Skessuhorn - 06.06.2018, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 19
Færeyska kútternum Westward HO
var siglt frá Vestmannaeyjum til
Akraness síðastliðinn fimmtudag.
Hægt var að skoða skipið í höfn-
inni, en því var svo siglt áleiðis til
Reykjavíkur á föstudagskvöldið. Þar
var koma þess hluti af sjómannadags
hátíðarhöldum á Hátíð hafsins.
Westward Ho er 23 metra lang-
ur og sex metra breiður tvímastra
kútter smíðaður í Grimsby á Eng-
landi árið 1884. Hann er því hvorki
meira né minna en 134 ára gamall.
Kútter Sigurfari, sem stendur illa
farinn af fúa á Safnasvæðinu í Görð-
um á Akranesi, er árinu yngri. Kútt-
er Westward er í eigu Þórshafnar í
Færeyjum. Sú hefð hefur skapast að
hann heimsæki Ísland þriðja hvert
ár, alltaf á þessum árstíma. Koma
kúttersins hingað til lands byggist á
samkomulagi Þórshafnar og Faxa-
flóahafna um aukið samstarf Íslend-
inga og Færeyinga á sviði menning-
ar- og ferðamála. Í áhöfn skipsins
eru 14 manns; sjö Íslendingar og sjö
Færeyingar.
kgk
Kútterinn Westvard Ho í heimsókn á Akranesi
Lagst að bryggju. Eins og sjá má er kútterinn einkar glæsilegur og vel við haldið. Ljósm. kgk.
Kútterinn sunnan við Breiðina um nónbil á fimmtudaginn. Ljósm. mm.
Skipperinn fylgist með að landfestar séu tryggilega bundnar. Ljósm. kgk.
Tauginni komið í land. Ljósm. kgk.
Á laugardaginn var þess minnst í
Reykholti að 250 ár eru liðin frá því
Eggert Ólafsson og Ingibjörg Guð-
mundsdóttir fórust ásamt föruneyti
sínu á Breiðafirði. Eggert og Ingi-
björg höfðu árið 1767 haldið eitt
glæsilegasta brúðkaup allra tíma í
Reykholti. Í minningu Eggerts var
haldin hátíð í tali og tónum á veg-
um Snorrastofu í Reykholti. Hátíðin
hófst með því að gestir gengu saman
inn að Eggertsflöt þar sem afhjúp-
að var skilti um brúðkaup þeirra
Eggerts og Ingibjargar. Skilti þetta
er fagurlega skreytt með litfagurri
mynd eftir listakonuna Sól Hrafns-
dóttur af brúðkaupinu.
Við afhjúpunina var jafnframt
undirritaður tímamótasamning-
ur milli Skógræktarfélags Borgar-
fjarðar, með aðild Skógræktarfélags
Íslands, við Reykholtsstað. Samn-
ingurinn gengur út á stækkun lands
undir skóg. Það var nemendasam-
band Reykholtsskóla sem hóf skóg-
rækt í Reykholti í kringum 1940 en
frá 1948 hafa afkomendur prests-
hjónanna Einars Pálssonar og Jó-
hönnu Eggertsdóttur Briem ver-
ið þar miklir brautryðjendur. Síðan
þá hefur landssvæði undir skóg ver-
ið stækkað nokkrum sinnum. Eftir
undirritun samningsins á laugardag-
inn hefur svæðið verið stækkað um
helming og er nú um 300 hektarar
og nær eftir Reykholtslandi alla leið
norður að Hvítá. „Við bindum mikl-
ar vonir við þessa stækkun, að hún
bæði hjálpi til við kolefnisjöfnun
nú á dögum mikillar mengunar og
að hún stilli vinda og taki af okkur
sterkar áttir. Auk þess verða skóg-
ar sem þessir til mikils yndis fyr-
ir ferðamenn og alla aðra sem vilja
njóta vistar í skógi. Í tilefni stækk-
unarinnar var einnig vígt sérstækt
skógræktarskilti sem gerir grein fyr-
ir stækkuninni,“ segir Óskar Guð-
mundsson formaður Skógræktar-
félags Borgarfjarðar í samstali við
Skessuhorn.
Að lokinni athöfn í Reykholts-
skógi var haldið til kirkju þar sem
Óskar rakti ævisögu Eggerts og
sagði frá kvæðum og ljóðum sem
hann hafði ort. „Eggert var einn
merkasti vísindamaður þjóðarinn-
ar á sínum tíma. Hann var einn-
ig gríðarlega gott skáld í 18. aldar
anda og okkur fannst því tilvalið að
láta hans kvæði vera ráðandi á há-
tíðinni. Tónlistarmaðurinn Kristján
Kristjánsson vann með mér að dag-
skránni og flutti þjóðlög með aðstoð
Kristínar Á Ólafsdóttur við texta
Eggerts Ólafssonar, auk þess sem
hann samdi fágætlega falleg lög við
sum kvæðanna fyrir hátíðina,“ segir
Óskar.
arg/ Ljósm. bhs
Aukið land tekið undir Reykholtsskóga
Í tilefni þess að 250 ár eru liðin frá því að Eggert Ólafsson og Ingibjörg Guðmunds-
dóttir fórust á Breiðafirði var afhjúpað skilti um brúðkaup þeirra í Reykholti á
laugardaginn. En þau Eggert og Ingibjörg héldu eitt glæsilegasta brúðkaup allra
tíma í Reykholti árið 1767.
Óskar Guðmundsson formaður
Skógræktarfélags Borgarfjarðar rakti
ævisögu Eggerts og sagði frá kvæðum
og ljóðum sem hann hafði ort.
Á hátíðinni var jafnframt undirritaður tímamótasamningur milli Skógræktar-
félags Borgarfjarðar, með aðild Skógræktarfélags Íslands, við Reykholtsstað um
stækkun lands fyrir Reykholtsskóga.
Á hátíðinni var vígt sérstakt skógræktarskilti sem gerir grein fyrir stækkun
Reykholtsskógar.