Skessuhorn - 04.07.2018, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 201822
mann. „Hóað saman tveimur stelp-
um með þér og þá getið þið tek-
ið þátt í körfubolta, þrjá á þrjá. Þú
gætir líka farið með vinkonum þín-
um og keppt í brennó. Maður þarf
ekki að skrá sig undir neinu félagi
eða vera á vegum neins félags,“ seg-
ir Sigurður og segir þessar breyting-
ar vera í takti við samfélagið í dag.
„Hin landsmótin voru aðeins far-
in að dala og það var kominn tími
á breytingar. Eina sem gæti reynst
erfitt er að ná uppi liðsstemningu
eins og í gamla daga þar sem allir
voru eins klæddir sínum liðsbún-
ingum. Ég ætla að gera mitt besta
til að ná fólki í galla og er vongóður
að það takist.“
Þurfum að vera í takti
við tímann
Fjölmargar greinar verður hægt
að taka þátt í sem og sterku frjáls-
íþróttamóti. Eins hittir þannig á að
landsmót 50+ verður haldið sömu
helgi en það mót er árlegt. „Þetta
verður bara íþróttaveisla, geggj-
að stuð og gaman. Þú þarft ekki að
vera hörð keppnismanneskja til að
taka þátt heldur. Það verður nán-
ast allt sem þú getur ímyndað þér í
boði og allir ættu að finna sér eitt-
hvað við hæfi.“
En eru þessar breytingar til
bóta, spyr blaðamaður. „Mér
finnst breytingarnar frábærar og
þess virði að prófa þetta,” sva-
rar Sigurður. „Tímarnir eru að
breytast aðeins og við þurfum að
vera í takti við það sem er að ger-
ast í þjóðfélaginu. Fólk er mikið
farið að hreyfa sig sjálft. Það er til
dæmis hægt að finna skokkhópa
úti um allt. Auðvitað er líka gaman
að hafa keppnina fyrir þá sem vil-
ja en það eru svo margir sem vil-
ja ekki fara í keppnina heldur bara
njóta og skemmta sér. Það verður
gaman að sjá hvernig þetta kemur
út,“ segir hann að endingu.
glh
Freisting vikunnar
Ég ákvað að gera glaðan dag
í vinnunni síðastliðinn föstu-
dag þar sem ég var nú á leiðinni
í sumarfrí. Ég skellti í rabbarbar-
apæ sem sló svona rækilega í gegn
meðal samstarfsfólksins. Mig hef-
ur lengi langað að baka rabbar-
barapæ núna í sumar frekar en
að gera sultu úr allri uppsker-
unni eins og öll hin árin. Rabbar-
barinn gónir á mig í hvert skipti
sem ég horfi út um gluggann hjá
mér og hann er jafnvel vaxinn mér
upp fyrir höfuð. Ég dreif mig því
út í garð og tók tvo stóra stöngla
og henti í eina köku fyrir vinnu-
félagana. Hún heppnaðist svona
einstaklega vel og ég sé sko ekki
eftir því og mun gera hana fljótt
aftur þegar ég býð vínkonunum í
kaffi. Ég bar hana fram með van-
illuís og karmellusósu sem vakti
mikla lukku.
Innihald:
350-400 gr rabbarbari (skolaður
og skorinn í bita)
½ dl. hveiti
2 egg
2 dl. sykur
Botn:
100 gr smjör (við stofuhita)
2 dl. púðursykur
1½ dl. hveiti
Hálfur poki af súkkulaðispæni
(dökku)
Aðferð:
Hrærið eggjum, sykri og hveiti
saman. Blandið svo rabbarbaran-
um saman við og setjið í smurt
eldfast mót sem er ca. 23 cm.
Hnoðið næst púðursykri, hveiti
og smjörinu saman þangað til að
það er orðið þétt og setjið helm-
inginn af deiginu á botninn á eld-
fasta mótinu. Bætið næst rabbab-
arapæinu við, stráið svo súkkulað-
ispænunum yfir og setjið svo hinn
helminginn af deiginu yfir. Þetta
fer svo inn í ofn í 40 mín á 190° og
blæstri. Berið fram volgt með van-
illuís og karamellusósu.
Verði ykkur að góðu og njótið!
Kær kveðja,
Hrafnhildur Harðardóttir
Rabbarbarapæ
love island eru þættir sem eru í
gangi á sjónvarpsstöðinni itv2 í
Bretlandi og njóta gríðarlegra vin-
sælda. Í þáttunum biður fólk um að
fara eða er beðið af sjónvarpsstöð-
inni að mæta. Valdar eru sex stelp-
ur og sex strákar og þurfa þau að
framkvæma allskyns þrautir sem
gera stelpurnar og strákana ann-
að hvort nánari - eða mikla óvini. Í
fyrsta skiptið sem þau komu í húsið
velur strákur eina stelpu sem hann
vill vera með en í hverri viku gerist
eithvað óvænt og það er það sem
gerir þennan þátt svo skemmtileg-
an. Maður veit aldrei hvað gerist
næst. Þetta er raunveruleikaþátt-
ur sem þýðir að ef að þátttakend-
ur finna engan til að vera með eiga
þeir á hættu að verða sendir heim.
Þættirnir eru teknir upp á Malla-
orka á Spáni og gerir það þá enn
skemmtilegri. Meðal þátttakenda
í ár eru meðal annars læknir, raf-
virki og lögfræðingur. Tvímæla-
laust skemmtilegir þættir fyrir
ungt fólk.
bbm
Love Island sýndir á itv2
landsmót UMFÍ fer fram dagana
12.-15. júlí á Sauðárkróki í Skaga-
firði og verður talsvert annar brag-
ur á mótinu í ár. Skessuhorn setti
sig í samband við Sigurð Guð-
mundsson, sem tók við sem fram-
kvæmdastjóri UMSB fyrr á þessu
ári, á skrifstofu hans í Borgarnesi.
Hann er fenginn að segja frá þeim
breytingum sem fyrirhugaðar eru á
mótinu. „Ég vann hjá Ungmenna-
félagi Íslands í nokkuð mörg ár og
þekki landsmótið vel. Ég tók sjálf-
ur þátt í mörgum mótum þar sem
sundið var mín aðal íþrótt,“ segir
Sigurður og minnist þess að lands-
mótið árið 1997 sem haldið var í
Borgarnesi hafi verið hans uppá-
halds mót en það ár var hlaupa-
brautin og sundlaugin tekin í gagn-
ið þar í bæ.
Nú verður landsmótið með
breyttu sniði og mótið eins og
það þekkist heyrir sögunni til.
„landsmótið hefur alltaf einken-
nst af stigakeppni milli félaga. Nú
er búið að þurrka þá keppni út. Þess
í stað verður mótið meira eins og
Unglingalandsmótið sem fer fram
ár hvert um Verslunarmannahel-
gi.“
Hver sem er
getur tekið þátt
Með breytingunum er UMFÍ að
hvetja alla einstaklinga til að taka
þátt en ekki bara keppnisfólk þó
vissulega sé keppni einnig að finna
í dagskránni. „Þú gætir til dæmis,“
segir Sigurður og bendir á blaða-
Landsmót UMFÍ hefur tekið breytingum í tímans rás
Keppnishópur UMSB á unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi 2010.
Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri UMSB, við hlaupabrautina í Borgarnesi.