Skessuhorn - 21.02.2018, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 21. feBRúAR 201818
flestir Vestlendingar ættu að vera
farnir að kannast við Höllu Ólafs-
dóttur, fréttaritara RúV fyrir Vest-
urland og Vestfirði. Það sem sumir
hafa þó ekki gert sér grein fyrir er
að hún hefur einnig gert efni fyrir
Landann, skemmtilegt og fræðandi
efni fyrir útvarp og heimildamynd-
ir. Blaðamaður Skessuhorns bjallaði
í Höllu á Ísafirði þegar hún var ný-
komin úr saltkjötsveislu hjá tengda-
foreldrum sínum. Halla hefur upp á
síðkastið flutt landsmönnum fréttir
af slæmu veðri á Vestfjörðum, mik-
illi snjókomu þar vestra, enda hef-
ur hver óveðurslægðin á fætur ann-
arri gengið yfir landið. „Það er ótrú-
lega fallegt veður hérna núna,“ segir
Halla þegar blaðamaður innir hana
eftir veðurskilyrðum á Vestfjörðum.
„Stillt og rólegt og allt þakið snjó.“
Landshornaflakkari og
áhugakona um fólk
Halla býr í tæplega tvö hundruð ára
gömlu húsi, svokölluðu Messíönu-
húsi, sem stendur á eyrinni á Ísa-
firði. „Ég veit ekkert hversu gam-
alt það er, en það er hundgamalt,“
segir Halla og bætir við að hún hafi
keypt það með tvíburasystur sinni,
Védísi, stuttu eftir að hún flutti á
Ísafjörð. „Hún kom inn í þetta sem
nokkurs konar fjárfestir.“ Védís býr
í Jórdaníu þar sem hún starfar fyrir
flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð-
anna fyrir Palestínumenn en Halla
býr í húsinu með kærastanum sínum
Óskari erni Hálfdánarsyni, sem svo
heppilega vill til að er frá Ísafirði.
Halla er með meistaragráðu frá
freie Universität í Berlín í sjón-
rænni- og fjölmiðlamannfræði. „Það
snýr að því að nota aðferðafræði
mannfræðinnar til að miðla efni í
gegnum sjónræna miðla,“ útskýrir
hún. Þá ver hún miklum tíma með
viðfangsefninu og reynir að hafa
ekki áhrif á það. „Þú ert ekki með
fyrirfram gefnar hugmyndir um hver
lokaafurðin verður.“ Halla segir að
menntunin hafi reynst henni mjög
vel í starfinu sem fréttaritari og dag-
skrárgerðarmaður. Hún hafi óþrjót-
andi áhuga á samfélaginu, fólki og
sögum af því.
Þótt Halla hafi að mestu verið alin
upp í Árbænum í Reykjavík hefur hún
aldrei vílað fyrir sér að flytja, hvort
sem það er stutt eða langt. foreldrar
hennar eru líffræðingar sem flökk-
uðu um landið öll sumur með þær
tvíburasystur og stóru systur þeirra,
Melkorku. „Ég er ekkert óvön því
að eiga „heima“ í tjaldi eða flakka á
milli landa.“ Í æsku bjó hún í Banda-
ríkjunum og Kanada með foreldrum
sínum. Þá fór hún sem skiptinemi til
Perú og bjó þar í eitt ár, fór til frakk-
lands í hálft ár eftir menntaskóla og
svo þrjú ár í Þýskalandi. Þá varði hún
þremur mánuðum í Sádi Arabíu, þar
sem hún starfaði sem flugfreyja, og
þremur mánuðum á Grænlandi þar
sem hún vann að meistaraverkefni
sínu. Það sé því tiltölulega auðvelt að
aðlagast samfélaginu á Ísafirði. Hún
tali að minnsta kosti tungumálið og
skilji hvernig samfélagið virkar.
Á leið austur en
endaði á Vestfjörðum
Leiðin á Ísafjörð var nokkuð óvænt.
