Skessuhorn


Skessuhorn - 11.04.2018, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 11.04.2018, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 11. ApRÍl 201826 Ég vil í upphafi þessarar greinar leyfa mér að setja fram eftirfarandi fullyrðingu og skýra hana síðan: „Staðfesta bæjarfulltrúa á Akra- nesi ásamt djúpri þekkingu starfs- manna Akraneskaupstaðar á líf- eyrismálum og mikilli vinnu, hefur skilað Akurnesingum nær hálfum milljarði króna betri niðurstöðu í uppgjöri á lífeyrisskuldbinding- um hjúkrunarheimilisins Höfða á Akranesi og slegið varnagla gagn- vart frekari útgjöldum vegna lífeyr- isskuldbindinga Höfða.“ Gamalt ágreiningsmál lífeyriskuldbindingar hjúkrunar- heimila hafa verið þrætuepli milli ríkisvaldsins og rekstaraðila hjúkr- unarheimila í meira en áratug. Rekstur hjúkrunarheimila hef- ur verið mjög erfiður og viðvar- andi hallarekstur á starfseminni og þá einkum vegna lífeyrisskuld- bindinga. Ríkisvaldið hefur hald- ið því fram að fjárframlag ríkisins til reksturs hjúkrunarheimila eigi að ná yfir allan rekstur og þar með talið lífeyrisskuldbindingar en hef- ur hins vegar aldrei getað útskýrt þá augljósu þversögn hvers vegna daggjöldin eru þá þau sömu fyrir öll hjúkrunarheimili óháð stærð og umfangi lífeyrisskuldbindinga við- komandi heimila. Í apríl 2014 náðist langþráð sam- komulag milli fjármála- og efna- hagsráðuneytisins og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu um að ríkið yfirtaki og greiði 97% af skuldbindingum hjúkrunarheim- ila vegna lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og lífeyrissjóðs hjúkrunar- fræðinga. Samkvæmt samkomu- laginu samtímagreiða hjúkrunar- heimilin nú iðgjald í B-deildir líf- eyrissjóða til að koma í veg fyrir að nýjar skuldbindingar myndist. Samkomulag þetta náði því miður ekki til hjúkrunarheimila sem voru stofnuð af eða eru rekin á ábyrgð sveitarfélaga en skapaði hins vegar mikilvægt fordæmi fyrir komandi samningaviðræður við ríkisvaldið. Skipan starfshóps um skiptingu lífeyrisskuld- bindinga Það var eitt fyrsta verk mitt sem formaður bæjarráðs eftir kosningar 2014 að taka upp málefni hjúkrun- arheimilisins Höfða við heilbrigð- isráðherra, fjármálaráðherra, fram- kvæmdastjóra Sambands íslenkra sveitarfélaga og alla þingmenn kjör- dæmisins til að þrýsta á um aðgerð- ir til að bæta stöðu Höfða og ann- arra hjúkrunarheimila sem rekin voru á ábyrgð sveitarfélaga. Ástæð- an var ærin því uppsafnaður rekstr- arhalli Höfða frá 2011-2015 stefndi í að verða nær 600 milljónir. Í samræmi við tillögu samstarfs- nefndar ríkis og sveitarfélaga frá 29. október 2014 ákvað fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp í samráði við Samband ís- lenskra sveitarfélaga sem hafði það hlutverk að greina og meta lífeyr- isskuldbindingar sem stofnast hafa vegna samrekstrar eða sameigin- legra viðfangsefna ríkis og sveit- arfélaga, skilgreina ábyrgð aðila á skuldbindingunum og gera tillögur að fjárhagslegu uppgjöri í samræmi við það. Starfshópurinn var skipað- ur þann 11. febrúar 2016 og skyldi ljúka störfum fyrir árslok 2016. Í þennan hóp voru skipaðir þrír full- trúar frá Sambandi íslenskra sveitar- félaga, þar á meðal Regína Ásvalds- dóttir þáverandi bæjarstjóri á Akra- nesi og þrír fulltrúar frá fjármála- ráðuneytinu ásamt formanni starfs- hópsins. Það var okkur á Akranesi mikið kappsmál, sökum alvarlegrar stöðu hjúkrunarheimilisins Höfða, að málefni hjúkrunarheimila færu í forgang í þessari vinnu og var orðið við þeirri beiðni. Mikil vinna beið starfshópsins í að greina umfang lífeyrisskuldbind- inga hjúkrunarheimila með sveitar- félagaábyrgð og var unnin viðamik- il samantekt og greining um málið af Jóhanni Þórðarsyni endurskoð- anda, starfsmönnum stjórnsýslu- og fjármálasviðs og framkvæmda- stjóra Höfða, sem reyndist síðan lykilgagn í vinnu starfshópsins. Enn þrefað Eftir að búið var að ná utan um um- fang lífeyrisskuldbindinga hjúkrun- arheimila hófust samningaviðræð- ur um skiptingu þeirra milli rík- is og sveitarfélaga. Fulltrúar sveit- arfélaga stóðu staðfastlega á því að horfa skyldi til samningsins