Skessuhorn - 04.07.2018, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 20188
Leiðrétting
Í síðasta tölublaði birtist frétt um
mann sem fallið hafði af hestbaki
og kalla þurfti út þyrlu landhelg-
isgæslu Íslands til að sækja hann.
Í fréttinni segir að maðurinn hafi
verið í Borgarfirði þegar hann féll
af baki en sú staðsetning var röng
og byggði á upplýsingum lG.
Hið rétta er að slysið átti sér stað í
Eyja- og Miklaholtshreppi. leið-
réttist það hér með. -arg
Mótframlag atvinnu-
rekenda hækkar
LANDIÐ: Síðasti áfangi hækkun-
ar á mótframlagi atvinnurekenda í
lífeyrissjóði launafólks á almenn-
um vinnumarkaði kom til fram-
kvæmda 1. júlí síðastliðinn, en þá
hækkaði framlagið um 1,5% og
er nú orðið 11,5%. Skylduiðgjald
til lífeyrissjóðs nemur því samtals
15,5% sem skiptist í 4% iðgjald
launamanns og 11,5% mótfram-
lag atvinnurekenda. Atvinnurek-
enda greiðir hækkað mótframlag
til þess lífeyrissjóðs sem skyldu-
iðgjaldið er greitt til en sjóðfélag-
ar geta nú sjálfir ráðstafað allt að
3,5% af lífeyrisiðgjaldi sínu í til-
greindan séreignarsparnað með
samningi við lífeyrissjóð eða nýtt
það til að auka tryggingavernd
sína til örorkulífeyris og ævilangs
ellilífeyris í samtryggingu. Hækk-
un mótframlags atvinnurekenda
byggir á kjarasamningum aðildar-
félaga ASÍ og SA frá janúar 2016
en þá var samið um 3,5% hækk-
un á mótframlagi atvinnurekanda
í lífeyrissjóð sem tók gildi í þrem-
ur áföngum á árunum 2016-2018.
-mm
Annir í útköllum
VESTURLAND: Björgunar-
sveitarfólk af Vesturlandi fór í tvö
aðskilin útköll síðastliðinn sunnu-
dag. Upp úr hádegi fóru félagar úr
lífsbjörgu í Snæfellsbæ til aðstoð-
ar sjúkraflutningamönnum, en slys
tengt hestamennsku hafði orðið
við Ingjaldshól og þurfti aðstoð
við að koma slösuðum í sjúkrabíl.
Síðdegis sama dag var svo Björg-
unarfélag Akraness kallað út til
aðstoðar erlendri konu sem slas-
ast hafði á fæti ofarlega við fossinn
Glym í Hvalfirði. Hópur björg-
unarsveitafólks ásamt sjúkraflutn-
ingamönnum frá Akranesi hélt til
aðstoðar við flutning á hinni slös-
uðu í sjúkrabíl á bílastæði að foss-
inum, en leiðin er eins og kunnugt
er torfær og seinfarin. -mm
Skipuð
vegamálastjóri
LANDIÐ: Berg-
þóra Þorkelsdótt-
ir hefur verið skip-
uð forstjóri Vega-
gerðarinnar frá og
með næstu mán-
aðamótum, en starfsheitið hefur
jafnan verið vegamálastjóri. Berg-
þóra hefur lokið námi í markaðs-
fræði, rekstrar- og viðskiptafræði
sem og dýralækningum. Ekki var
gerð krafa um verkfræðimenntun
eða sambærilega menntun, þegar
starfið var auglýst. Stundin greindi
frá því að Sigurður Ingi Jóhanns-
son samgönguráðherra hafi sagt
sig frá ráðningu forstjóra Vega-
gerðarinnar sökum tengsla við
einn umsækjandann, en Bergþóra
stundaði á sínum tíma dýralækn-
anám í sama skóla og Sigurður
Ingi. lilja Alfreðsdóttir mennta-
málaráðherra var því settur ráð-
herra í málinu. 25 sóttu um starfið
og voru fjórir þeirra taldir komið
til greina. -mm
Stefnt fyrir
félagsdóm
VLFA: lögmaður Verka-
lýðsfélags Akraness undir-
býr stefnu á Kristján lofts-
son forstjóra Hvals hf. fyrir
að meina starfsmönnum fyr-
irtækisins á nýhafinni hval-
veiðivertíð að vera í Verka-
lýðsfélagi Akraness. Frá
þessu er greint á vef félags-
ins og sagt að stefnan verði
lögð fram í byrjun þessar-
ar viku. Eins og fram hef-
ur komið í fréttum þá hefur
Kristján meinað starfsmönn-
um sínum að vera í Verka-
lýðsfélagi Akraness og seg-
ist muni greiða öll iðgjöld
til Stéttarfélags Vesturlands.
