Skessuhorn - 04.07.2018, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 2018 25
Nemendur úr Tónslistarskóla
Akraness skipta með sér vikum
í sumar og spila lifandi tónlist í
Akranesvita á Breiðinni. Nemend-
urnir sem spila hverju sinni fá þá
að taka sér pásu frá vinnuskóla-
störfum og fara í staðinn eftir há-
degi og spila í Vitanum frá klukk-
an 13 til 16 fyrir gesti og gang-
andi. Vikuna 25.-29. júní voru
þær Guðrún Karítas Guðmunds-
dóttir og Hekla María Arnardótt-
ir sem tóku vaktina í vitanum og
sögðu þær þetta vera skemmtileg
tilbreytingu. glh
Lifandi tónlist flutt í Akranesvita
Guðrún Karítas söng og Hekla María spilaði undir á gítar fyrir gesti Akranesvita.
Einstakt, hlýlegt og notalegt, eru
orð sem fólk á faraldsfæti hefur
notað til að lýsa stemningunni í
Blómasetrinu Kaffi Kyrrð í Borg-
arnesi. Nú hafa töluverðar breyt-
ingar orðið á rekstrinum og kíkti
blaðamaður í heimsókn til að taka
stöðuna. Þegar komið var á stað-
inn tók við hlýlegt og notalegt um-
hverfi, akkúrat staður til að leita
skjóls fyrir þrálátri rigningunni.
Þægileg tónlist hljómaði um kaffi-
húsið og sjá mátti gestina hafa það
huggulegt í hverju horni með heitt
kaffi og kruðerí.
Í rekstri síðan 2006
Svava Víglundsdóttir tók við rekstri
Blómabúðar Dóru árið 2006 og
rekur það með eiginmanni sínum
Unnsteini og dóttur sinni Katrínu
Huld. Þegar þau tóku við var búð-
in staðsett í Hyrnutorgi við Borg-
arbraut og lausasala blóma helsta
söluvaran ásamt tilheyrandi gjafa-
vörum. Árið 2012 flytur Svava
reksturinn í húsnæði að Skúlagötu
13 þar sem skartgripabúðin Kristý
var til húsa í mörg ár. „Ég sá strax
möguleikana sem voru í boði þeg-
ar við fluttum á Skúlagötuna. Við
vildum nýta húsnæðið vel þann-
ig að ári eftir að við fluttum byrj-
uðum við með Kaffi Kyrrð og svo
gistiaðstöðu á efri hæð hússins,“
segir Svava sem er með margra
ára reynslu í þjónustugeiranum.
Hún vann til að mynda í tvo ára-
tugi sem hótelstjóri á Vopnafirði,
rak veiðihúsið við Selá og í tíu ár
sá hún um veiðihúsið við Hauka-
dalsá. „Í dag hefur gistiaðstaðan
dafnað. Það er gistipláss fyrir allt
að 30 manns hjá okkur í þremur
íbúðarhúsum. Þetta er allt mjög
heimilislegt og við leggjum mikla
áherslu á að fólki líði eins og það
sé heima hjá sér á meðan það dvel-
ur hjá okkur.“
Lausasölu blóma hætt
Mikil vinna og ábyrgð fylgir rekstri
sem Blómsetrinu og ávallt að
mörgu að huga. „Til þess að svona
rekstur gangi þarf sterkar stoð-
ir og gott starfsfólk og hef ég ver-
ið þeirrar gæfu njótandi að hafa,“
segir Svava. Um áramótin hrjáðu
mjög erfið veikindi fjölskylduna
sem vakti Svövu til umhugsun-
ar um endurskoðun á rekstrinum.
„Þetta var erfiður tími hjá okk-
ur og þá sannaðist hversu mikils
virði mannauður er. Katrín hefur
verið með mér í rekstri síðan hún
var fjögurra ára gömul og gat hún
gripið inn í þar sem hún er hægri
hönd mín og þekkir alla innviði
fyrirtækisins. Þetta var líka tími
sem fékk mig til að staldra aðeins
við og hugsa. Ég tók þá ákvörð-
um í janúar að hætta með lausa-
sölu blóma eða blómabúðina í
þeirri mynd eins og hún var. Þetta
var ekki auðveld ákvörðun né tek-
in í flýti en þetta var nauðsynlegt
til að minnka álagið,“ segir Svava.
Þó svo að lausasala blóma sé hætt
þá munu þau halda áfram að veita
þjónustu fyrir jarðarfarir og brúð-
kaup. Einnig verður hægt að kaupa
smá gjafavörur og pottablóm.
Enginn dagur eins
Svövu þykir afskaplega gaman í
vinnunni og segir engan dag eins.
„Það er svo gaman að hitta fólk-
ið sem kemur hingað í heimsókn
til okkar. Markmið okkar hérna
á Blómasetrinu – Kaffi Kyrrð er
að skapa rými þar sem fólk get-
ur fundið ró, kyrrð og vellíðan og
gangi út með gleði og ró í hjarta
og huga,“ segir Svava að endingu.
glh
Blómasetrið – Kaffi Kyrrð í Borgarnesi breytir til
Svava Víglundsdóttir rekur Blómasetrið Kaffi Kyrrð ásamt fjölskyldu sinni.
Hjá Blómasetrinu er gistiaðstaða fyrir 30 manns.
Gestir geta pantað sér kaffi og léttar veitingar.
Veggskreytingar eru margar og mis-
munandi á Kaffi Kyrrð.
Rýmið þar sem blómasalan var er nú orðin hugguleg stofa. Hér má sjá gesti skemmta sér yfir spili.