Skessuhorn - 04.07.2018, Qupperneq 31
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚlÍ 2018 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skagakonur áttu frábæran dag þegar
þær tóku á móti Sindra á Akranes-
velli í Inkasso-deild kvenna síðast-
liðinn fimmtudag. ÍA gerði sér lít-
ið fyrir og skoraði ellefu mörk gegn
gestunum sem verma botnsætið í
deildinni. ljóst var í upphafi leiks
að mikilvægt var fyrir heimamenn
að tryggja þrjú stig til að halda sér í
toppbaráttunni.
Það var Unnur Ýr Haraldsdóttir
sem skoraði tvö mörk stuttu eftir að
leikurinn hófst og setti þannig tón-
inn á markaveislunni sem framundan
var. Alls gerði Unnur Ýr fimm mörk
í leiknum. Þær stúlkur sem einnig
lögðu boltann í netið voru Heiðrún
Sara Guðmundsdóttir, Maren leós-
dóttir, Erla Karítas Jóhannesdóttir
og svo Bergdís Fanney Einarsdóttir
með tvö. Sindri átti engin svör gegn
sóknarleik þeirra gulu og lokatöl-
ur því 11-0. Með sigrinum batt ÍA
enda á þriggja leikja taprunu sína.
Skagakonur eru í fjórða sæti
deildarinnar, jafnmörg stiga og
Fylkir sem er í þriðja sæti þegar sjö
umferðir eru búnar og hefur Vestur-
landsliðið góða möguleika á að setja
sig í baráttu með efstu liðum. Kefla-
vík trónir á toppnum með 13 stig,
jafnmörg stiga og Haukar.
glh
Markaveisla á Akranesvelli
ÍA stúlkur tóku Sindra í kennslustund. Ljósm/ aðsend.
Síðastliðinn laugardag fór Snæ-
fellsjökulhlaupið fram í áttunda
sinn. Hlaupnir eru 22 kílómetr-
ar frá Arnarstapa yfir Jökulháls og
endað í Ólafsvík. Keppendur voru
að þessu sinn 164 og hefur fjöldi
þeirra aukist mikið frá því það var
haldið í fyrsta skiptið, en þá voru
keppendur 50. Á síðasta ári var
reyndar metfjöldi þegar 211 hlaup-
arar þreyttu þessa þolraun. Úrslit
nú urðu þau að í fyrsta sæti karla
varð Ingvi Hjartarson sem hljóp á
tímanum 1,37,03. Í kvennaflokki
sigraði Helena Ólafsdóttir á tíman-
um 2,01,35.
af
Snæfellsjökulshlaupið var á laugardaginn
Hlaupaleiðin er erfið og mikið um brekkur, lausamöl og á leiðinni var m.a. fimm kílómetra snjóskafl sem hlaupa þurfti yfir.
Ari Bjarnarson tannlæknir í Ólafsvík kemur hér í mark. Keppendur kæla þreytta fætur eftir hlaupið í Bæjargilinu.
Ingvi Hjartarson sigurvegari í karla-
flokki með verðlaun sín.
Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍA í
Vesturlandsslag í níundu umferð In-
kassodeildarinnar í fótbolta á föstu-
daginn. leikurinn var spilaður á nýja
gervigrasvellinum í Ólafsvík.
Hátt spennustig einkenndi leik
liðanna og mikil barátta var í mönn-
um. Það var Alexander Helgi Sig-
urðsson sem kom heimamönnum
yfir þegar fimmtán mínútur voru
liðnar af leik þegar hann smellhitti
boltann af löngu færi og dúndraði
honum yfir markvörð ÍA og í möskv-
ana. Þrátt fyrir að spila fallega knatt-
spyrnu gekk ekki vel hjá gestunum að
setja boltann í markið og vantaði oft
herslumuninn á lokasendinguna inn
fyrir vörn heimamanna.
Víkingur byrjaði seinni hálfleik af
krafti en margt var þó keimlíkt með
þeim fyrri. Það var svo á 78. mínútu
að Víkingsmenn bættu stöðu sína
þegar löng sending kom inn fyrir
vörn Skagamanna þar sem Gonzalo
Zamorano tók við boltanum og vipp-
aði yfir Árna Snæ Ólafsson markvörð
ÍA. Töluverður pirringur varð milli
manna og fóru gulu spjöldin á loft.
Gestirnir sýndu þó neista á lokamín-
útum leiksins og það var á fimmtu
mínútu uppbótartímans sem Stein-
ar Þorsteinsson minnkaði muninn
fyrir þá gulklæddu í 2-1 en það var
ekki nóg og sigur Ólafsvíkur Víkings
staðreynd.
Með sigrinum hleypti Víking-
ur mikilli spennu í toppbaráttuna
í deildinni, blandar sér af þunga í
keppni HK og ÍA á toppnum, en
aðeins munar tveimur stigum á HK
í efsta sæti og Víkings í 3. sætinu í
deildinni. glh/ Ljósm. af.
Víkingur hafði betur
í Vesturlandsslagnum