Skessuhorn


Skessuhorn - 22.11.2017, Qupperneq 30

Skessuhorn - 22.11.2017, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 201730 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvað er það besta við veturinn? Spurni g vikunnar (spurt á Akranesi) Helgi Steindal: „Það besta við veturinn er að þegar hann er kominn þá er far- ið að styttast í sumarið aftur.“ Ingibjörg Sigþórsdóttir: „Jólin.“ Kristín Sigfúsdóttir: „Þegar jólaljósin eru sett upp, þá færist yndisleg birta yfir skamm- degið.“ Kristinn Pétursson: „Mér líkar veturinn ágætlega ef hann er snjóléttur, þá er ég ánægður með hann.“ Segja má að undirbúningur Víkings Ólafsvíkur fyrir næsta knattspyrnu- tímabil hafi byrjað um síðustu helgi. En þessa dagana fer riðlakeppnin í Futsal fram og spilar Víkingur Ó í C-riðli. Leikið var í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar og vann Víkingur Ó báða sína leiki, fyrst við Ísbjörninn 6 - 1 og svo við Augnablik 8 - 2, en lið ÍH dró sig úr keppni. Ejub Purisevic sem nýlega skrifaði und- ir nýjan tveggja ára samning stýrði liðinu og var Suad Begic honum til aðstoðar. Þeir stilltu upp 13 manna ungu liði heimamanna af Snæfells- nesinu. Segja má að ungu leikmennirnir úr uppeldisstarfi félagsins séu farnir að nálgast meistaraflokkinn og fullt af enn yngri leikmönnum er á leið- inni. Seinni umferð C-riðils í Fut- sal verður spiluð laugardaginn 9. desember á Álftanesi. þa Víkingur með tvo sigra í Futsal Ungir og efnilegir körfuknattleiks- menn í 8. flokki drengja hjá Skalla- grími áttu góðu gengi að fanga um síðustu helgi. Þeir léku fjóra leiki í A-riðli Íslandsmótsins í körfu- knattleik, en riðillinn var spilaður á heimavelli í Borgarnesi. Skalla- grímspiltar gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leikina og það sannfær- andi. Sigruðu piltarnir riðilinn og þar með skipuðu þeir sterkasta lið landsins í sínum aldursflokki þessa helgina. „Sterk liðsheild sem þeir Alexander, Almar, Aron, Andri, Bjartmar, Halldór og Jónas mynda. Vilhjálmur var því miður veikur en kemur sterkur inn í næsta mót,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu kkd. Skallagríms. kgk Sterkastir í sínum aldursflokki Piltarnir í 8. flokki Skallagríms ásamt þjálfara sínum, Ricardo Gonzales Dávila. Naut þjálfarinn sérlegrar aðstoðar Skúla Guðmundssonar við þjálfun liðsins. Ljósm. Skallagrímur. Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfuknattleik, tilkynnti á mánudag tólf manna hóp sem heldur til Tékklands og mætir heima- mönnum næstkomandi föstudag. Grundfirðing- urinn Hlynur Bæringsson, leikmaður Stjörnunnar, er að venju meðal leikmanna hópsins en Borgnes- ingurinn Pavel Ermolinskij, leikmaður KR, er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. Borgfirðingurinn Arn- ar Guðjónsson er sem fyrr aðstoðarþjálfari liðsins. Leikur liðsins gegn Tékklandi er liður í undan- keppni Heimsmeistaramótsins sem fram fer í Kína á næsta ári. Leikurinn gegn tékkum hefst kl. 17:00 að íslenskum tíma en að honum loknum snýr liðið heim og undirbýr sig fyrir næsta verkefni, sem er leikur gegn Búlgörum á Laugardalsvelli mánudag- inn 27. nóvember næstkomandi. Heimaleikurinn á mánudaginn hefst kl. 19:45. kgk Tveir leikir framundan hjá karlalandsliðinu Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur samið við körfuknattleikskonuna Júlíu Scheving Steindórs- dóttur. Mun hún leika með Snæfelli í Domino‘s deild kvenna það sem eftir lifir tímabils. Júlía er tvítugur framherji, uppalin hjá Njarðvík og hefur leikið með liðinu allan sinn feril. Hún hefur hins vegar ekkert leikið með liðinu í vetur. Á síðasta ári skoraði hún fimm stig að meðaltali í