Skessuhorn - 21.02.2018, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 20188
Vilja sálfræðiþjón-
ustu í framhaldsskóla
ALÞINGI: Þingmenn Samfylk-
ingarinnar hafa lagt fram tillögu
til þingsályktunar um sálfræði-
þjónustu í framhaldsskólum. Þar
segir m.a.: „Alþingi ályktar að
fela mennta- og menningarmála-
ráðherra að sjá til þess að frá og
með skólaárinu 2018–2019 verði
öllum nemendum í framhalds-
skólum landsins tryggt aðgengi
að sálfræðiþjónustu innan veggja
skólanna þeim að kostnaðarlausu.
Ráðherra hafi samráð við Kenn-
arasamband Íslands og Sálfræð-
ingafélag Íslands um tilhögun
þjónustunnar, m.a. um meðferð
sem veitt er, fjölda nemenda á
hvern sálfræðing og fleira.“ -mm
Aftur bilun í
Örfirisey RE
M I Ð I N :
frystitog-
arinn Örfir-
isey Re er
nú í höfn í
Hammerfest í Norður-Noregi en
þangað dró frystitogarinn Kleifa-
berg Óf skipið um liðna helgi. Þá
hafði orðið vart við enn eina bil-
unina í vélbúnaði skipsins. Her-
bert Bjarnason, tæknistjóri skipa
hjá HB Granda, segir á vef fyrir-
tækisins að ljóst sé að eitthvað hafi
misfarist þegar aðalvél Örfiriseyj-
ar var tekin upp á vegum fram-
leiðenda vélbúnaðarins fyrir ára-
mótin. Það skýri einnig bilunina
sem varð fyrir rúmri viku síðan
þegar skipið var dregið vélarvana
í haugasjó til Reykjavíkur. -mm
Vilja leggja niður
kjararáð
LANDIÐ: „Kjararáð fór í ákvörð-
unum sínum um kjör æðstu stjórn-
enda ríkisins, langt umfram við-
mið rammasamkomulags aðila
vinnumarkaðarins og stjórnvalda
frá 2015. Ákvarðanir þess voru
óskýrar, ógagnsæjar og samræmast
ekki fyrirmælum í lögum um störf
þess.“ Þannig hefst fréttatilkynn-
ing frá Alþýðusambandi Íslands
vegna málefna kjararáðs. Starfs-
hópur var skipaður til að fjalla um
málefni kjararáðs 23. janúar síð-
astliðinn. Hópurinn vill að kjar-
aráð verði lagt niður og tekið upp
nýtt kerfi sem er opið, fyrirsjáan-
legt og gagnsætt, þegar laun æstðu
stjórnenda ríkisins eru ákvörð-
uð. „einnig þarf að bregðast við
útafkeyrslu kjararáðs. ASÍ vill að
það sé gert strax og laun forseta,
ráðherra, þingmanna, ráðuneyt-
isstjóra og skrifstofustjóra verði
með lögum tekin niður sem nem-
ur útafkeyrslunni en fylgi eftir það
almennri launaþróun,“ segir í til-
kynningu. Meirihluti starfshópsins
vill að laun æðstu embættismanna
ríkisins taki engum hækkunum þar
til þau ná viðmiðum rammasam-
komulags. „frysting launa æðstu
stjórnenda ríkisins gæti varað út
árið 2018 fyrir suma en nokkur ár
fyrir þá sem fengu mesta hækkun.
ASÍ telur að með því að fara þessa
leið haldi þessi hópur ekki einasta
launum upp á 671 milljónir króna
vegna hækkana kjararáðs, sem
þegar hafa verið greidd, heldur fái
til 378 miljónir til viðbótar vegna
þessarar sömu útafkeyrslu þar til
frystingunni lýkur. Í heild munu
hækkanir kjararáðs kosta ríkissjóð
1.3 milljarða. ef tillaga ASÍ næði
hins vegar fram um lækkun á laun-
um æðstu embættismanna ríkisins
mætti spara ríkissjóði 473 milljón-
ir króna.“ -kgk
Banki kaupir í
sjálfum sér
LANDIÐ: „Arion banki hf. hef-
ur samþykkt tilboð Kaupskila ehf.,
dótturfélags Kaupþings ehf., um að
bankinn kaupi af Kaupskilum 9,5%
af útgefnu hlutafé í Arion banka.
