Skessuhorn - 04.07.2018, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 2018 11
Grétar Bæring Ingvarsson er Dala-
maður í húð og hár. Sjálfur hóf hann
búskap á Hóli í Hvammsveit og hef-
ur nú verið bóndi á Þorbergsstöð-
um í Dölum ásamt Mundhildi Guð-
mundsdóttur í ríflega fjóra áratugi.
Blaðamaður Skessuhorns heim-
sótti Bæring og Mundhildi nú fyrir
skemmstu og ræddi við þau um bú-
skapinn. Eins og fyrr segir hóf Bær-
ing búskap á Hóli í Hvammsveit, þá
ásamt Árna bróður sínum árið 1956.
„Ég bjó með Árna á Hóli þegar við
Mundhildur kynntumst. Við bræður
réðum hana sem ráðskonu til okkar,
þá nýútskrifaða úr Húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli. Hún er mjög
dugleg og hefur alla tíð verið,“ seg-
ir Bæring og brosir. Mundhildur er
sjálf aðflutt í Dalina en hún ólst upp
í Strandasýslu.
Fengu geitur í Ólafsdal
Bæring og Árni voru með fjárbúskap
þegar Árni stakk upp á því að þeir
myndu bæta geitum við búskapinn
og fengu þá nokkrar úr Ólafsdal.
Bæring segir blaðamanni að saga sé
að segja af tilkomu geitanna í Ólafs-
dal. „Ólafi bónda í Ólafsdal langaði
í kiðlinga úr Þingeyjarsýslu. Hann
hringdi því í Sigurð dýralækni og
spurði hvort ekki væri í lagi að koma
með kiðlingana yfir í Ólafsdal. Sig-
urður hélt það nú en bjóst reyndar
við að Ólafur væri nú bara að grín-
ast. Þegar Ólafur var svo kominn
með kiðlingana hringdi Sigurður í
Ólaf til að segja honum að það væri
nú ekki ráðlagt að fara með geit-
urnar á milli. Þá var það of seint því
kiðlingarnir voru komnir. Sigurður
ákvað að hann myndi bara fylgjast
grannt með geitunum og þær fengu
að vera. „Þetta voru heilsuhraust og
flott dýr,“ segir Bæring.
Geiturnar einstaklega
skemmti leg dýr
Þegar Bæring og Mundhildur fluttu
að Þorbergsstöðum fylgdu geiturn-
ar skömmu síðar og eru afkomend-
ur þeirra geita þar enn þann dag í
dag. „Þetta eru alveg einstaklega
skemmtileg dýr, hálfgerð sirkusdýr,“
segir Bæring og hlær. „Það er svo
gaman að fylgjast með kiðlingunum
leika sér. Við erum með stóra síld-
artunnu í hlöðunni hjá þeim á vorin
og þær geta leikið sér allan daginn
við að ýta tunnunni fram og aftur.
Svo stökkva þær upp á tunnuna og
taka þar smá jafnvægisæfingu.“ Að-
spurð segjast þau nýta kjötið af geit-
unum en ekki aðrar afurðir. „Við
nýtum kjötið en við höfum ekki
mjaltatæki eða aðstöðu til að nýta
mjólkina,“ segir Mundhildur. „Við
erum bara með geiturnar svona fyr-
ir ánægju og armæðu,“ bætir Bæring
við og hlær.
Geiturnar fylgja
Bæring alltaf
Þegar Bæring og Mundhildur voru
flutt að Þorbergsstöðum fengu þau
með sér einn hafur, eina huðnu og
einn kiðling. „Frænka Mundhild-
ar hafði verið hjá okkur á Hóli og
eignast einn kiðling sem hún fékk að
taka með sér hingað,“ segir Bæring
og bætir því við að svo hafi geitun-
um á bænum bara fjölgað og dreifst á
bæi í sveitinni. Fyrir skemmstu fékk
hann að láni hafur frá Sif Matthías-
dóttur geitabónda á Snæfellsnesi til
að bæta stofninn enn frekar. „Þetta
er hafur ættaður frá Fjallalækjaseli í
Þingeyjarsýslu en geiturnar hér um
slóðir hafa heldur fjarlægst þann
skyldleika. Ég vildi því endilega fá
hann til mín til að halda fjölbreytni
í ræktuninni,“ segir Bæring og held-
ur áfram. „Þar sem geitur mega
ekki fara héðan aftur á Snæfellsnes
verður hann hjá mér þar til hann er
dauður. Það er nú ekki langt í það,
hann er orðinn gamall. Sif ætlar þá
að láta stoppa hann upp og kemur
hann til með að flytja þannig heim
aftur.“ arg/ Ljósm. sm
Með geitur til
ánægju og armæðu
Mundhildur og Bæring eru með fjár- og geitabúskap á Þorbergsstöðum í Dalasýslu. Þau segja bæði að geitur séu alveg ein-
staklega skemmtileg dýr.
Fjársöfnun vegna bruna
Vegna skemmda sem varð í eldsvoða
í húsinu Skagabraut 15 á Akranesi
síðastliðið föstudagskvöld, hafa
nágrannar hrundið af stað fjársöfnun.
Allt sem safnast mun renna til stuðnings
Jóhönnu Kristínar og dætra hennar.
Reikningsnúmer: 0186-05-010136
Kennitala: 090283-5459