Skessuhorn - 14.03.2018, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 11. tbl. 21. árg. 14. mars 2018 - kr. 750 í lausasölu
Lúsina burt!
Augndropar!
Írskir
vetrar-
dagar
á Akranesi
14.-18. mars
Nánari upplýsingar
í viðburðadagatali á
www.akranes.is
Framtíðarreikningur
-í fullu gildi í framtíðinni
Með því að leggja fermingarpeningana inn á
Framtíðarreikning auðveldar þú þér að láta
framtíðardraumana rætast.
Ef ��.��� kr. eru lagðar inn á Framtíðarreikning
leggjum við �.��� kr. á móti.
Aðalfundarboð
Sjá nánar á bls. 2
Síðastliðinn föstudag mætti Skallagrímur liði Vestra í Borgarnesi í síðasta deildarleik vetrarins. Að honum loknum fengu liðsmenn Skallagríms deildarmeistarabikarinn
afhentan við mikinn fögnuð heimamanna, sem fylltu áhorfendapallana til að sjá sína menn hefja bikarinn á loft og gleðjast yfir því að Borgnesingar munu leika í deild
þeirra bestu á næsta tímabili. Sjá nánar bls. 26. Ljósm. kgk.
Skóflustunga að nýju frístundahúsi
Golfklúbbsins Leynis og Akranes-
kaupstaðar var tekin í janúar og á
fimmtudagsmorgun í liðinni viku
voru fyrstu einingarnar hífðar á
sinn stað. „Framkvæmdirnar ganga
vel. Veðrið í febrúar tafði okkur að-
eins en góður gangur hefur verið
síðan hægt var að byrja aftur. Þrátt
fyrir smávægilegar tafir er verk-
ið á áætlun, bæði í tíma og kostn-
aði,“ segir Guðmundur Sigvalda-
son, framkvæmdastjóri Golfklúbbs-
ins Leynis, í samtali við Skessuhorn.
„Golfklúbburinn Leynir hefur um-
sjón með verkinu og heldur utan
um framkvæmdir. BM Vallá er aðal-
verktaki við reisingu hússins en alls
koma átta verktakar að framkvæmd-
unum. Allir koma þeir af Akranesi
eða hafa tengingu við bæinn,“ bætir
hann við. „Við gerum ráð fyrir því
að húsið verði risið í byrjun maí. Þá
verður hafist handa við uppsetningu
á þakvirki og við að loka húsinu. Í
lok maímánaðar verður svo farið í
innri frágang hússins,“ segir Guð-
mundur. Fyrsti áfangi hússins verð-
ur tekinn í notkun í haust en stefnt
að það verði fullbyggt í apríl á næsta
ári.
Sjá nánar bls. 18. Ljósm. kgk.
Byrjað að reisa nýja frístunda-
miðstöð við Garðavöll
Guðmundur Elíasson sjómaður á
Akranesi rær á Flugöldunni ST-54. Á
mánudaginn var hann á handfæraveið-
um norðan við Syðra-Hraunið á Faxa-
flóa og fékk þá 37 kílóa þorsk. „Þetta
er stærsti fiskur sem ég hef veitt og var
því í hálfgerðum vandræðum með að
ná honum um borð. Þetta var hrygna
og þar að auki full af loðnu sem geng-
ið hefur hér inn á flóann að undan-
förnu,“ sagði Guðmundur. Hann seg-
ir að eftir brælutíð í janúar og febrúar
hafi verið mjög góð veiði á handfær-
in að undanförnu og stór fiskur sem
gengið hefur inn á veiðislóð.
mm/ Ljósm. Hallgrímur Guðmunds-
son.
Fékk 37 kílóa þorsk á handfærin