Skessuhorn - 22.11.2017, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201728
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmar 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Á vef Skógræktarinnar er greint frá
því að barrvefari hafi fundist í Döl-
um nú í haust. Var hann staðbund-
inn við um einn fjórða af hektara
á einum bæ. Þar hafði hann étið
barrið af nokkrum lerkitrjám svo að
þau voru orðin albrún að lit. Hann
hafði þó ekki dreift sér á allt lerki
á svæðinu því í kringum sýktu trén
stóðu hvanngræn lerkitré. Einnig
hafði hann herjað á nokkrar furur
á svæðinu.
Barrvefari lifir í barrskógum og
húsagörðum. Hann flýgur frá lok-
um júlí og fram í miðjan október-
mánuð. Að öllum líkindum verpir
tegundin eggjum sínum á trjágrein-
ar þar sem þau geymast yfir vetur-
inn þar til þau klekjast út á næsta
vori. Lirfurnar vaxa síðan upp fyrri
hluta sumarsins og púpa í júlí. Þær
nærast á nálum barrtrjáa, lerkis,
furu og þins. Þær spinna spunahjúp
utan um nálarnar og éta þær frá
oddi að rót. Þegar fæðan er uppur-
in finna þær sér nýja nál og spinna
hjúp utan um hana.
Tegundin er útbreidd um Evr-
ópu allt frá Norður-Skandinavíu
til Miðjarðarhafs. Þá er hún einn-
ig algeng í Miðausturlöndum og
Asíu allt til Japans. Hana er einn-
ig að finna í Færeyjum og Norð-
ur-Ameríku. Hingað til hefur út-
breiðsla hennar hérlendis verið á
sunnan- og austanvert landið, allt
frá Hvanneyri austur að Hallorms-
stað og Neskaupstað. Einnig hefur
barrvefari fundist í Stykkishólmi
og í grennd við Ásbyrgi. Tegund-
in er nýlegur landnemi hér á landi,
fannst fyrst í Hallormsstaðaskógi
haustið 1992 en ekki var strax ljóst
hver tegundin væri. Fyrst var hún
greind árið 1997 og á næstu árum
hafði hún náð að dreifa sér um allt
sunnanvert landið.
kgk
Barrvefari fannst í Dölum
Lirfur barrvefara spinna hjúp um barrnálar og éta þær frá oddi að rót. Þegar
fæðan er uppurin færa þær sig á aðrar nálar. Þannig skilur hver lirfa eftir sig
nokkra spuna. Ljósm. Skógræktin.
Pennagrein
Mistök eru ekki sérlega gildishlaðið
orð. Eitthvað sem okkur verður víst
flestum á er að gera mistök, sum
stór önnur smávægileg. Við viljum
ekki láta það um okkur spyrjast að
við séum sífelldlega að gera mistök
en oft gengur þetta yfir alla þjófa-
bálka, fólki virðist ótrúlega oft ekki
um að viðurkenna jafnvel smávægi-
leg mistök sem engu skipta. Hvað þá
veruleg mistök sem gætu hafa haft
alvarlegar afleiðingar fyrir aðra. Í
veraldarsögunni er þekkt að mistök
sem jafnvel er hægt að rekja til fárra
hafa haft áhrif á hag margra, jafn-
vel leitt til heimsstyrjalda. Öll slík
sagnfræði er þó nokkuð vafasöm ef
hún á að leiða fram; „það sem ann-
ars hefði gerst“. En getur fætt af sér
skemmtilegar vangaveltur. Hvað ef
íslensku bankarnir hefðu ekki ver-
ið einkavæddir? Hvað ef Versala-
samningarnir hefðu ekki hallað svo
mjög á Þjóðverja eins og raunin
varð? En nóg um það.
Mannréttindi
Nýverið var sagt frá því að Jón
Björgvinsson fréttaritari hefði ver-
ið handtekin í Abu-Dabi. Honum
var haldið í einangrun í 50 klukku-
tíma og yfirheyrður samfellt í 10
klukkustundir. Í viðtali sagði Jón að
þetta sýndi hve mannréttindi væru
fótumtroðin í landinu, þeir sem
reyndu að vekja athygli á misrétti
væru einfaldlega settir bak við lás
og slá eins og hann.
Þetta er þó ekki einsdæmi og
ansi langt frá því að vera bundið
við þetta fjarlæga ríki sem eins og
önnur lönd þurfa þó að sæta vax-
andi nánd við allt og alla vegna
tækniþróunar sem orðið hefur og
er á fleygiferð meðal annars í formi
snjallsíma í hvers manns hönd.
Í byrjun 17. aldar varð mikil gerj-
un í heimsmynd Evrópu og kaþ-
ólska kirkjan barðist við smokka
þeirrar aldar sem voru nýjar hug-
myndir um stöðu Jarðar í alheimi
sem fóru gegn heimsmynd kirkj-
unnar. Glíma kirkjunnar við Galí-
leó endaði fyrir rannsóknarrétt-
inum alræmda en hann var of stór
biti til að fara á bálið og endaði í
stofufangelsi. Þessi slagur hefur
orðið frægur í sögulegu samhengi
og 1741 sættist kirkjan að einhverju
leyti við Galíleó. Í páfatíð Jóhann-
esar Páls II bað kirkjan hann svo
fyrirgefningar 350 árum eftir and-
látið.