„Eins og einnig hefur komið
fram þá er þessi aðgerð for-
stjórans gróf hefndaraðgerð
vegna þess að Verkalýðs-
félag Akraness stefndi Hval
hf. árið 2016 fyrir dómstóla
vegna brota á ráðningar-
samningi og kjarasamningi,“
segir á vef VlFA. Þá segir að
það liggi fyrir að þessi krafa
Hvals hf. sé brot á 4. gr. laga
nr. 80/1938 um stéttarfélög
og vinnudeilur en samkvæmt
því ákvæði er atvinnurekend-
um óheimilt að hafa áhrif á
félagsaðild og stjórnmála-
skoðanir starfsmanna sinna.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 23.-29. júní.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 13 bátar.
Heildarlöndun:11.153 kg.
Mestur afli: Glódís AK:
1.542 kg í tveimur löndun-
um.
Arnarstapi: 8 bátar.
Heildarlöndun: 46.800 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
34.951 kg í sex löndunum.
Grundarfjörður: 18 bátar.
Heildarlöndun: 185.640
kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.964 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 30 bátar.
Heildarlöndun: 128.922
kg.
Mestur afli: Guðmund-
ur Jensson SH: 44.245 kg í
þremur löndunum.
Rif: 25 bátar.
Heildarlöndun: 139.642
kg.
Mestur afli: Rifnes SH:
54.163 kg í einni löndun.
Stykkishólmur: 26 bátar.
Heildarlöndun: 74.319 kg.
Mestur afli: Fúsi SH: 7.039
kg í þremur löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
67.964 kg. 27. júní.
2. Rifsnes SH – RIF:
54.163 kg. 25. júní.
3. Tjaldur SH – RIF:
51.368 kg. 24. júní.
4. Helgi SH – GRU:
46.222 kg. 25. júní.
5. Steinunn SF – GRU:
45.481 kg. 28. júní
-arg
„Það þýðir ekkert annað en að nýta
hvert tækifæri sem gefst,“ sagði Þor-
grímur Einar Guðbjartsson bóndi á
Erpsstöðum í Dölum, þegar blaða-
maður hitti hann úti á túni á mið-
vikudaginn í síðustu viku við hey-
skap. Tíð hefur verið afar óhagstæð
til heyskapar um vestanvert landið
það sem af er sumri, en Þorgrímur
hefur gjörnýtt þá tvo daga sem hang-
ið hefur þurrir fram að þessu; mið-
vikudagana 20. og 27. júní. Sama á
við um marga fleiri bændur í lands-
hlutanum. Það er vakað yfir veður-
útliti og hvert tækifæri nýtt.
„Þrátt fyrir að jörðin sé rök borg-
ar sig að slá strax og útlit er fyrir
þurran dag daginn eftir. Ég er hætt-
ur að snúa heyinu, er með knosara
á sláttuvélinni, slæ að kvöldi, garða
svo daginn eftir og bind um kvöld-
ið.“ Þetta tókst vel því um miðnætti
sama kvöld, þegar ekið var að nýju
um Miðdalina, var Þorgrímur búinn
að rúlla heyinu og pakka. mm
Glennurnar nýttar til hins ítrasta
Flutningaskipið Rouchefort kom
til Rifshafnar á mánudagskvöld-
ið og lóðsaði björgunarbátur-
inn Björg skipið síðasta spölinn
til hafnar. Nokkrir dagar eru síð-
an lokið var við að rífa stóra vatns-
verksmiðjuhúsið í Rifi. Kom skipið
til þess að sækja límtrésbitana sem
þjónuðu sem burðarvirki hússins
en það var svo stórt að ekki var
hægt að flytja það í burtu á bílum.
Rouchefort er hollenskt flutninga-
skip sem er 80 metra langt og 12
metra breitt.
Byrjað var að rífa vatnsverk-
smiðjuhúsið í byrjun maí en eig-
andi þess er fyrirtækið Móabyggð
í Reykjavík. Húsið er um 7200 fer-
metrar að flatarmáli og var á sinni
tíð byggt af félaginu Iceland Gla-
cier Product. Eins og kunnugt er
fór vatnsátöppun aldrei fram í hús-
inu. Félagið sem stóð fyrir bygg-
ingu hússins og væntanlegum
vatnsútflutningi fór í þrot og húsið
á uppboð í framhaldi þess.
mm/þa
Burðarvirki vatnsverk-
smiðjuhúss sótt á skipi
Rouchefort kemur til hafnar.
Vatnsverksmiðjuhúsið skömmu eftir að niðurrif þess hófst.