Halla útskrifaðist með meistara-
gráðuna sína haustið 2013. Ári síð-
ar, eftir að hafa búið í þrjú ár í Berl-
ín, kom hún heim um sumar til að
starfa sem landvörður á hálendinu.
Halla starfaði í Hvannalindum, vin
í eyðimörk miðhálendisins norðan
Vatnajökuls, og hafði aðsetur í litlu
húsi þar sem stöku ferðamaður kom
við. „Ég ætlaði út aftur eftir sumar-
ið en ákvað að skrifa status á facebo-
ok og athuga hvort einhver vildi ráða
mig í vinnu. Svo reyndist vera svo ég
sneri ekki aftur til Berlínar – ekki
allavega til að búa þar. eftir einn
vetur í hinum og þessum verkefnum
sem og mínum eigin sá ég auglýs-
ingu fyrir störf fréttaritara á Suður-
landi, Austurlandi og Vesturlandi og
Vestfjörðum og ég sótti um.“ Halla
taldi sig vera á leið austur þegar
henni var boðið starf á Vesturlandi
og Vestfjörðum. „Ég var hvort eð er
ekki búin að koma mér almennilega
fyrir eftir að ég kom heim frá Berl-
ín. Reykjavík hafði breyst mikið á
þeim tíma sem ég hafði verið í burtu
svo mér fannst ég ekkert eiga frek-
ar heima þar en annarsstaðar,“ segir
Halla sem velti tilboðinu ekki frekar
fyrir sér og var því í september 2015
komin í stöðu sem fréttaritari RúV
á Vesturlandi og Vestfjörðum með
starfsstöð á Ísafirði.
Samstaða með
starfsfélögum
„Það voru rosalega margir bún-
ir að vara mig við því að að þetta
yrði mjög erfitt. einhver sagði mér
að það hefði einhvern tímann ver-
ið hrækt á fréttaritara RúV í bak-
arínu,“ segir hún og hlær, þótt hún
viti ekki hvort þar sé eitthvert sann-
leikskorn að finna. Halla segir að
henni hafi almennt verið tekið mjög
vel. „Það hefur allavega ekki verið að
hrækt á mig í bakaríinu.“ Hún við-
urkennir þó að umfjöllun um sum
mál geti verið erfið vegna nálægð-
arinnar við lítið samfélag. „Maður
þarf stöðugt að skerpa gestsaugað og
velta fyrir sér fréttagildinu. Og um
leið hvort efnið eigi erindi til allra.
Þá finnst mér líka mjög mikilvægt að
skerpa sífellt á hlutverki mínu sem
fréttamanns, sem er ekki að vera al-
mannatengslafulltrúi fyrir fjórðung-
inn, þótt auðvitað þyki mér vænt um
landið eins og öðrum íbúm þess.
Ég tel lykilinn felast í fölbreyttum
fréttaflutningi.“
Stór hluti af fréttamennsku felst í
því að ræða hugmyndir við samstarfs-
félaga. Næstu samstarfsmenn Höllu
eru í öðrum umdæmum, á Norður-
landi og í Reykjavík. „Mér finnst ég
oft eyða miklum tíma í eintal við
sjálfa mig. Að ræða hlutina sjálf,“
segir hún. „Stundum hjálpar bara að
segja hugmyndirnar upphátt við ein-
hvern.“ Hún tekur þá upp símtólið
og hringir í næstu umdæmi.
Vesturland og Vestfirðir er stórt
umdæmi til að hafa umsjón með frá
Ísafirði. Halla segir að það sé áskor-
un að ná yfir allt svæðið. „Við reyn-
um samt að hjálpast að með þetta.
