Skessuhorn - 14.02.2018, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 14. FEbRúAR 201820
Ásta Marý Stefánsdóttir er fjölhæf
ung kona frá Skipanesi í Hvalfjarð-
arsveit, dóttir Stefáns Ármanns-
sonar og Guðfinnu Indriðadóttur.
Ásta Marý tekur á móti blaðamanni
Skessuhorns á hlaðinu í Skipanesi
einn fallegan eftirmiðdag í febrúar.
Það er bjart yfir öllu og nýfallinn
snjór þekur jörðina og útsýni yfir
stóran hluta Hvalfjarðarsveitar og
Akrafjallið er einstaklega fallegt séð
frá bæjarhlaðinu í Skipanesi. „Það
er ekki slæmt að vakna alla daga við
þetta útsýni,“ segir Ásta Marý þeg-
ar blaðamaður dáist að því hvern-
ig Akrafjallið blasir við út um stofu-
gluggann þegar komið er inn í bæ.
„Enda vil ég helst hvergi annars
staðar búa. Við systkinin gætum
mögulega byggt okkur hús á jörð-
inni. Mamma og pabbi vita að þau
losna líklega aldrei við okkur,“ bæt-
ir hún hlæjandi við.
Vélvirki og söngkona
Ásta Marý er menntuð sem vél-
virki og vinnur sem slíkur hjá véla-
verkstæðinu Vélfangi í Reykjavík.
Segja má að hún sé fædd og uppal-
in með fingurna í vélum en pabbi
hennar rekur vélaverkstæði í Skipa-
nesi. Aðspurð segist Ásta Marý þó
ekki ætla að fara að vinna hjá föð-
ur sínum eins og er. „Ég tók samn-
inginn hér hjá pabba þegar ég var
að læra en ákvað að fara að vinna
í Reykjavík eftir útskrift. Ég vann
við að smíða vélar hjá Marel í tvö
ár en er núna komin í aðeins fjöl-
breyttara starf þar sem ég er bæði
að smíða og gera við vélar og líkar
mjög vel,“ segir hún. Auk þess að
vinna í fullu starfi sem vélvirki hef-
ur Ásta Marý lagt sönginn fyrir sig
og er nemandi í söngskóla Sigurðar
Demetz. Þar lærir hún einsöng hjá
Hallveigu Rúnarsdóttur söngkenn-
ara. „Það mætti alveg segja að söng-
urinn sé mér í blóð borin. Mamma
er óperusöngkona og móðurafi
minn hefur líka alltaf sungið mikið.
Ég man í raun varla eftir afa nema
syngjandi eða raulandi. Mér er svo
sagt að ég sé eins og hann, alltaf að
raula eitthvað en ég tek ekki mik-
ið eftir því sjálf,“ segir Ásta Marý
og hlær.
Lærði að
anda upp á nýtt
„Ég hef verið í söngnámi frá því ég
var 15 ára en það var ekki fyrr en ég
fór í tíma hjá Hallveigu sem ég fór
virkilega að læra rétta tækni. Tækn-
in skiptir gríðarlega miklu máli, sér-
staklega þegar lengra er komið og
maður fer að syngja flóknari verk.
Hallveig hefur í raun kennt mér al-
veg nýja tækni og til dæmis að anda
alveg upp á nýtt, en öndunin hef-
ur heilmikið að segja um hvern-
ig röddin hljómar. Maður þarf að
kunna að anda á réttum tíma og
að anda hvorki of mikið né of lít-
ið,“ bætir Ásta Marý við og bros-
ir. Aðspurð hvernig hún skilgreini
sig sem söngvara segist Ásta Marý
ekki vilja skilgreina það sérstaklega.
„Það fer mikið eftir dagsforminu
hvað ég syng helst. Ég er mikið að
syngja óperu núna en skilgreini mig
ekki sem óperusöngkonu. Mér þyk-
ir held ég skemmtilegast að syngja
í kór og er að syngja með Mótettu-
kór Hallgrímskirkju en ég syng
mikið klassískt og hef líka gaman
að poppsöng,“ segir hún. „Ég er
einn af stofnendum Stuðbandsins
Skaramú þar sem við spiluðum ein-
göngu popplög. En við erum í pásu
núna en það væri gaman að taka upp
þráðinn við gott tækifæri. Svo syng
ég líka með sönghópnum Fjárlaga-
nefnd þar sem sungin eru klassísk
lög. Ætli það sé ekki bara hægt að
segja að ég er svona eitthvað í öllu
bara,“ segir hún og brosir.
Notar núvitund áður
en hún fer á svið
Helgina 26.-28. janúar tók Ásta
Marý þátt í söngkeppninni Vox
Domini þar sem hún stóð uppi
sem sigurvegari í framhaldsflokki.
„Þetta var í annað sinn sem keppn-
in er haldin, í fyrra var ég bara ný-
lega byrjuð í tímum hjá Hallveigu
og því enn að ná tökum á tækninni
og ekki alveg nógu vel undirbú-
in fyrir keppnina. Í ár var keppnin
með aðeins öðruvísi sniði en verkin
voru að mestu ákveðin fyrirfram. Í
fyrstu sá ég ekki fram á að taka þátt
því það var ekkert verk sem pass-
aði fyrir mína rödd. Ég sá svo eitt
verk sem ég hef sungið áður svo ég
skráði mig og það gekk svona líka
glimrandi vel,“ segir Ásta Marý og
brosir. „Ég tók fyrst og fremst þátt
í þessari keppni fyrir reynsluna.
