einn grunnþátta EES-
samningsins er sameiginlegi vinnu-
markaðurinn, sem gerir Íslendingum
kleift að starfa í öðrum Evrópulönd-
um og njóta réttinda þar. Samning-
urinn er gagnkvæmur og körfubolta-
maður frá öðru EES ríki sem spilar á
Íslandi á því að njóta sömu réttinda
og íslenskir leikmenn,“ segir Helga
Jónsdóttir, stjórnarmaður ESA, í
fréttinni.
Sameiginlegur vinnumarkaðurinn
í Evrópu gerur launþegum kleift að
flytja á milli EES-ríkja og sinna störf-
um án mismununar. Þegar íþrótt er
skilgreind sem atvinnugrein og fólk
fær greidd laun fyrir að stunda hana,
þá fellur hún undir frjálsa vinnumark-
aðinn og þar með EES-löggjöfina.
„Erlendir leikmenn frá EES-lönd-
um eiga því að hafa sömu réttindi og
íslenskir leikmenn og það gera þeir
ekki samkvæmt „4+1 reglunni“, en
mismunun á grundvelli þjóðernis
brýtur í bága við EES-samninginn,“
segir í fréttinni.
ESA sendi yfirvöldum á Íslandi
formlega áminningu fyrr í sumar og
gaf gaf stjórnvöldum þriggja mánaða
frest til að koma röksemdum sínum
á framfæri. „Eftir framlengdan frest
hefur enn ekkert svar borist. Rök-
studda álitið sem ESA sendi Íslandi
er annað stigið í samningsbrota-
máli gegn íslenska ríkinu. Verði ekki
brugðist við innan tveggja mánaða
getur ESA vísað málinu til EFTA-
dómstólsins.“
Nýjar reglur næsta vor
„Stjórn KKÍ hefur rætt málið ítar-
lega og tekið þá ákvörðun að fyr-
ir körfuknattleikshreyfinguna og ís-
lenska ríkið sé best að frá og með
keppnistímabilinu 2018/2019 verði
spilað samkvæmt þeim reglum sem
ESA telur að þurfi að gera með frjálst
flæði vinnuafls innan ESB/EFTA
svæðins. Er þetta gert með það í
huga að hvorki KKÍ, ÍSÍ né fulltrúar
íslenska ríkisins þurfi að setja í mál-
ið töluverðan tíma, vinnu og fjár-
magn. Ný reglugerð um hlutgengni
erlendra leikmanna í körfuknattleik í
mótum á vegum KKÍ mun taka gildi
frá og með 1. maí 2018,“ segir í bréfi
sem KKÍ sendi aðildarfélögum sama
dag vegna málsins. Stjórn körfu-
knattleikssambandsins ítrekar að
KKÍ telji engin lög hafi verið brotin
með þeirri reglu sem í gildi hafi verið
undanfarin ár. „En þar sem reglurnar
eru óljósar og málsmeðferð mun taka
nokkur ár, mikinn tíma og fjármagn
telur stjórn KKÍ að best sé að breyta
regluverkinu eins og fram kemur hér
að ofan. Ákvörðunin er tekin með
heildarhagsmuni körfuknattleiks-
hreyfingarinnar og íslenska ríksins
að leiðarljósi. Stjórn KKÍ vonast til
þess að með þessari ákvörðun tak-
ist sátt á milli aðila og að ESA muni
nú láta málið niður falla og gefa KKÍ
svigrúm í að breyta sínu regluverki
sem taka mun gildi 1.maí 2018,“ seg-
ir í bréfinu.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Telur reglu KKÍ brjóta í bága
við EES-samninginn