Ákvörðunin um kaupin er í takt
við ákvörðun hluthafafundar Ar-
ion banka 12. febrúar síðastliðinn.
Þar var ákveðið að taka upp í sam-
þykktir bankans tímabundna heim-
ild stjórnar bankans til að kaupa til
baka hlutabréf útgefin af bankan-
um,“ segir í fréttatilkynningu frá
Arion banka. fyrirhugað er að upp-
gjörið fari fram í dag, miðvikudag-
inn 21. febrúar. Tilboð Kaupskila
til Arion banka er háð því að upp-
gjör hafi átt sér stað milli Kaupskila
og ríkisins varðandi nýtingu Kaup-
skila á kauprétti 13% hlutar ríkisins
í bankanum. „Hafi framangreindu
skilyrði ekki verið fullnægt á upp-
gjörsdegi, getur Kaupskil frest-
að uppgjörsdeginum um allt að tíu
daga. Komi til þess að uppgjörs-
deginum sé frestað hækkar kaup-
verð hinna seldu hluta í samræmi
við skilmála samnings Kaupskila og
íslenska ríkisins. Kaupréttur Kaup-
skila byggir á samningi við íslenska
ríkið frá 3. september 2009,“ seg-
ir í tilkynningu. Þar kemur fram að
verðið sem Arion banki greiðir er
90,087 krónur á hlut. er það sama
verð og Kaupskil greiðir íslenska
ríkinu við nýtingu kaupréttarins.
„Heildarkaupverð er rúmlega 17,1
milljarður króna og kemur sú upp-
hæð til frádráttar arðgreiðslu sem
samþykkt var á hluthafafundinum
12. febrúar og getur að hámarki
verið 25 milljarðar króna.“ -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 10.-16. febrúar
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 17.220 kg.
Mestur afli: eskey Óf: 10.994 kg
í tveimur róðrum.
Arnarstapi: 1 bátur.
Heildarlöndun: 3.535 kg.
Mestur afli: Rán SH: 3.535 kg í
einum róðri.
Grundarfjörður: 5 bátar.
Heildarlöndun: 196.903 kg.
Mestur afli: Hringur SH: 67.554
kg í einni löndun.
Ólafsvík: 18 bátar.
Heildarlöndun: 636.228 kg.
Mestur afli: Kristinn SH: 71.138
kg í fimm róðrum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 645.112 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH: 107.380
kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur: 4 bátar.
Heildarlöndun: 119.517 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH: 105.445
kg í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH - GRU:
67.554 kg. 13. febrúar.
2. Rifsnes SH - RIF:
65.887 kg. 13. febrúar.
3. Tjaldur SH - RIF:
57.648 kg. 16. febrúar.
4. Örvar SH - RIF:
49.736 kg. 15. febrúar.
5. Tjaldur SH - RIF:
49.732 kg. 10. febrúar.
-kgk
Það er ekki oft sem tjöld
sjást á þessum árstíma hér á
landi. engu að síður hafði
verið slegið upp tjaldi á bíla-
stæðinu Við Hafið Guest-
house í Ólafsvík í síðustu
viku þegar eigendur mættu
til vinnu. Daginn áður höfðu
þrír ungir Ísraelsmenn sem
eru á ferðalagi hér á landi
komið til Ólafsvíkur. Tveir
þeirra keyptu sér gistingu
á gistiheimilinu en sá þriðji
ætlaði að gista í litlum bíla-
leigubíl sem þeir voru á.
Hann ákvað svo að tjalda um
nóttina á milli tveggja bíla
á bílastæðinu. Var honum
boðið að koma inn í morg-
unmat um morguninn en af-
þakkaði. Hann kom svo inn
um tveimur tímum seinna.
