Skessuhorn


Skessuhorn - 04.07.2018, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 04.07.2018, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 20184 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Staðalímyndir taka sífellt breytingum í takti við breyttan tíðaranda. Ef marka má fréttir á viðurkenndum fjölmiðlum, en einnig samfélagsmiðl- um, þá er enginn maður með mönnum nema viðkomandi hafi mætt á að minnsta kosti einn eða tvo landsleiki á HM í Rússlandi en dvelji utan þess á sólarströnd í suðrænum höfum. Hér sé hvort eð er ekki hægt að vera sökum kulda, vosbúðar og sólarleysis. Í kjölfar úrkomusams maímánaðar, fárra sólarstunda í júní og slæmrar veðurspár fyrir júlí er því haldið fram að þetta sé bara búið! Svo rammt kveður að bölmóði og svartsýni um veðrið að sumir veðurfræðingar eru hættir að gefa fjölmiðlum viðtöl nema nafnleyndar sé gætt. Páll Bergþórs- son, hinn aldni og fjölfróði veðurfræðingur ofan úr Borgarfirði, er nú út- hrópaður. Hann slysaðist um daginn til að ræða við blaðamann DV og upp- lýsa hann um mánaðar veðurspá sína fyrir nýhafinn júlímánuð. Og við- brögðin létu ekki á sér standa. Páll var gagnrýndur á samfélagsmiðlum og sagður elliært gamalmenni og því haldið fram að hann hefði ekkert vit á því sem hann væri að segja. Fólki einfaldlega líkaði ekki boðskapurinn og var tilbúið að hlaupa í manninn, boðbera hinna válegu tíðinda. landinn þarf því augljóslega að tileinka sér boðskap Pollyönnu. Við þessar aðstæður, þegar veðrið er okkur ekki hagfellt, þurfum við að vera afar meðvituð um að gera það besta úr ástandinu til að bæta líðan okk- ar. Í hinu stóra samhengi hefur veðrið nefnilega oft verið verra (bara ekki á þessum árstíma). Að lifa norður við heimskautsbaug krefst þess einmitt að við högum okkur eins og sönnum víkingum sæmir. Ég hitti bónda úti á túni á góðviðrisdegi í síðustu viku. Eins og við var að búast barst veðrið í tal enda störf bænda þessar vikurnar afar háð veð- uraðstæðum. Hann var fljótur að leiða mér það fyrir sjónir að veðrið væri ekki það versta sem okkur gæti hent. „Það er svo margt fallegt og jákvætt að gerast í kringum okkur sem við eigum að fagna. Ef heilsan er góð og öllum líður vel, þá gerum við einfaldlega það besta úr ástandinu. Það mun stytta upp.“ Þarna var kúabóndi, sem á allt sitt undir að ná góðum heyjum fyrir kýrnar sínar, að telja í skrifstofublókina kjark. Mann sem hefur sára- litla beina hagsmuni af hvort veðrið er blautt eða þurrt, kalt eða hlýtt. Þetta minnti mig á að æðruleysi og jákvæðni skiptir okkur svo óendanlega miklu máli. Að kunna að taka því sem að höndum ber, leita uppi það jákvæða til að færa ljós inn í lífið. Ég get til dæmis nefnt að síðan í vor hef ég einungis einu sinni þurft að kaupa rúðupiss á bílinn minn, og það var einmitt í ferð á Norðurland! Vissulega mun stytta upp að endingu, þannig hefur það alltaf verið og verður. En veðráttan snertir fleiri. Í þjónustustörfum hefur hún áhrif, strand- veiðisjómenn náðu ekki að veiða alla þá 12 daga sem þeir máttu í júní og störfin í unglingavinnunni eru drepleiðinleg í endalausri rigningu. En, þetta er bara svona. Við búum á Íslandi og einmitt óstöðugt veðurfar hefur gert okkur að þeim víkingum sem við erum þekkt fyrir út um allan heim. Það hefur nefnilega vakið athygli sá frábæri árangur sem Íslendingar eru að ná á heimsvísu í hinum ýmsu íþróttum. Það er ekki bara í fótbolta, heldur hand- bolta, körfu, golfi, bridds, tugþraut, þrístökki og svo framvegis. Við erum öflug miðað við fámennið. Sýnum því þolinmæði dálítið lengur og vekjum upp víkinginn í okkur. Höldum áfram að grilla lambakjötin okkar í skjóli og undir regnhlíf, förum í gönguferðir og njótum þess að vera til. Það mun nefnilega glaðna til og þá er hvergi fegurra en á Íslandi. Gleðilegt sumar! Magnús Magnússon. Eldur kom upp í gömlu einbýlishúsi við Skagabraut 15 á Akranesi seint á föstudagskvöldið. Nágrannar urðu eldsins varir á tólfta tímanum þeg- ar eldtungur stóðu út um glugga á vesturhlið hússins og var allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hval- fjarðarsveitar kallað út. Talsverð- ur eldur og reykur var í húsinu en það reyndist mannlaust. Slökkvi- starf gekk greiðlega. Íbúar hússins komu á vettvang um svipað leyti og slökkvistarfi var að ljúka. Þáðu þeir aðstoð hjá áfallahjálparteymi á Heil- brigðisstofnun Vesturlands. