Skessuhorn


Skessuhorn - 06.06.2018, Síða 25

Skessuhorn - 06.06.2018, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2018 25 Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í tuttugasta og níunda sinn síðast- liðinn laugardag. Hér á Vestur- landi var hlaupið á sex stöðum að þessu sinni. Góð þátttaka var víðast hvar í hlaupinu, en þó eru líkur á að dumbungs veður hafi sums stað- ar sett strik í reikninginn. Áætlað er að um tíu þúsund manns, langmest konur, hafi hlaupið að þessu sinni á yfir 80 stöðum um allt land, en auk þess víða erlendis. Markmið Kvennahlaupsins hef- ur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. All- ir taka þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða. mm Kvennahlaupið á Vesturlandi Vaskur hópur kvenna tók þátt í hlaupinu á Hvanneyri. Ljósm. Hvanneyri á Facebook. Á Akranesi var hlaupið ræst klukkan 11 og gátu þátttakendur valið um 2 eða 5 kílómetra. Ljósm. sas. Í Snæfellsbæ var hlaupið. Elfa Eydal Ármannsdóttir hefur haldið utan um hlaupið í Ólafsvík frá upphafi með aðstoð frá Sigríði Þórarins- dóttur. 32 konur hlupu að þessu sinni. Boðið var upp á tvær vegalengdir; 2,5 kílómetra og 5 kílómetra. Ljósm. þa. Svipmyndir frá kvennahlaupinu á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.