Sagðist hann hafa sofið mjög
vel en það eina sem hafi
truflað hann hafi verið þeg-
ar snjóruðningstækin fóru
að moka um klukkan hálf sjö
um morguninn.
þa
Tjaldað í kafaldsbyl
Á dögunum var ný vefsíða sett í
loftið í gegnum vef Dalabyggð-
ar. Um er að ræða síðu Dalaveitna,
sem er fjarskiptafélag sem sér um
lagningu og rekstur ljósleiðarakerf-
is í sveitarfélaginu. Þar geta íbúar
fylgst með framgangi ljósleiðara-
verkefnisins, lesið sér til um hvað
hefur verið gert og hvað er fram-
undan á árinu 2018.
Þar kemur meðal annars fram
að vegna óvæntra aðstæðna í öðr-
um verkum verktakans Lás ehf.
hafi tafir orðið á upphafi plæging-
ar ljósleiðara um Skógarströnd og
Hörðudal. Plægt var út október
en þá varð að hætta vegna veðurs.
Af þeim sökum vantar stofninn úr
Búðardal í Hörðuból til að geta
virkjað tengingarnar þar sem þeg-
ar er búið að plægja. Þó er hægt
að virkja nokkrar tengingar yst á
Skógarströnd sem hafa tengimiðju í
Stykkishólmi. Unnið er að frágangi
þeirra um þessar mundir og í vetur
verður tengt í brunnum og tengi-
kassar settir upp þar sem strengur-
inn er kominn inn í hús.
Í vetur fékk Dalabyggð styrk
úr fjarskiptasjóði að verðmæti 51
milljón króna til tengingar í sveit-
arfélaginu öllu, að undanskilinni
Skarðsströnd og ytri hluta fells-
strandar. Í lok þessa árs mun Dala-
byggð sækja um styrk til lagningar
ljósleiðara á þeim svæðum sem eftir
eru. kgk
Heimasíða opnuð um
ljósleiðaraverkefni Dalabyggðar
Plægt fyrir ljósleiðara á Erpsstöðum í Dölum sl. haust.
Ljósm. fengin af heimasíðu Dalaveitna.
Að vanda voru verkefni lögregl-
unnar á Vesturlandi af ýmsum toga
um liðna helgi. Síðustu þorra-
blót ársins voru haldin og fóru vel
fram og án teljandi afskipti lög-
reglu. Vinkonur skelltu sér í sund
í Bjarnalaug á Akranesi, utan opn-
unartíma, og var lögregla fengin
til að vísa þeim úr lauginni. Þá var
nokkuð um vegfarendur sem fest
höfðu ökutæki sín í snjó víða um
starfssvæðið.
Umferðaróhöpp settu einnig
svip sinn á helgina en helst ber að
nefna, samkvæmt dagbók lögreglu,
að bifreið var ekið utan í vegg í
Hvalfjarðargöngunum. Þá varð
bílvelta á Vatnaleið á Snæfells-
nesi og árekstur tveggja ökutækja
á vegamótum á Akranesi. ekki
urðu alvarleg slys á fólki í þessum
óhöppum en talsvert eignatjón.
Lögreglan á Vesturlandi hafði
afskipti af fjölda ökumanna við
hefðbundið eftirlit um helgina.
einn ökumaður sem stöðvað-
ur var í Borgarnesi reyndist vera
sviptur ökuréttindum auk þess að
vera undir áhrifum fíkniefna. Við
hraðamælingar voru fjórir öku-
menn kærðir fyrir að aka of hratt
innanbæjar í Borgarnesi þar sem
leyfilegur hámarkshraði er 50 km/
klst. Sá sem hraðast ók mældist á
89 km hraða. Loks var ökumaður
stöðvaður rétt norðan við Borgar-
nes þar sem hann ók bifreið sinni
á 147 km hraða. Hann reyndist
einnig ölvaður og var sviptur öku-
réttindum ævilangt.
mm
Helgarverkefni lögreglu
af ýmsum toga