Hallveig, kennarinn minn, skoraði
á mig að syngja hvar og hvenær sem
er og nýta hvert tækifæri sem gefst
til að koma fram því öll reynsla er
góð. Þetta er líklega eitt það mikil-
vægasta sem ég hef lært því þetta er
besta leiðin til að bæta sviðsfram-
komu og öryggi mitt á sviði, það
skiptir jú miklu máli.“ Ásta hefur
verið mjög dugleg að koma fram og
halda tónleika í heimasveit sinni.
„Mér finnst gaman að syngja hér
í Hvalfjarðarsveit, svona fyrir mitt
fólk ef svo má segja. Ég hef sungið
með borgarfjarðardætrum í Reyk-
holti og þá koma alltaf um 150
manns. borgarfjarðardætur eiga
ákveðinn aðdáendahóp sem kem-
ur alltaf og það er eitthvað sem mig
langar að búa til hér í Hvalfjarðar-
sveit. Ég hef bara verið mjög dug-
leg að sækja um styrki hjá sveitar-
félaginu og halda tónleika við hvert
tækifæri.“
Aðspurð hvort hún verði mjög
stressuð áður en hún fer á svið segir
hún svo vera. „Ég er bara mun betri
í dag að fela stressið en ég verð
oft mjög stressuð. Ég hef lært að
þekkja inn á mig og þegar ég verð
mjög stressuð hugsa ég bara: „Ég
er vön að syngja vel og ef ég klúðra
skiptir það engu máli,“ og ég nota
líka mikið núvitund rétt áður en ég
fer á svið og það hefur oft hjálpað
mér mikið, “ svarar hún.
Það sem stendur upp úr
Aðspurð hver séu eftirminnilegustu
skiptin þar sem hún hefur komið
fram og sungið segir Ásta Marý það
vera hæfileikakeppni í Heiðarskóla,
þegar hún tók þátt í söngkeppni
framhaldsskólanna á Akureyri og
framhaldsprófstónleikarnir henn-
ar úr söngnáminu. „Fyrsta skipti
sem ég kom fram er alltaf frekar
eftirminnilegt. Það var á hæfileika-
keppni í Heiðarskóla þegar ég var í
8. bekk. Ég man líka alltaf mjög vel
eftir því þegar ég söng með Álfheiði
vinkonu minni á söngkeppni fram-
haldsskólanna og svo standa upp-
úr tónleikarnir þegar ég tók fram-
haldsprófið. Þá náði stressið mér
aldrei og ég var svo einbeitt að ég
man nákvæmlega hvernig hvert orð
hljómaði og hvernig mér leið all-
an tímann. Venjulega man ég ekk-
ert eftir að ég kem af sviðinu,“ segir
Ásta Marý og bætir því við að hún
stefnir á að eiga sem flesta svona
tónleika í framíðinni.
Langar að lifa af listinni
„Ég held að ég hlusti mest á Rás
2 eða útvarp Suðurland þegar ég
er í bílnum. Ég hlusta mjög mik-
ið á gamalt rokk eins og Led Zep-
pelin, Deep Purple og fleiri göm-
ul bönd en svo hlusta ég líka mik-
ið á popptónlist. Ég hlusta líklega
minnst á tónlist sem spiluð er á FM
957 eða rapp,“ segir Ásta Marý að-
spurð hvað hún hlusti helst á í bíln-
um. „Annars þykir mér líka gaman
að hlusta bara á fræðsluþætti á Rás
1, en ég er mikill nörd í mér,“ segir
hún og hlær.
Framundan hjá Ástu Marý er að
taka þátt í sýningum á Phantom of
the Opera í Hörpu en frumsýn-
ing er næstkomandi laugardag, 17.
febrúar. „Ég syng þar ásamt nokkr-
um skólasystkinum úr Söngskóla
Sigurðar Demetz,“ segir Ásta Marý
og bætir við að hún muni líka taka
þátt í óperusýningu í skólanum í
vor. „Í apríl ætla ég svo að fara til
barcelona í prufur fyrir alþjóðlegan
kór fyrir unga söngvara. Mig langar
mikið að prófa að lifa sem listamað-
ur í eitt ár og sjá hvernig gengur. Ef
ég kemst í kórinn tekur við ferðalag
þar sem ég fæ að syngja með kórn-
um um allan heim,“ bætir hún við.
„Ef vel gengur tek ég jafnvel lengri
tíma í að lifa af listinni en ég get svo
alltaf snúið mér að vélsmíðinni aft-
ur. Ég veit ekki hvernig er að lifa
sem listamaður nema prófa og í
versta falli fer þetta bara í reynslu-
bankann,“ segir Ásta Marý að end-
ingu. arg
Söng til sigurs á Vox Domini
Vélvirkinn Ásta Marý Stefánsdóttir stefnir á að reyna að lifa af söngnum
Ásta Marý Stefánsdóttir á bæjarhlaðinu heima í Skipanesi með Akrafjallið í baksýn.
Sigurvegari í framhaldsflokki á Vox Domini söngkeppninni sem fram fór í janúar.
Ásta Marý er menntaður vélvirki og vinnur nú á vélaverkstæðinu Vélfangi í
Reykjavík.