frá 11. apríl 2014, við hjúkrunarheimili innan vébanda Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, að öðrum kosti væri verið að mismuna rekstrarað- ilum hjúkrunarheimila. Þessu mót- mæltu fulltrúar ríkisins, hart var tekist á og öllum samningatækni- brögðum beitt. Svo hart gekk málið að það var ekki laust við að kjörnum fulltrúum sem fylgdust með af hlið- arlínunni þættu sumir samninga- menn ríkisins taka málið full pers- ónulega. Eftir langt og tilgangslít- ið þref var samningamönnum ljóst að ekki yrði lengra komist við þetta samningaborð og málið því fært að nýju í hendur kjörinna fulltrúa. Formaður bæjarráðs átti fundi með fjármála- og efnahagsráð- herra ásamt Haraldi Benediktssyni fyrsta þingmanni kjördæmisins þar sem þess var freistað að höggva á hnútinn sem upp var kominn og leita leiða til að ljúka málinu fyrir alþingiskosningarnar 29. október 2016. Mikilvægur áfangi næst Þann 6. september 2016 náðist samkomulag um gerð rammasamn- ings milli Sjúkratrygginga Íslands og hjúkrunarheimila vegna þjón- ustu í hjúkrunar- og dvalarrým- um hjúkrunarheimila. Í þessu sam- komulagi var svokölluð bókun 3, sem varðaði lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila. Þar er eftirfar- andi setning: „Ríki og sveitarfélög eru sam- mála um að ríkið yfirtaki lífeyris- skuldbindingar hjúkrunarheimila sem rekin eru á ábyrgð sveitarfé- laga með sambærilegum hætti og ríkið hefur yfirtekið skuldbindingar annarra hjúkrunarheimila.“ Þar eru einnig ákvæði um að ljúka samkomulaginu um uppgjör lífeyr- isskuldbindinga hjúkrunarheimil- anna fyrir árslok 2016 sem hluta af heildarsamkomulag um skiptingu lífeyrisskuldbindinga milli ríkis- ins og sveitarfélaga. Rammasamn- ingurinn var síðan undirritaður 21. október 2016. 28. október 2016, eða daginn fyr- ir alþingiskosningarnar, var undir- ritað langþráð samkomulag um til- högun uppgjörs lífeyrisskuldbind- inga B-deilda lífeyrissjóða milli ríkis og sveitarfélaga. Yfirtaka líf- eyrisskuldbindinga er m.a. skilyrt því, að sveitarfélög ábyrgist rekstur hjúkrunarheimila til 31. desember 2018 hið minnsta, að gerður verði sérstakur samningur um uppgjör við hvert og eitt sveitarfélag og að samningum verði lokið fyrir 31. desember 2016. Í samkomulaginu kemur einnig fram að ríkið taki yfir 97% skuldbindingarinnar og sveit- arfélögin 3% en einnig hvernig far- ið skuli með uppgjör annarra líf- eyrisskuldbindinga og hvernig fjár- hagslegu uppgjöri skuli háttað. Ekki náðist að klára samninga- gerð við fjármála- og efnahagsráðu- neytið fyrir áramót í eftirhreytum kosninga en Benedikt Jóhannes- son, nýr fjármála og efnahagsráð- herra, undirritaði samning ríkisins og Akraneskaupstaðar um fulln- aðaruppgjör lífeyrisskuldbindinga hjúkrunarheimilisins Höfða þann 13. janúar 2017. Héldum við bæj- arfulltrúar að þar með væri málið í höfn en það var fjarri sanni. Fjárhagslegt uppgjör Þegar Akraneskaupstað berast upplýsingar um hvernig ríkið vilji standa að uppgjöri lífeyrisskuld- bindinga Höfða er augljóst að ekki stendur til að efna samkomulag frá 28. október 2016 og frá 13. janú- ar 2017. Ríkið ætlaði einungis að greiða 97% af áföllnum lífeyris- skuldbindingum eins og þær stóðu 31. desember 2015 og vera þar með laust allra mála varðandi lífeyris- skuldbindingar hjúkrunarheimila. Akraneskaupstaður benti á hið aug- ljósa, að það væri ekki í samræmi við áðurnefnt samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga. Samkvæmt því ætti ríkið að yfirtaka skuldbind- inguna eða bera ábyrgð á greiðslu hennar til framtíðar eins og í fyrri samningi við hjúkrunarheimili sem rekin eru af sjálfseignarstofnunum, því kæmi þessi tillaga að uppgjöri ekki til álita af hálfu Akraneskaup- staðar. Ráðuneytið sendi nýtt tilboð um uppgjör, eftir nokkurt þref, þar sem boðið var upp á að hækka framlag ríkisins um 11,266% sem var í raun að færa uppgjörsdagsetninguna til 31. desember 2016 og hefði skil- að Akraneskaupstað um 107 millj- óna króna betri niðurstöðu en áður hafði boðist. Þessu tilboði var hafn- að á sömu forsendum og áður. Akra- neskaupstaður gerði ríkinu gagntil- boð