Skessuhorn


Skessuhorn - 04.07.2018, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 04.07.2018, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 201830 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvað hlakkar þú mest til að gera á Írskum dögum? Spurni g vikunnar Arna Rún Ólafsdóttir „Að fara niður á torg á laugar- daginn.“ Laufey María Ingvarsdóttir „Tónleikarnir á föstudeginum.“ Helga Rún Ólafsdóttir „Að vera úti að skemmta mér.“ Ásrún Svava Fossdal Hólmars- dóttir „Að fara í hoppukastalana.“ Sara Ósk Eyfjörð Hólmarsdóttir „Að fara í hoppukastalana.“ (spurt á Akranesi) Bjarki Pétursson frá Golfklúbbi Borgarness endaði í 21. sæti á Evr- ópumóti áhugamanna í Hollandi sem hófst á miðvikudag í síðustu viku. Alls tóku 144 keppendur þátt í mótinu og spilaðar voru 72 holur á fjórum dögum. Bjarki spilaði fyrsta daginn á 71 höggi, næsta dag á 75. Þriðji dagurinn var hans besti þar sem hann spilaði á 69 höggum en á lokadegi móts endaði hann daginn á 72 höggum. Sigurvegari móts- ins fékk keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu. glh Bjarki á góðu skriði Bjarki Pétursson golfari frá Borgar- nesi. Ljósm/ úr safni. Kári með góðan sigur AKRANES: Á laugardaginn tóku Káramenn á móti Völsungi á Akranesvelli í annarri deild karla í knattspyrnu. Mikið var skorað og kom fyrsta mark strax á annarri mínútu frá Páli Sindra Einarssyni leikmanni Kára. Restin af fyrri hálfleik var heldur tíðindalítill. Í þeim síðari bættu svo Skagamenn stöðu sína. Á 57. mínútu var það Gylfi Brynjar Stefánsson sem skoraði og stuttu seinna var það Arnar Freyr Sigurðsson sem bætti við marki á 61. mínútu. Bjarki Baldvinsson náði marki fyrir gestina á 84. mínútu og lagaði örlítið stöð- una en um átta mínútum seinna var Helgi Jónsson á ferðinni fyrir Kára sem bætti aft- ur í forskotið. Ásgeir Kristjánsson skoraði svo fyrir Völsung á lokamínútu leiks. Lokatölur 4-2 fyrir Kára. Káramenn eru nú komnir aftur á sigurbraut eftir tveggja leikja tap og sitja í þriðja sæti deildarinnar með 18 stig, fimm stigum á eftir Aftureldingu sem er á toppi deildarinnar. -glh Tapleikur gegn toppliðinu BORGARNES: Skallagrímur tapaði naum- lega fyrir toppliði Reynis Sandgerðis í B-riðli fjórðu deildar karla í fótbolta. Borgnesingar skoruðu fyrsta mark leiksins á fjórðu mínútu og var þar Guillermo Gonzalez Lamarca á ferðinni. Það leið þó ekki langur tími þangað til heimamenn jöfnuðu. Á 7. mínútu skoraði Magnús Þórir Matthíasson sem var svo aft- ur á ferðinni á 13. mínútu þegar hann kom Sandgerðingum yfir. Í seinni hálfleik náði Declan Joseph Redmond að jafna á 75. mín- útu og mikil barátta framundan. Sigur datt svo til heimamanna þegar Guðmundur Gísli Gunnarsson skoraði þriðja mark Reynis. Lokatölur 3-2. Með sigrinum bætir Reynir S. stöðu sína enn frekar á toppi B-riðils með 18 stig. Skallagrímsmenn verma þriðja sætið með 12 stig eftir sex umferðir. -glh Berserkir höfðu sigur á Snæfelli SNÆFELLSNES: Snæfell/UDN tapaði leik á móti Berserkjum á Víkingsvelli í Reykjavík síðasta fimmtudag. Snæfellingar byrjuðu vel og komust í stöðuna 1-2 þegar fjórtán mín- útur voru liðnar og voru það Marius Ganu- sauskas og Eivinas Zagurskas sem skoruðu mörkin. Allt snérist þó við þegar leið á fyrri hálfleik og skoruðu heimamenn þrjú mörk í röð og komust í þægilegt forskot, 4-2. Snæ- fellingar reyndu að bíta frá sér þegar Myko- las Krasnovskis skoraði fyrir Snæfell en meira kom ekki og lokastaðan 4-3 fyrir Berserki. -glh Borgnesingurinn Brynjar Snær Páls- son sem spilar nú með Knattspyrnu- félagi ÍA var nýlega valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum KSÍ fyrir U-18. „Þetta eru í rauninni bestu 18 af landinu sem eru valdir í æfingahóp, en síðan verður valið úr þessum hópi ásamt leikmönnum sem spila erlend- is fyrir lokahóp sem fer svo til lett- lands í keppnisferð,“ segir Brynj- ar sem hefur einnig tekið þátt í úr- taksæfingum fyrir U-17, auk þess að leika sex leiki með landsliðinu og því hvergi ókunnugur þessu umhverfi. Byrjaði fimm ára í fótbolta Brynjar er uppalinn Borgnesing- ur og hefur æft með Skallagrími öll sín uppeldisár. „Ég man ennþá í dag þegar ég fékk að fara á fyrstu fót- boltaæfinguna,“ segir Brynjar. „Ég byrjaði fimm ára og fyrsta æfing- in mín var á afmælisdaginn minn. Maður mátti ekki