Skessuhorn - 04.07.2018, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 2018 21
Tæplega sex kílómetra langur hluti
þjóðvegarins um Saurbæ í Dölum er
nú að taka stakkaskiptum. Þar vinn-
ur Borgarverk í Borgarnesi á 5,7 km
vegarkafla, en fyrirtækið átti lægsta
tilboð af fimm í verkið, 178 milljón-
ir króna. Vegurinn er breikkaður frá
Brekku að Skriðulandi, blindhæð-
ir teknar niður og vegaxlir jafnað-
ar. Byrjað var á verkinu í nóvember
á síðasta ári og eru verklok áætluð í
lok ágúst. mm
Endurbyggja sex kílómetra
vegkafla í Saurbæ
Á mánudaginn komu Skaga-
menn og stuðningsmenn ÍA sam-
an í hátíðarsalnum á Jaðarsbökk-
um og perluðu armbönd til styrkt-
ar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur þeirra. Há-
tíðarsalurinn var þétt setinn strax
frá fyrstu mínútu en alls tóku um
200 manns á öllum aldri þátt í við-
burðinum. Allir voru mjög ein-
beittir við perlið enda Perlubikar-
inn svokallaði í húfi, en hann hlýt-
ur það íþróttafélag eða sveitarfélag
sem perlar flest armbönd á innan
við fjórum klukkustundum. Skaga-
menn perluðu samtals 2.041 arm-
band en dugði það því miður ekki
til að slá Sunnlendingum við sem
tróna á toppnum með 2.308 arm-
bönd. Skagamenn sitja því í þriðja
sæti á eftir Akureyringum sem perl-
uðu 2.302 armbönd og enn eiga
nokkur íþróttafélög eftir að reyna
við bikarinn.
Armböndin sem um ræðir eru
perluð í fánalitunum og eru með
áletruninni „lífið er núna“ og eru
seld til styrktar Krafti. Hægt er að
kaupa armböndin á vefsíðu Krafts
www.kraftur.org, í Útilíf, Errea, Jóa
Útherja og Ölveri. arg
Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan fór
fram á Byggðasafni Snæfellinga og
Hnappdæla - Norska húsinu, síðast-
liðinn laugardag. Á Eldfjallasafninu
hélt Karl Aspelund prófessor við
Rhode Island háskóla í Bandaríkj-
unum, fyrirlestur um Sigurð málara
og tengsl hans við íslensku þjóð-
búningana. Að fyrirlestri loknum
var gestum í þjóðbúningum boðið
upp á kaffi og pönnukökur í Norska
húsinu, þar sem Heimilisiðnaðarfé-
lag Íslands kynnti einnig starfsemi
sína. Hópur gesta heimsótti svo
íbúa á dvalarheimilinu. Spilmenn
Ríkínís héldu að lokum tónleika í
gömlu kirkjunni. Viðfangsefni Spil-
manna hefur verið flutningur tón-
listar úr gömlum íslenskum bókum
og handritum með hljóðfærum sem
vitað er að til voru á Íslandi fyrr á
öldum. En á tónleikunum var með-
al annars spilað á langspil, sinfón,
hörpu og hrútshorn sem búið var
að breyta í flautu. arg
Þjóðbúningahátíð haldin
í Stykkishólmi
Fríður hópur fólks klæddi sig upp í þjóðbúninga í tilefni dagsins. Ljósm. Heimir Hoffritz.
Þessar tvær tóku sig vel út í þjóðbúningunum. Ljósm. Heimir Hoffritz.
Gestum í þjóðbúningum var boðið upp á kaffi og pönnukökur í Norska húsinu. Ljósm. sá.
Skagamenn sýndu Krafti
stuðning í verki
Um 200 manns mættu til að perla til styrktar Krafti.
Þessi lagði sitt af mörkum til að ná Perlubikarnum upp á Skaga.
Armböndin þarf að perla eftir kúnstarinnar reglum og þessi einbeitta stúlka var
með þetta á hreinu.
Bæði fullorðnir og börn áttu góða stund saman að perla fyrir gott málefni.