Domino‘s deildinni með Suðurnesjaliðinu. Þá var hún sömu- leiðis hluti af U20 ára liði Íslands sem tók þátt í Evrópumótinu síðasta sumar. Júlía mun leika sinn fyrsta leik fyrir Snæfell í dag, miðvikudaginn 22. nóvember, þegar liðið heimsækir Keflavík. kgk Snæfell galopnaði toppbaráttu 1. deildar karla í körfuknattleik með góðum sigri á Breiðabliki, 103-99, þegar liðin mættust í spennandi leik í Stykkishólmi á sunnudag. Snæfellingar mættu ákveðnir til leiks og höfðu undirtökin í upphafs- fjórðungnum. Þeir léku góða vörn sem skilaði nokkrum stolnum bolt- um og auðveldum körfum í kjölfarið. Í stöðunni 19-11 leist gestunum ekki á blikuna og skiptu yfir í svæðisvörn. Þannig tókst þeim að minnka mun- inn í tvö stig en Snæfell átti lokaorð- ið í upphafsfjórðungnum og hafði sjö stiga forskot að honum loknum, 28-21. Breiðablik minnkaði muninn í eitt stig snemma í öðrum fjórðungi, 37-36 en Snæfellingar náðu undir- tökunum að nýju. Þeir hittu ágæt- lega úr skotum sínum og héldu gest- unum í skefjum næstu mínúturnar. En Blikar áttu lokaorðið í fyrri hálf- leik og tókst með góðri rispu að jafna metin í 51-51 og þannig var staðan í hléinu. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi síðari hálfleiks. Snæfell- ingar höfðu þó heldur undirtökin en Blikar fylgdu þeim eins og skugginn. Aldrei munaði meira en þremur stig- um á liðunum fyrstu mínútur síðari hálfleiks. Um miðjan þriðja leikhluta snerist taflið við. Blikar tóku að sér að leiða með örfáum stigum og Snæ- fellingar brugðu sér í hlutverk skugg- ans sem fylgdi þeim hvert fótmál. Gestirnir höfðu tveggja stiga forystu fyrir lokafjórðunginn, 72-74. Fjórði leikhluti var æsispennandi og reyndi heldur betur á taugar bæði áhorf- enda og leikmanna. Snæfell komst yfir í upphafi fjórðungsins og hafði tveggja stiga forystu þar til um hann miðjan. Þá komust Blikar tveimur stigum yfir en Snæfell jafnaði. Þeg- ar 90 sekúndur voru eftir af leiknum var staðan jöfn, 95-95 og sigurinn gat fallið báðu megin. Snæfell skor- aði næstu stig og var yfir, 101-99 þegar 14 sekúndur lifðu leiks. Blikar geystust upp í sókn en Snæfellingar stálu boltanum og skoruðu auðveld- lega og tryggðu sér þar með sigurinn í leiknum, 103-99. Toppbaráttan galopin Fjórir leikmenn Snæfells skoruðu meira en 20 stig í leiknum. Stiga- hæstur var Christian Covile með 31 stig, en hann tók tíu fráköst að auki og gaf fimm stoðsendingar. Reynslu- boltinn Sveinn Arnar Davíðsson var með 23 stig og sjö stoðsendingar, Þorbergur Helgi Sæþórsson 23 stig einnig og Viktor Marinó Alexand- ersson 20. Jeremy Smith var atkvæðamestur í liði gestanna með 27 stig, ellefu fráköst og fimm stoðsendingar en Árni Elmar Hrafns- son, sem lék einmitt með Snæfelli síðasta vetur, skoraði 18 stig og gaf fimm stoð- sendingar. Með sigrinum opnuðu Snæfellingar toppbaráttu deildar- innar upp á gátt. Þeir hafa tíu stig í þriðja sæti eftir fyrstu átta leiki vetrarins, jafn mörg og næstu lið fyrir neðan en tveim- ur stigum minna en Breiðablik í öðru sæti og fjórum stig- um minna en topplið Skallagríms. Næsti leikur Snæfells er gegn Vestra í Stykk- ishólmi sunnudag- inn 26. nóvember, en liðin eru einmitt jöfn að stigum í þriðja og fjórða sæti deildar- innar. kgk Snæfell vann baráttusigur á Breiðabliki Reynsluboltinn Sveinn Arnar Davíðsson var með skotsýningu í leiknum gegn Breiðabliki. Ljósm. úr safni/ sá. Snæfell fær liðsstyrk Nýjasti leikmaður Snæfells, Júlía Scheving Steindórsdóttir. Ljósm. snaefell.is. Hlynur Bæringsson til varnar í leik með landsliðinu á Evrópumótinu í Finnlandi síðastliðið haust. Ljósm. Wikimedia Commons.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.