þar sem fallist var á hækkun á framlagi ríkisins en ekki yrði vikið frá ákvæðum um yfirtöku ríkisins á lífeyrisskuldbindingum Höfða. Jafnframt var boðað að fulltrúar Akraneskaupstaðar myndu mæta til undirritunar uppgjörssamninga þann 31. mars 2017. Fýluferð í fjármála- og efnahagsráðuneytið Þann 31. mars mætti Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri ásamt for- manni bæjarráðs Akraneskaup- staðar og bæjarstjóra Akureyrar í fjármála- og efnahagsráðuneyt- ið til undirritunar uppgjörssamn- inga milli ríkisins og nefndra bæj- arfélaga. Samningarnir voru sam- hljóða fyrri tillögu ríkisins og því neituðu bæjarstjórarnir að undir- rita samningana. Fundi var þá þeg- ar slitið án frekari orðaskipta. Síðla í apríl barst erindi frá fjár- mála- og efnahagsráðuneytinu þar sem upplýst var að ef fulltrúar Akra- neskaupstaðar staðfesti ekki fyrir- liggjandi uppgjörstillögur ríkisins á lífeyrisskuldbindingum Höfða fyrir lok apríl muni samkomulagið frá 13. janúar 2017 falla úr gildi og Akranes bera fulla ábyrgð á öllum lífeyrisskuldbindingum sem mynd- ast hafa hjá hjúkrunarheimilinu Höfða. Frumkvæði tekið Í kjölfar erindis fjármála- og efna- hagsráðuneytisins var ákveðið að Akraneskaupstaður tæki frumkvæði í málinu. ljóst var að ríkið ætlaði að skjóta sér und- an samkomulagi um ábyrgð á líf- eyrisskuldbindingunni og því mik- ilvægt að ákvarða uppgreiðsluálag sem myndi tryggja skaðleysi Akra- neskaupstaðar vegna áforma rík- isins. Fengið var mat trygginga- stærðfræðings á því hvert fyrir- hugað uppgreiðsluálag þyrfti að vera. Einnig var fengið lögfræðiá- lit um stöðu Akraneskaupstaðar ef til málaferla kæmi vegna samnings- ins. Akraneskaupstaður sendi fjár- mála- og efnahagsráðherra bréf fyrir lok apríl þar sem túlkun ráðu- neytisins á samkomulaginu frá 13. janúar 2017 var mótmælt og ítrek- uð var sú afstaða Akraneskaup- staðar að ekkert komi í veg fyrir að samningurinn verði efndur sam- kvæmt efni sínu. Akraneskaupstað- ur lagði einnig til að ef ríkið kysi að gera upp sinn hluta í lífeyrisskuld- bindingunni skyldi koma til við- bótar uppgreiðsluálag. Í kjölfar þessara samskipta greiddi Akraneskaupstaður síðan sinn hluta lífeyrisskuldbindingar Höfða (3%) með útreiknuðu upp- greiðsluálagi. Formaður bæjar- ráðs hitti einnig fjármála- og efna- hagsráðherra, forsætisráðherra og þingmenn kjördæmisins til að ræða alvarlega stöðu málsins og mögu- legar úrlausnir. Nýtt samkomulag verður til Það var síðan í júní 2017 sem Benedikt Jóhannesson tók af skarið og setti fram tillögur um breytingu á forsendum fyrir uppgjör lífeyris- skuldbindinga milli ríkis og sveit- arfélaga. Ríkið yfirtekur 97% af lífeyris- skuldbindingum B-deilda lífeyris- sjóða sveitarfélaga vegna hjúkrun- arheimila miðað við 31. maí 2017 í stað 31. desember 2015. Uppgjörið tekur nú mið af nýrri spá um lengri lífaldur og viðmið raunlaunabreyt- inga í útreikningum er hækkað. Þessar breytingar skila Akranes- kaupstað aukalega um 330 millj- ónum vegna lífeyrisskuldbindinga Höfða eða alls um 1.280 milljón- um. Auk þess kemur mikilvæg bók- un inn í samkomulagið sem setur inn ákveðinn varnagla ef þróun skuldbindingarinnar verður óhag- stæð. Bókunin kveður á um að eftir 5 ár skuli fara fram sérstök grein- ing á því hvort tryggingafræðileg- ar forsendur samkomulagsins hafi staðist. Ef frávik greinast skal meta áhrif þeirra í fjárhagslegu tilliti og gera ráðstafanir til að jafna þau áhrif sem af frávikunum leiða. Hækkun skuldbindinga vegna A-deildar Til viðbótar þessu hefur rík- ið samþykkt eftir skammar við- ræður að taka á sig 147 milljóna króna greiðslu vegna leiðréttingar á lífeyrisskuldbindingum A-deild- ar hjúkrunarheimilisins Höfða sem áttu að öðrum kosti að gjaldfær- ast árið 2017. Samtals nema þess- ar viðbótar upphæðir því um 470 milljónum króna og því óhætt að segja: „Já, staðfesta borgar sig.“ Ólafur Adolfsson. Höf. er formaður bæjarráðs, en skipar fjórða sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins til bæjarstjórnarkosninga 2018. Pennagrein Staðfesta borgar sig

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.