Skessuhorn


Skessuhorn - 28.02.2018, Page 26

Skessuhorn - 28.02.2018, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 28. fEBRúAR 201826 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Fylgist þú með Söngvakeppni Sjónvarpsins, undankeppni Eurovision? Spurni g vikunnar (spurt á Akranesi) Óskar Þór Þórðarson Nei, hef heyrt lögin í útvarpinu en hef ekki fylgst með. Sigurósk Sunna Magnúsdóttir Nei, hef ekki gert það þetta árið. Emilía Ólafsdóttir Já, ég geri það. Ásgeir Kristinsson Já. Birna Pálsdóttir Nei. Knattspyrnufélagið Víkingur Ólafs- vík hefur samið við spænska mark- vörðinn francisco Miguel Marmo- lejo Mancilla um að spila með lið- inu í sumar. francisco, sem er öfl- ugur markvörður, er þrítugur að aldri. Hann spilaði seinast með liði Jönköping í Svíþjóð þar sem hann var liðsfélagi Árna Vilhjálmsson- ar. „Víkingur Ó. lýsir yfir mikilli ánægju með að hafa náð samning- um við leikmanninn og býður hann velkominn til félagsins,“ segir Þor- steinn Haukur Harðarson fram- kvæmdastjóri Víkings. mm Spænskur markvörður til Víkings Starfið hjá Karatefélagi Akraness (KAK) hefur verið öflugt í vetur en hjá félaginu æfa um 40 iðkend- ur í þremur flokkum. Sunnudag- inn 25. febrúar tóku tveir iðkendur frá KAK þátt í fyrsta Bushido móti ársins, en það er mótaröð fyrir ung- menni, haldin af Karatesambandi Ís- lands. Þau Kristrún Bára Guðjóns- dóttir og Ólafur Ían Brynjarsson hömpuðu bæði bronsverðlaunum í KATA í sínum aldurshópi. Eydís Líndal formaður KAK segir æfingar félagsins alla jafnan fara fram í kjall- ara íþróttahússins að Vesturgötu en þegar vel viðrar sé ekkert því til fyr- irstöðu að færa æfingar utandyra. Þá er áherslan á aðra þætti svo sem „að harka af sér“. mm/ Ljósm. elf. Öflugt starf hjá Karatefélagi Akraness Þessi mynd af Kristni var tekin á æfingu nýverið, en þegar stund gafst milli stríða vegna veðurs var farið upp að Akrafjalli. Kristrún og Ólafur, verðlaunahafar á mótinu um liðna helgi. Skallagrímur vann sigur á Gnúpverj- um, 95-96, í miklum spennuleik í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í fagralundi á sunnudag. Gnúp- verjar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 9-0 áður en Borgnesingar komust á blað. Skallagrímsmenn voru ekki lengi koma sér upp að hlið gestanna eftir að þeir skoruðu fyrstu stigin sín. Seint í upphafsfjórðungn- um höfðu þeir jafnað metin í 18-18 og komust síðan yfir áður en leik- hlutinn var úti, 25-28. Gnúpverj- ar náðu forystunni í upphafi annars leikhluta en Skallagrímsmenn hrifs- uðu hana til sín aftur skömmu síð- ar. Að nýju komust heimamenn yfir og leiddu allt til loka fyrri hálfleiks, 52-46. Skallagrímsmenn komu ákveðn- ir til leiks eftir hléið. Þeir tóku for- ystuna snemma í þriðja leikhluta og höfðu yfirhöndina í leiknum. Að loknum þriðja leikhluta hafði Skalla- grímur níu stiga forystu, 67-76. En Gnúpverjar voru ekki á því að leggja árar í bát. Þeir vörðu fjórða leikhluta í að kroppa hvert stigið af fætur öðru af forskoti Skallagríms. Þegar fjórar mínútur lifðu leiks munaði aðeins fjórum stigum á liðunum. Gnúp- verjar komust yfir með tæpa eina og hálfa mínútu á klukkunni en Skalla- grímsmenn svöruðu í sömu mynt. Borgnesingar gerðu engin mistök á lokamínútunni og sigldu heim eins stigs sigri, 95-96. Aaron Parks átti stórleik fyr- ir Skallagrím, skoraði 46 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsend- ingar. Eyjólfur Ásberg Halldórs- son var með 20 stig, 13 fráköst og fimm stoðsendingar og þeir Krist- ófer Gíslason og Davíð Guðmunds- son skoruðu ellefu stig hvor. Everage Lee Richardsson dró vagninn í liði Gnúpverja. Hann átti stórleik, skoraði 44 stig, tók ellefu fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum sex sinnum. Gabrí- el Sindri Möller skoraði 24 stig en aðrir höfðu minna. Skallagrímur styrkti með sigr- inum stöðu sína á toppi deildar- innar. Borgnesingar hafa 36 stig í fyrsta sæti og hafa sex stiga forystu á næstu lið. Næsti leikur Skallagríms er Vesturlandsslagur gegn Snæfelliá morgun, fimmtudaginn 1. mars. Sá leikur fer fram í Borgarnesi. kgk Skallagrímur vann Gnúpverja naumlega Aaron Parks átti stórleik gegn Gnúpverjum. Ljósm. úr safni/ kgk. Snæfell vann öruggan sigur á ÍA, 108-80, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnu- dag. Leikið var í Stykkishólmi. Snæfell hóf leikinn af krafti og komst í 14-5 þegar upphafsfjórð- ungurinn var hálfnaður. Skaga- menn minnkuðu muninn í 17-10 en Snæfell svaraði með góðum kafla og leiddi 28-14 að loknum fyrsta leikhluta. Skagamenn héldu í við Hólmara stærstan hluta annars leikhluta. Snæfell hafði áfram þægi- lega forystu en hún óx ekki að ráði fram að hléinu. Heimamenn leiddu með 18 stigum í hálfleik, 55-37. framan af síðari hálfleik náðu Skagamenn að kroppa örfá stig af forystu Snæfells. Það var síða und- ir lok þriðja leikhluta að Snæfell- ingar áttu góða rispu og náðu 22 stiga forskoti lokafjórðunginn. Þar komst Snæfell mest 31 stigi yfir um miðjan fjórðunginn og vann að lok- um örugglega, 108-80. Christian Covile átti stórleik fyrir Snæfell, skoraði 38 stig og tók tólf fráköst. Geir Elías úlfur Helga- son var með 20 stig, sex fráköst og fimm stoðsendingar en aðrir kom- ust ekki í tveggja stafa tölu á stiga- töflunni. Í liði ÍA var Marcus Dewberry langstigahæstur með rúman helm- ing stiga Skagamanna. Hann skor- aði 42 stig og tók fimm fráköst. Sindri Leví Ingason skoraði 13 stig og tók fimm fráköst en aðrir höfðu minna. Snæfell er í fimmta sæti deildar- innar með 24 stig og stendur vel að vígi í baráttunni um sæti í úr- slitakeppninni. Sex stig eru í næsta lið fyrir neðan sem Snæfell þarf að halda fyrir neðan sig það sem eftir lifir deildarkeppninni. Skagamenn verma hins vegar botnsæti deildar- innar og eru án stiga enn sem kom- ið er. Næst leikur Snæfell á morgun, fimmtudaginn 1. mars, þegar liðið mætir Skallagrími í Vesturlandsslag í Borgarnesi. Skagamenn taka hins vegar á móti Breiðabliki föstudag- inn 2. mars næstkomandi. kgk Snæfell sigraði örugglega í Vesturlandsslagnum Christian Covile gerist hér aðgangsharður við körfu Skagamanna. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.