Giordano Bruno var brenndur á
báli á Campo di Fiori í Róm árið
1600 eftir að hafa fyrst komið fyrir
rannsóknarréttinn árið 1593. Hann
hefur enn ekki fengið uppreisn æru
í Páfagarði þó hans sé nær allsstað-
ar getið þegar fjallað er um þá bylt-
ingu sem varð í vísindum með til-
komu sólmiðjukenningar Kóperni-
kusar 1543 og í kjölfarið eðlisfræði
Galileós og Newtons. Aftur var það
þó Jóhannes Páll II sem baðst af-
sökunar á þeim kæk páfagarðs að
kveikja í andmælendum sínum upp
við staur á árum áður.
Guðmundar og
Geirfinnsmál
Á Íslandi var staðnað landbúnaðar-
samfélag í mörgu tilliti langt fram
á 19. öld. Þegar kom fram á miðja
öldina má segja að hægfara breyt-
inga hafi tekið að gæta sem stóð
til 10. maí árið 1940 þegar nútím-
inn hélt hér innreið sína. Sumir vilja
miða þessa kollsteypu við komu
bandaríska hersins sumarið eftir.
Að einhverju leiti er hægt að skilja
þau mistök sem gerð voru í svoköll-
uðu Guðmundar og Geirfinnsmáli í
þessu ljósi. Ráðandi kynslóð vissi í
einhverjum skilningi ekki sitt rjúk-
andi ráð og vildi skapa hér samfélag
sem væri fallegt og réttlátt. En vissu
óglöggt hvar mörk valdsins lágu.
Því fór sem fór og meðferðin á Jóni
Björgvinssyni í Abu-Dabi í nóvem-
ber 2017 verður eins og saklaus
busun í framhaldsskóla hjá því sem
venjulegir íslenskir lögregluþjónar
og fangaverðir gerðu á hlut nokk-
urra samborgara sinna á seinni hluta
áttunda áratugar liðinnar aldar.
Það má vissulega velta því fyr-
ir sér hvernig þetta gat allt gerst
með þeim hætti sem það gerðist.
Hvað ef eitthvað hefði gerst öðru-
vísi en raunin varð. En það verður
verkefni sagnfræðinga úr því sem
komið er. Það sem vekur hinsveg-
ar furðu mína eru viðbrögð stjórn-
málamanna við þeim tíðindum sem
fljótlega urðu á vitorði almennings
að málið hafi allt verið nær sam-
felld röð mistaka og að brotið hafi
verið gróflega á rétti þeirra sem að
lokum hlutu dóma í málinu. Minn-
ir þar óþægilega á Páfagarð. Geir
Haarde neitaði að biðja þolendur
ofbeldis í vistheimilinu í Breiðuvík
afsökunar af því að hann hefði ekki
gert á hlut nokkurs manns þar í vík-
inni. Sama virðist gegnum gangandi
í málflutningi dómara og stjórn-
málamanna þegar kemur að Guð-
mundar og Geirfinnsmálinu, sem að
einhverju leyti er framhaldssaga af
Breiðuvíkurmálinu og sagan af inn-
reið nútímans í íslenskt samfélag.
Enginn virðist leggja í að biðja þol-
endur fyrirgefningar. Þeir sem sátu
á valdastóli eru horfnir þaðan og þó
mistökin hafi verið þeirra er ekki á
þeirra færi að greiða úr þeim að svo
miklu leyti sem það er hægt.
Forseti vor og
ríkisstjórn
Giovanni Mercati kardináli hélt því
fram árið 1942 að skjöl sem hann
hafði þá fundið sýndu að full ástæða
hafi verið til að rétta yfir Giordano
Bruno. Stundum er óttinn við af-
leiðingar þess að viðurkenna mis-
tök – jafnvel annarra fyrir mörgum
öldum – svo mikill að menn vilja
frekar freista þess að breiða yfir þau
eina duluna enn. Flest okkar þekkja
þetta, erfiðleikana við að viður-
kenna að hafa gert á annarra hlut
og biðja viðkomandi fyrirgefning-
ar. Þroskað fólk veit þó að það leið-
ir oftast til einhvers góðs og menn
átta sig á því þegar árunum fjölg-
ar að sum mistök eru raunverulega
stór mistök sem hafa áhrif á líf ann-
arra. En það er alltaf betra að við-
urkenna sannleikann, horfast í augu
við hann, frekar en að halda áfram
að reyna að stagbæta lygavefinn og
leita nýrrar réttlætingar á ranglæt-
inu.
Þegar ný ríkisstjórn tekur við
valdataumum bíða hennar mörg
verk. Þetta verk hefur beðið lengi.
Það hefur beðið of lengi og ætti
ekki að bíða lengur!
Finnbogi Rögnvaldsson
Að viðurkenna mistök er
betra en að stagbæta lygavef