byrja að æfa fyrr en maður var orðinn fimm ára þann- ig ég bara beið eftir þessum degi. Ég man eftir fyrstu æfingunni. Ég hef til dæmis alltaf verið góður í skotæfing- um og ég man eftir því að ég var mik- ið að skjóta á æfingunni. Fyrir utan það var þetta heldur venjuleg æfing,“ segir Brynjar brosandi. Síðasta haust flutti hann á Akranes og hóf nám á afreksíþróttasviði Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Það var líka síðasta haust sem Brynjar skrifaði undir samning um að spila með ÍA og er nú í láni hjá Kára sem spilar í 2. deild karla. Rólegur og með góða tækni Brynjar flakkar á milli þess að spila vinstri bakvörð og miðjumann. Að- spurður hvað hann myndi kjósa ef hann mætti velja á milli þá segir hann miðjuna. „Ég myndi samt ekki mótmæla að spila vinstri bakvörð- inn. Maður er frjálsari á miðjunni og er meira í boltanum,“ segir hann og lýsir sér sem yfirveguðum leikmanni með góða tækni og leikskilning. „Ég er frekar yfirvegaður á vellinum. Það fýkur ekki oft í mig og maður er alveg með pínu kjafthátt en þetta var verra þegar ég var yngri,“ segir Brynjar og hlær. Stefnt á atvinnumennsku Brynjar áttaði sig snemma á því að hann vildi fara eins langt og hann kæmist í fótboltanum og vonast til þess að komast í atvinnumennskuna. „Það er draumurinn hjá flestum að komast í atvinnumennskuna. Ég held hins vegar að maður geti náð lengra ef maður byrjar til dæmis á að fara til Norðurlandanna og fara svo eitthvað stærra,“ segir hann. Brynjar segir líka að það að hafa fengið að spila með U17 landsliðinu hafi verið frábær reynsla og ýti undir að það sé hægt að láta drauminn rætast. „langtíma- markmiðið er atvinnumennska og komast á þetta stærsta svið í fótbolt- anum,“ segir hann að endingu. glh Man eftir fyrstu fótboltaæfingunni Brynjar Snær Pálsson var nýlega valinn á úrtaksæfingar U18. Marinó Þór Pálmason sem spilar með Skallagrími í Borgarnesi keppti með félögum sínum í U16 landsliði Íslands á Norðurlandamóti yngri landsliða um síðustu helgi, en mót- ið fór fram í Kisakallio í Finnlandi. Drengirnir unnu fjóra af fimm leikj- um sínum sem skilaði þeim öðru sæti á mótinu og silfrinu. Eistarnir fóru ósigranðir í gegnum mótið og hrepptu því gullið. „Flottur árangur hjá drengjunum sem sýndu frábæra takta oft á tíðum og ljóst að framtíð- in er björt. Við óskum Marinó inni- lega til hamingju með frábæran ár- angur,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu. glh Silfur á Norðurlandamóti Marinó Þór rekur boltann upp völlinn í Finnlandi. Ljósm/ UMFS. Nóg er að gera í herbúðum körfu- knattleiksfélags Snæfells í Stykkis- hólmi. Síðastliðinn miðvikudag skrif- uðu átta leikmenn undir samning um að spila með liðinu á komandi leiktíð. Fyrir meistaraflokk kvenna eru það systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdætur, Rebekka Rán Karls- dóttir og Thelma lind Hinriksdótt- ir sem munu taka slaginn á parketinu í vetur. Fyrir meistaraflokk karla eru það Andri Þór Hinriksson, Aron Ingi Hinriksson, Dawid Einar Karlsson og Jón Páll Gunnarsson. Kvennalið Snæfells endaði í sjötta sæti Dominos deildar á síðasta tíma- bili og eru nú liðin tvö ár síðan þær hrepptu Íslandsmeistaratitilinn. Kar- lalið Snæfells heldur göngu sinni áfram í 1. deild en þeir féllu niður úr Dominos deild fyrir tveimur árum og ekki hefur gengið að komast aftur upp í efstu deild. Nýir þjálfarar hjá karla- og kvennaliðinu Eins og fram hefur komið í Skessu- horni þá ákvað þjálfari Snæfellinga til níu ára, Ingi Þór Steinþórsson, að halda aftur í Vesturbæinn þar sem hann tók við liði KR og sagði því skil- ið við Snæfell. Í hans stað kemur Vlal- dimir Ivankoci, þjálfari frá Króatíu og honum til aðstoðar verður Dar- rell Flake. Flake spilaði með Skalla- grími á síðasta tímabili og hefur spil- að á Íslandi í mörg ár og því langt í frá ókunnugur íslenskum körfubolta. Þeir mynda þjálfarateymi karlaliðs Snæfells. Baldur Þorleifsson sem var aðstoðarþjálfari Inga Þórs mun þjálfa stelpurnar. Honum til aðstoðar verð- ur þjálfari meistaraflokks karla, Vlal- dimir Ivankoci. glh/ Ljósm. UMFS Þjálfaramál skýrast hjá Snæfelli Gunnhildur, Thelma Lind, Berglind og Rebekka Rán með stjórnarmönnum Snæfells. Karlalið Snæfells tekur á sig mynd fyrir næsta tímabil.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.