Skessuhorn


Skessuhorn - 06.06.2018, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 06.06.2018, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 7 U JÓ N SD Ó T T IR Skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi Við leitum að skapandi og metnaðarfullum leiðtoga. Akraneskaupstaður auglýsir lausa til umsóknar stöðu skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Veita Tónlistarskólanum faglega forystu. Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri. Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs á Akranesi. Menntunar- og hæfnikröfur: Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum. Menntun á sviði tónlistar. Framhaldsmenntun á sviði tónlistar æskileg. Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða þekking og reynsla af rekstri og stjórnun. Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti. Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund. Í samræmi við mannréttindastefnu Akraneskaupstaðar Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og KÍ/FÍH Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2018. Umsóknarfrestur er til 24. júní 2018. sviðsstjóri í síma 433-1000 eða í valgerdur.janusdottir@akranes.is. - staðar. Umsóknum fylgi ítarleg starfsferilskrá ásamt greinargerð þar sem kemur fram ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi til starfsins. Akranes landsins með rúmlega 7 þúsund íbúa. Bærinn er stofnaður árið 1955 og telja nemendur skólans í dag um 300. Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi skólinn býr við mjög góðan aðbúnað til tónlistar kennslu. JÁKVÆÐNI - METNAÐUR - VÍÐSÝNI SK ES SU H O R N 2 01 8 Deiliskipulag fyrir Gildurbrekkur í Dalabyggð Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 16. apríl 2018 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í landi Hlíðar í Hörðudal í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið nær yfir frístundarbyggð á jörðinni Hlíð í Dalabyggð og er skipulagssvæðið staðsett fyrir neðan þjóð- veg nr. 581 og hefur fengið nafnið Gildurbrekkur í tillögunni. Gert er ráð fyrir frístundarhúsum, þjónustuhúsi, hesthúsi, vélaskemmu og íbúðarhúsi ásamt bílskúr. Skipulagssvæðið er alls um 5.4 ha að stærð. Tillögurnar liggja frammi frá 7. júní 2018 á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal, og einnig á heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is. Athugasemdum ber að skila til skrifstofu skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11, 370 Búðardal, eða netfang byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 20. júlí 2018. Dalabyggð 1. júní 2018 Bogi Kristinsson Magnusen Skipulags og byggingarfulltrúi FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Búðardalur 2018 Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf. Vesturbraut 20 Fimmtudagur 14. júní Föstudagur 15. júní Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 Tímapantanir í síma 570 – 9090 SKE SS U H O R N 2 01 8 Út er komin bókin Grasnytj- ar á Íslandi, þjóðtrú og saga, eftir Guðrúnu Bjarnadóttur. Bókin er skreytt ljósmyndum eftir Jóhann Óla Hilmarsson, sem jafnframt er meðútgefandi að bókinni, og jurta- teikningum Bjarna Guðmundsson- ar á Hvanneyri. Bókin er einnig gefin út í enskri útgáfu sem nefnist Plants of Iceland Traditional uses and folklore. Í bókinni er fjallað um villtar jurtir sem hafa verið nytjaðar á Ís- landi í gegnum tíðina en meðal annars nýttu menn jurtir til fóðurs, húsbygginga, litunar og lækninga. Ýmis þjóðtrú varð til um nytjarnar en á þessum tíma skildu menn ekki efnafræðina sem lá á bak við ýmsa virkni og kenndu oft um hindur- vitni og göldrum. Fjallað er í bók- inni um þjóðtrú og sagnir tengd- ar jurtunum. Þegar landnemarn- ir komu til Íslands frá Noregi og Bretlandseyjum á 9. öld þurftu þeir að treysta á íslenska flóru til margra nytja. Sumt þekktu þeir frá heima- högunum en annað var nýtt fyrir þeim. Guðrún segir að útgáfa bók- arinnar eigi sér langan aðdraganda, eða átján ár. Guðrún Bjarnadóttir er stunda- kennari í grasafræði og rekur jurta- litunarvinnustofuna Hespuhúsið í Andakíl í Borgarfirði. Hún hefur safnað að sér upplýsingum um gras- nytjar og þjóðtrú tengda plöntum í mörg ár og nýtt við kennslu í grasa- fræði. Bókin er skrifuð upp úr MSc-ritgerð hennar um grasnytjar á Íslandi. Jóhann Óli Hilmarsson hefur myndað íslenska náttúru í áratugi, meðal annars plöntur, þótt hann sé kunnastur fyrir fuglamynd- irnar sínar og skrif um fugla. Bókin er eins og fyrr segir skreytt teikn- ingum eftir Bjarna Guðmundsson á Hvanneyri. Tekið er á móti pöntunum á bók- inni í síma 865-2910 eða á netfang- ið hespa@hespa.is mm Bók um grasnytjar, þjóðtrú og sögu Jóhann Óli og Guðrún með eintök af bókinni. Bókin er gefin út á ensku og íslensku.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.