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá spjaldtölvu sem lá í sófa. Hafin er fjársöfnun vegna brunans. Sjá bls.11. mm Eldur kom upp í einbýlishúsi á Akranesi Halldór Halldórsson hefur verið ráðinn forstjóri Íslenska kalkþör- ungafélagsins ehf., sem er í eigu írska félagsins Marigot. Fyrirtækið rek- ur kalkþörungaverksmiðju á Bíldu- dal, Ískalk, og hyggur einnig á fjár- festingu í sambærilegri verksmiðju í Súðavík, Djúpkalki, auk Delta- gen; verksmiðju í Stykkishólmi sem vinna mun afurðir úr þangi og þara úr Breiðafirði. Hjá Marigot á Íslandi starfa með Halldóri í framkvæmda- teymi þeir Einar Sveinn Ólafsson nýfjárfestingastjóri Marigot, Stig Randal framkvæmdastjóri Ískalks á Bíldudal og Øystein Mathisen, við- haldsstjóri verksmiðjunnar. Að sögn Halldórs eru megin- verkefnin fram undan að þróa frek- ar starfsemi Íslenska kalkþörunga- félagins vegna fyrirhugaðra verk- efna í Súðavík og Stykkishólmi. Þar er ekki síst um að ræða verkefni er varða skipulags- og hafnarmál í samvinnu við sveitarfélögin og aðra hlutaðeigandi aðila á báðum stöð- um. Einnig er unnið að leyfismálum með opinberum stofnunum, t.d. er varðar hráefnisöflun og þar styttist í að gerð umhverfismats fyrir Ísa- fjarðardjúp ljúki. mm Halldór til Íslenska kalkþörungafélagsins Öll erlend starfsemi Mjólkursam- sölunnar hefur nú verið flutt yfir í nýstofnað dótturfélag MS en frá og með 1. júlí síðastliðinn heyr- ir allur útflutningur fyrirtækis- ins undir Ísey útflutning ehf. (Ísey Export ltd.) „Þessar breytingar eru liður í því að setja meiri kraft og fókus á alþjóðlega vörumerkið Ísey skyr á erlendum mörkuðum. Ísey skyr er nú fáanlegt í 15 lönd- um og umsvifin alltaf að aukast enda gríðarlega mikill áhugi á ís- lenska skyrinu um heim allan. Ísey útflutningur ehf. sér einnig um allan annan útflutning á vörum sem MS selur á erlenda markaði,“ segir í tilkynningu frá MS. Að sögn Jóns Axels Péturssonar, framkvæmdastjóra Ísey útflutn- ings ehf., eru þetta skynsamlegar breytingar til að fylgja eftir þeim fjölmörgu tækifærum sem hið al- þjóðlega vörumerki Ísey skyr stendur frammi fyrir. „Það eru mörg sóknartækifæri framundan fyrir Ísey skyr og töldum við skyn- samlegt að halda utan um þessi tækifæri og efla starfið í sérstöku félagi sem einbeitir sér að þessum verkefnum. Með þessu getum við jafnframt sinnt þjónustu við við- skipavini okkar enn betur og ein- faldað verkferla til mikilla muna.“ Ísey skyr er nú selt á eftirfarandi erlendum mörkuðum: Norður- löndunum, Færeyjum, Bretlandi, Írlandi, Möltu, Sviss, Rússlandi, Hollandi, lúxemborg, Belgíu og Ítalíu. Í byrjun næsta árs munu svo fleiri lönd bætast í hópinn þegar sala á Ísey skyri hefst í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Japan. mm Ísey útflutningur stofnaður um erlenda starfsemi MS Síðastliðinn föstu- dag lét Sigrún Harðardóttir af störfum í lands- bankanum í Ólafs- vík eftir 40 ára starf. Af því tilefni var viðskiptavinum boðið upp á veit- ingar og viðskipta- vinir færðu Sigrúnu blómvendi og aðr- ar gjafir og þökk- uðu henni fyrir samstarfið öll þessi ár. Á meðfylgjandi mynd er Sigrún Harðardóttir ásamt þeim Olgu Gunn- arsdóttur sem hef- ur starfað með Sig- rúnu í 30 og Þór- halla Baldursdóttir útibússtjóri bank- ans. af Hættir eftir fjörutíu ára starf í Landsbankanum Sannir víkingar Leiðari

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.