Skessuhorn


Skessuhorn - 28.02.2018, Qupperneq 16

Skessuhorn - 28.02.2018, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 201816 Um liðna helgi fór fram 54. ársþing Glímusambands Íslands þar sem ljóst var að nýr formaður myndi taka við þar sem sitjandi formað- ur, Ólafur Oddur Sigurðsson, ætl- aði ekki að gefa kost á sér áfram. Þau Svana Hrönn Jóhannsdótt- ir úr Hörðudal í Dölum og Sig- urjón Leifsson gáfu kost á sér til formanns og sigraði Svana Hrönn í kosningunni með 18 atkvæðum gegn þremur. Er þetta í fyrsta sinn sem kona verður formaður Glímu- sambandsins. „Þetta eru virkilega spennandi tímar og ég hlakka til að takast á við þetta verkefni,“ seg- ir Svana Hrönn þegar blaðamaður Skessuhorns heyrði í henni hljóðið eftir helgina. „Það má segja að kyn- slóðaskipti hafi átt sér stað í stjórn- inni og var nokkuð ljóst á fundin- um að fólk vill breytingar. Kynja- hlutföllin breyttust líka töluvert en áður voru aðeins karlar í stjórn en nú skipa fjórar konur og einn karl aðalstjórn. Sjálfri þætti mér ákjós- anlegast að kynjahlutföllin væru jöfn en þar sem varastjórn er skip- uð körlum tel ég þessa niðurstöðu nokkuð góða,“ bætir Svana Hrönn við. Svana er vel kunnug glímustarf- inu en hún hefur sjálf náð fram- úrskarandi árangri í glímu þar sem hún hefur meðal annars unn- ið freyjumenið sex sinnum. Hún tók við starfi íþrótta- og tóm- stundafulltrúa í Dalabyggð fyrir rétt tæpum tveimur árum en læt- ur af því starfi um mánaðamótin. „Ég er ekki að fara úr Búðardal og mun áfram starfa á þessu sviði, í íþróttum. Ég hef næg verkefni sem ég hef ekki haft tækifæri til að sinna og ætla fara að einbeita mér að þeim. formannsstarfið er líka töluverð vinna og mörg verkefni sem bíða mín þar. Ég vil líka efla starfið enn frekar og það eru mjög spennandi tímar framundan,“ seg- ir Svana Hrönn. arg Svana Hrönn er nýr formaður Glímusambands Íslands Svana Hrönn Jóhanns- dóttir fyrsta konan til að verða kjörin formaður Glímusambands Íslands. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Bræðurnir Ómar og fannar Helga- synir opnuðu vefverslun árið 2016 þar sem þeir selja kajaka og annan búnað sem því sporti fylgir. Versl- unin fékk nafnið Ósinn eftir æsku- heimili þeirra bræðra, Ósi í Hval- fjarðarsveit. „Þetta eru ekki þess- ir hefðbundnu lokuðu kajakar sem margir þekkja, heldur erum við að selja svokallaða „sit on top“ kajaka. Þeir eru opnir og hafa mun meiri stöðugleika heldur en þessir hefð- bundnu og eru því hentugri fyr- ir hinn venjulega notanda,“ seg- ir fannar þegar blaðamaður hitti hann í lok síðustu viku. Kajakar að verða vinsælli á Íslandi „Við bræður erum báðir miklir veiðimenn og okkur langaði í ka- jaka til að nota til veiða og feng- um algjöra dellu fyrir þessu. Okk- ur þótti úrvalið á Íslandi mjög tak- markað og verðið of hátt svo við fórum að skoða báta erlendis. fljótlega vorum við svo farnir að flytja inn Polar báta sem eru fram- leiddir í Kína: Það eru mjög fín- ir bátar fyrir þá sem eru að byrja. Seinasta haust fórum við einnig að flytja inn feelfree báta, sem er eitt stærsta kajakmerkið í Bandaríkj- unum en þar eru menn mjög langt komnir hvað varðar gæði. Núna erum við líka komnir með Wild- erness báta sem hafa pedalabún- að,“ segir fannar og bætir því við að vinsældir kajaka séu að aukast mjög hratt núna á Íslandi og salan hafi gengið vonum framar. „Við seldum um 240 kajaka á síð- asta ári og þetta ár fer mun betur af stað. Skagamenn eru að koma sér- staklega sterkir inn enda aðstæður mjög góðar hér við Langasand til að sigla á kajak. Kajakarnir með pedalabúnaðinum eru að verða mjög vinsælir og stefnum við á að auka úrvalið af þeim og vera með svoleiðis kajaka frá bæði Wildern- ess og feelfree. Með pedölunum getur fólk komist mun lengra og farið hraðar, svo gefa þeir manni líka mjög góða hreyfingu og sterk læri,“ segir fannar og brosir. Fólki velkomið að prófa Ómar og fannar búa báðir á Akra- nesi þar sem þeir eru einnig með aðstöðu fyrir kajakverslunina. „Við getum því miður ekki átt ka- jaka á lager fyrir fólk, en erum hér með litla aðstöðu og erum alltaf tilbúnir að taka á móti fólki sem vill skoða eða prófa. fólk pantar bátana í forsölu en það er aldrei löng bið eftir næstu sendingu. Með því að gera þetta svona þurf- um við minni yfirbyggingu og getum haft verðið lægra,“ seg- ir fannar. Aðspurður hverjir það eru sem kaupi helst kajaka segir hann það vera fólk á öllum aldri. „Þetta eru bátar sem henta mjög vel í veiði, hvort sem er á sjó eða í vötn og ár, og við seljum líka all- an veiðibúnað fyrir kajakana okk- ar. Með því að nota kajaka er hægt að lengja veiðitímabilið og fjölga veiðimöguleikum töluvert,“ seg- ir fannar. „Kajakar eru ekki bara fyrir þá sem eru í veiði heldur líka fyrir þá sem vilja bara njóta nátt- úrunnar og fá góða hreyfingu. Ka- jakarnir sem við erum að selja eru mjög stöðugir og öruggir. fólk á ekki að geta velt þeim auðveldlega, nema veðrið sé mjög slæmt, en þá ætti líka enginn að fara út á ka- jak. Það skiptir bara mestu máli að fólk beri virðingu fyrir náttúrunni, sé vel búið og alltaf er nauðsyn- legt að kynna sér veðurspá áður en haldið er út á sjó eða vatn,“ segir fannar að endingu. arg/ Ljósm. úr einkasafni Flytja inn og selja kajaka sem henta öllum Kajakarnir sem seldir eru í Ósnum eru opnir og mun stöðugri en þessir hefðbundnu lokuðu kajakar sem margir þekkja. Bræðurnir Ómar og Fannar Helgasynir reka vefverslunina Ósinn, þar sem þeir selja kajaka. Kajakarnir sem þeir bræður selja henta mjög vel í veiði.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.