Skessuhorn


Skessuhorn - 28.02.2018, Page 19

Skessuhorn - 28.02.2018, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 2018 19 að ára hefur þurft að taka breyting- um í tímans rás í takti við þarfir at- vinnulífsins. fram til 1990 var skól- inn deild innan Sambands íslenskra samvinnufélaga og í eigu þess. frá 1990 hefur skólinn verið sjálfseign- arstofnun. „Öflugustu fyrirtæki hafa reynst hverful,“ minnti Vilhjálmur á, „og á sviði menntunar hafa breyt- ingar orðið örar. Við á Bifröst höf- um orðið að breyta þessum skóla ört og þannig verður það áfram. Stærst var breytingin hugsanlega 1988 þeg- ar Samvinnuháskólinn var stofnaður og hækkaði þar með um eitt mennt- astig úr því að vera framhaldsskóli yfir í að vera háskóli. Árið 2000 er nafni hans breytt í Viðskiptaháskóla og óx skólinn gríðarlega hratt eftir aldamótin, bætti við sig meistara- námi, námsgreinar breyttust og nýj- um sviðum var bætt við. frá árinu 2006 hefur skólinn borið nafnið Há- skólinn á Bifröst.“ Vilhjálmur rifjaði upp að miklar breytingar urðu óhjá- kvæmilega eftir bankahrunið 2008 þegar þrengdi að rekstri skólastofn- ana víðsvegar um landið. farið var að ræða um sameiningar háskóla, fjarnám var aukið og þverfaglegt nám sömuleiðis. Á erfiðleikatímum hafi bæði hollvinafélag og heima- menn í Borgarfirði tekið höndum saman þegar sýnt þótti að tæpt yrði með áframhaldandi tilurð skóla- halds á Bifröst. Skóli mun alltaf taka breytingum „Skóli sem þarf að lifa þarf einfald- lega að taka stöðugum breytingum og þróast í takti við strauma þjóð- lífsins,“ sagði Vilhjálmur. Rifjaði hann upp að á síðasta ári var t.a.m. farið í viðamikla stefnumótun fyrir skólann og greindi frá helstu niður- stöðum þeirrar vinnu í ræðu sinni. „Meðal niðurstaðnanna var að skil- greina Háskólann á Bifröst sem við- skiptaháskóla en halda nafni skólans óbreyttu. Að Bifröst sé fyrsti kostur staðsetningar fyrir skólann og ekk- ert frumkvæði verði haft að flutningi hans. Haldið verði áfram að vera í fararbroddi í fjarnámi og þróað nýtt námslíkan fyrir nemendur búsetta á Bifröst. Auk þess verður horft til aukins samstarfs við aðrar háskóla- stofnanir og sótt fram á alþjóðavett- vangi,“ sagði Vilhjálmur og benti á að á síðasta hausti hafi 570 nem- endur verið skráðir í nám við skól- ann. „Það er býsna góður árangur og varnarsigur þessa skóla ef mið er tekið af því sem á undan hefur geng- ið. Hér hefur verið samfelld viðleitni til breytinga. Háskólanám hér er 30 ára og skólinn að grunni hundrað ára. Slíkur árangur hefði aldrei náðst hefðu menn horfið frá því upphaf- lega markmiði að skólinn rækti það hlutverk að mennta fólk til forystu í atvinnulífinu. Það hefur að mínu mati tekist og lýsir sér kannski best þegar við sjáum glampann í augum fyrrum nemenda þegar þeir sækja heim gamla skólann sinn. Þessi Bif- rastarglampi, sem erfitt er að lýsa nema fyrir þá sem til þekkja. Héð- an hefur fólk minningar um ánægju- lega, gefandi og uppbyggjandi tíma, þar sem fólk upplifði kafla skrifaðan í lífi sínu sem það einatt bjó að eftir að hafa hér numið og dvalið,“ sagði Vilhjálmur. Fólk mun verða að nema alla tíð Að endingu sagði rektor í erindi sínu að sú sviðsmynd að fólk settist á skólabekk 6 ára og lyki háskóla- prófi eftir samfellda skólagöngu á þrítugsaldri væri tímanna tákn. Störf munu áfram hverfa og önnur koma í staðinn. fólk verður því að nema allt sitt líf. Við þurfum því að bjóða upp á sveigjanlegan skóla og uppfylla stöðuga nýsköpunarþörf. Skóli á Bifröst verður hér eftir sem hingað til öðruvísi skóli sem leggja mun áherslu á einstaklinginn en ekki kennitölur,“ sagði rektor að endingu. mm Snæbjörn Gíslason verkamaður á Akranesi varð 100 ára í síðustu viku, 22. febrúar. Hann hefur síð- ustu árin búið á hjúkrunar- og dval- arheimilinu Höfða og er við þokka- lega heilsu miðað við aldur og fyrri störf. Snæbjörn fylgist vel með og mætir í mat á hverjum degi; „þótt hann gefi sér varla tíma til þess núna þessa dagana, hann er svo spenntur að fylgjast með Vetrarólympíuleik- unum í sjónvarpinu,“ sagði starfs- maður Höfða sem Skessuhorn ræddi við. Snæbjörn þvertekur fyrir að njóta athygli fjölmiðla þrátt fyrir áfangann, en veislukaffis var notið á afmælisdaginn með ættingjum. Snæbjörn er fæddur á Litla- Lambhaga í Skilmannahreppi 22. febrúar 1918, sonur Gísla Gísla- sonar bónda og kennara og Þóru Sigurðardóttur. Hann átti sjö systk- ini sem sum hafa náð háum aldri. Kristín systir hans er orðin 96 ára, Elísa varð 96 ára og Þórður 97 ára. Snæbjörn giftist ekki og á ekki börn, en systkinabörn hans fylgjast með honum. Snæbjörn starfaði við byggingavinnu en var lengstan sinn starfsaldur hjá HB&Co. fyrir rúm- um fjórum árum flutti Snæbjörn á Höfða. mm Hundrað ára og upptekinn að fylgjast með Vetrarólympíleikunum Þessi mynd er frá 1965. Þarna eru bræðurnir Þórður t.v. og Snæbjörn Gíslasynir að útbúa saltskammta fyrir síldarsöltun á eyrinni. Ljósm. Haraldarhús. Snæbjörn Gíslason við beykisstörf á eyrinni og mundar hér dixil árið 1980. Síldin var send á Rússlandsmarkað. Ljósm. Haraldarhús. Haraldur Benediktsson þingmaður og Vilhjálmur Egilsson rektor á tali.Jón Sigurðsson og Þorvaldur T Jónsson á tali saman. Meðal gesta voru Dröfn Viðarsdóttir, Ágústa Elín Ingþórsdóttir, Guðveig Eyglóardóttir og Lilja Alfreðsdóttir. Sigrún Jóhannesdóttir, Sirrý Arnardóttir og Geirlaug Jóhannsdóttir. Merki SÍS er greypt í gólf anddyris gamla skólans. Lengi vel eftir að SÍS hætti starfsemi og háskólinn varð sjálfseignarstofnun var merkið vel varið undir teppi. Nú hefur það að nýju verið gert sýnilegt. Prýðilega var mætt. Jón Sigurðsson fyrrum rekstor er þarna út við vegg að svara fyrirspurnum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.