Ég vil alls ekki að fólki á svæðinu
finnist á sig hallað,“ segir hún en
auðvitað vilji hún gera betur. Svig-
rúmið sé þó takmarkað og frétta-
stofan leitar leiða til að sinna svæð-
inu betur. fréttastofan í Reykjavík
reynir til dæmis að sinna Akranesi
og því svæði sem er næst höfuð-
borginni. „Það tekur mig fimm
klukkutíma að komast á Akranes,
en þau fjörutíu mínútur. Svo er
þetta enn erfiðara á veturna.“ Sam-
starfið er því mikið og allir tilbúnir
að hjálpast að. „Við landsbyggðar-
fréttaritararnir höfum líka reynt að
hjálpast að með þau svæði sem eru
ekki í næsta umhverfi. en ég reyni
að vera hið vakandi auga og fylgjast
með umdæminu. Þá auðvelda hér-
aðsmiðlarnir okkur vissulega frétta-
öflun.“
Þrír mánuðir
á Grænlandi
Halla gerði meistaraverkefni sitt á
Grænlandi. „Grænlandi, sem er svo
nálægt okkur, en samt eitthvað svo
fjarlægt,“ segir hún. Alls varði Halla
þremur mánuðum á nágrannaeyj-
unni. „Ég vann verkefnið mitt mest
í lítilli búð í Tasiilaq á austurströnd
Grænlands. Búð sem seldi allt. Bók-
staflega allt. Hún var rekin af konu
sem lést fyrir nokkrum mánuðum.
Konu sem var danskur karlmaður
þegar hún flutti til Grænlands en
settist að í Tasiilaq og opnaði bóka-
búð sem var líka ísbúð, internet-
kaffihús, barnafataverslun og sam-
komustaður. Hún reyndi að sinna
öllu því sem þörf var á í bænum. Ég
var þarna fluga á vegg í mánuð.“ Af-
raksturinn af vinnunni varð heim-
ildarmynd sem heitir Bækur með
remúlaði og varpar ljósi á einn dag
í þessari búð. „Ég hef svo farið einu
sinni aftur til Grænlands og gerði
þá nokkrar fréttir um íbúa Tasiil-
aq og Kulusuk fyrir fréttastofuna í
leiðinni.“
Halla fann fljótt að menningar-
heimur Íslendinga og Grænlend-
inga er mjög ólíkur. „Mér fannst ég
ekki almennilega geta sagt sögur úr
samfélaginu nema með því að skilja
það. Til þess þyrfti ég mjög lang-
an tíma í tilfelli Grænlands. Mað-
ur getur sagt miklu dýpri sögur af
eigin samfélagi,“ segir Halla. eftir
að námi lauk gerði Halla heimild-
armyndina Á sama báti sem er um
ævintýraferð Snædísar Ránar Hjart-
ardóttur ásamt sjö öðrum konum til
Kanada haustið 2014. Snædís glím-
ir við illvígan taugahrörnunarsjúk-
dóm sem veldur því að hún er bæði
hreyfihömluð og daufblind. Myndin
var frumsýnd á RúV í janúar.
Þegar rætt er við Höllu virðist
hún vera búin að koma sér nokkuð
vel fyrir á Ísafirði. Hún segir að fá-
mennið fái ekki á hana. „Ég eyddi
heilu sumri í eins manns skála á há-
lendinu,“ segir hún kímin, en bætir
þó við að það hafi verið nokkur við-
brigði við dvölina í Berlín. Hún mun
halda áfram að hafa vakandi auga
með Vesturlandi og Vestfjörðum og
flytja tíðindi af landssvæðinu.
klj
„Maður þarf stöðugt að skerpa gestsaugað“
Halla Ólafsdóttir, fréttaritari RÚV á Vesturlandi og
Vestfjörðum, hefur vakandi auga með umdæminu
Halla við tökur fyrir Landann með Jóhannesi Jónssyni, myndatökumanni RÚV fyrir vestan.
Óskar og Halla í Wadi Rum í Jórdaníu að heimsækja tvíburasystur Höllu, Védísi.
Messíönuhús á Ísafirði sem Halla keypti í félagi við systur sína. Halla býr í húsinu
með kærastanum sínum Óskari.