Skessuhorn - 06.06.2018, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 17
„Við reynum alltaf að hafa tvo kaf-
ara um borð og alla vega tvo til
þrjá sjúkraflutningamenn í hverri
áhöfn.“ Hann segir að köfunar-
námskeiðið sé í samvinnu við rík-
islögreglustjóra og slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins og að það sé
eitt það mest krefjandi líkamlega
sem hann hefur gert. „Kröfurnar
eru svo miklar.“ Líkaminn þurfi að
geta farið niður á fimmtíu metra
dýpi án vandkvæða og æfingarn-
ar eru strangar. Það sé þó vel þess
virði þegar skírteinið sé komið í
hendurnar. Baldur er því atvinnu-
kafari. Honum er minnisstætt
eitt köfunarverkefni með Gæsl-
unni. „Við vorum tveir að leita að
hlut á þrjátíu metra dýpi og vor-
um nær komnir niður að botnin-
um. Þá heyri ég í hval.“ Þeir fé-
lagar hafi litið hvor á annan til að
kíkja hvor þeirra væri að gera grín
í hinum. „En hvorugur okkar hafði
gert hljóðið svo við fórum í róleg-
heitunum alveg niður við botn-
inn, lögðumst á botninn.“ Þeir
biðu eftir hvalnum en sáu ekkert.
„Aðstoðarmennirnir á yfirborðinu
sáu ekkert heldur, en við heyrðum
í hval alveg klárlega. Maður vill
helst bara vera einn þarna niðri.“
Heima með nýju barni
Þá hefur Baldur líka menntað sig
sem sjúkraflutningamaður og klár-
aði þá menntun árið 2017. Síðustu
fimmtán ár, frá því hann var fjór-
tán ára, hefur Baldur því verið á
sjó en hefur þó fjarlægst fiskveið-
arnar töluvert. Landhelgisgæslan
fylgist þó alltaf með fiskveiðunum
og gætir sjómannanna, svo hann er
enn tengdur fiskinum. „Mér finnst
þetta gefandi starf,“ segir Baldur.
Þegar Baldur sest niður með blaða-
manni er hann í landi í nokkurs
konar fríi. Hann er aðstoðarkenn-
ari á köfunarnámskeiði í nokkra
daga. Þar fyrir utan eru hann og
konan hans, Lóa Guðrún Gísla-
dóttir, að bíða eftir annarri dótt-
ur sinni sem átti að koma í heim-
inn um miðjan maí. Fyrir eiga þau
fjögurra ára gamla dóttur. Lóa var
að klára meistaragráðu sína í sál-
fræði í uppeldis- og menntavísind-
um með áherslu á áhættuhegðun,
forvarnir og lífssýn. Baldur gat því
fagnað nýfenginni háskólagráðu
með konunni sinni. Næsta verk-
efni hjá Baldri og Lóu verður fæð-
ingarorlof.
klj
Baldur segir að áhöfnin á Þór sé samheldin og góð. Honum líkar starfið vel. Hér er
hann (t.h.) ásamt skipherra Þórs, Sigurði Steinari Ketilssyni (fyrir miðju), og öðrum
kollega sínum.
Að loknum Stýrimannaskólanum árið
2015 fór Baldur strax í starf hjá Land-
helgisgæslunni. Hann er núna þriðji
stýrimaður á Varðskipinu Þór.
Verkefni gæslunnar eru mörg
krefjandi, en Baldur segir að köfunar-
þjálfunin hafi verið það allra mest
krefjandi. Líkamlegar kröfur eru háar.
Hér er hann ásamt félaga sínum,
Sverri, á leið upp í búrinu eftir köfun.
Baldur er líka kafari. Reynt er að hafa tvo kafara um borð í varðskipinu hverju
sinni.
Fyrsta úrtaka á Vesturlandi fyr-
ir Landsmót hestamanna, sem
fram fer í Reykjavík í byrjun júlí,
var haldin hjá hestamannafélaginu
Borgfirðingi í Borgarnesi á laugar-
daginn. Um 50 skráningar voru á
mótið en Borgfirðingur má senda
fimm keppendur í hvern flokk á
Landsmótinu. Mótið á laugardag-
inn var vel heppnað en veðrið hefði
að vísu mátt vera betra. Marg-
ir sáu eflaust eftir því að hafa ekki
tekið kuldagallann með sér. Hest-
ur mótsins var valinn af dómur-
um og var það Hlynur frá Hauka-
tungu Syðri. Hann sigraði einnig í
ungmennaflokki með knapa sínum,
Þorgeiri Ólafssyni.
Eftirfarandi eru úrslit mótsins
og jafnframt þeir sem unnu sér
þátttökurétt á Landsmót:
Barnaflokkur:
1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir og
Sigurrós frá Söðulsholti, 8,63
2. Hulda Þorkelsdóttir og Stilla frá
Þingnesi, 8,19
Unglingaflokkur:
1. Aníta Björk Björgvinsdóttir og
Klöpp frá Skjólbrekku, 8,27
2. Arna Hrönn Ámundadóttir og
Hrafn frá Smáratúni, 8,22
3. Berghildur Björk Reynisdóttir
og Fúsi frá Flesjustöðum, 8,13
4. Andrea Ína Jökulsdóttir og Vala
frá Eystra Súlunesi 7,92
Ungmennaflokkur:
1. Þorgeir Ólafsson og Hlynur frá
Haukatungu, 8,72
2. Máni Hilmarsson og Lisbet frá
Borgarnesi, 8,51
3. Húni Hilmarsson og Neisti frá
Grindavík, 8,37
4. Ísólfur Ólafsson og Öngull frá
Leirulæk, 8,30
Konráð Axel Gylfason vann sér
einnig inn rétt á Landsmót en reið
ekki úrslit.
B-flokkur:
1. Þjóstur frá Hesti og Valdís Ýr
Ólafsdóttir, 8,64
2. Ísar frá Skáney og Haukur
Bjarnason, 8,52
3. Frami frá Ferjukoti og Heiða Dís
Fjeldsted, 8,42
4. Augsýn frá Lundum II og Kat-
hrine Vittrup, 8,36
5. Kjarkur frá Borgarnesi og Þórdís
Fjeldsted, 8,33
A-flokkur
1. Sproti frá Innri-Skeljabrekku og
Gústaf Ásgeir Hinriksson, 8,63
2. Skörungur frá Skáney og Hauk-
ur Bjarnason, 8,56
3.-4. Þytur frá Skáney og Randi
Holaker, 8,48
3.-4. Dalvar frá Dalbæ II og Máni
Hilmarsson, 8,48
5. Mjöður frá Hofi og Klara Svein-
björnsdóttir, 8,37
iss
Úrtaka Borgfirðings fyrir
Landsmót hestamanna
Þorgeir Ólafsson og Hlynur frá Haukatungu Syðri.
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sproti frá Innri-Skeljabrekku sigruðu í A-flokki.
Aníta Björk Björgvinsdóttir og Klöpp frá Skjólbrekku sigruðu í unglingaflokki.
Kolbrún Katla Halldórsdóttir og Sigurrós frá Söðulsholti sigruðu í barnaflokki.