Skessuhorn


Skessuhorn - 22.08.2018, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 22.08.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGúSt 20182 framleiðslu eða þjónustu, hvort sem það er á sviði fullvinnslu land- búnaðarafurða eða á öðrum svið- um atvinnulífs. „Verkefninu verð- ur hrundið af stað með fundaher- ferð. Í framhaldinu verður boðið upp á aðstoð ráðunauta við mótun hugmynda og við áætlanagerð og ekki síst við umsóknaferli til Fram- leiðnisjóðs. Áhersla verður lögð á að hvetja bændur til að hrinda úr vör hugmyndum sem mögulega hafa verið lengi í farvatninu en ekki komist til framkvæmdar. Á fund- inum í Dalabúð verða haldnir fyr- irlestrar um markmiðasetningu, reynslu fólks sem hefur ástundað vöruþróun eða tekist á við óhefð- bunda atvinnuuppbyggingu á sín- um jörðum, ásamt leiðbeiningum varðandi styrki þá sem leita má eftir til nýsköpunar. Í framhaldi þessara funda stendur fundargestum sem uppfylla skilyrði Framleiðnisjóðs varðandi styrkveitingar, til boða að fá niðurgreidda aðstoð við vinnslu umsókna til sjóðsins. Aðalfyrirlesari fundanna er Guð- mundur Guðmundsson, landsliðs- þjálfari í handbolta. Að auki verða fengnir til leiks reynsluboltar í sölu afurða beint frá býli, sem munu miðla af reynslu sinni varðandi þróun og markaðssetningu vara og þjónustu. mm Hvalfjarðardagar verða haldnir hátíðleg- ir í Hvalfjarðarsveit um komandi helgi, frá föstudegi til sunnudas með fjöl- breytti dagskrá um alla sveit. Á fimmtudag og föstudag er spáð norðlægri eða breytilegri átt, 3-8 m/s og skúrum víða um land. Sums staðar þokusúld við Norðurströndina. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast syðst á land- inu. Á laugardag er útlit fyrir hæga suð- læga eða breytilega átt, skýjað en þurrt að kalla. Hiti 7 til 13 stig. Á sunnudag og mánudag spáir austan- og suðaustanátt með rigningu, en lítill úrkomu norðan heiða. Hiti 9 til 13 stig. „Ætlar þú í nám eða vinnu í vetur?“ var spurningin sem lesendum gafst kost- ur á að svara á vef Skessuhorns í liðinni viku. Meiri hluti verður í vinnu, eða 53% en næstflestir eru hættir að vinna, eða 20%. „Bæði nám og vinnu“ sögðu 17%, „enn óljóst“ sögðu 5% og að lokum verða 4% í námi eingöngu. Í næstu viku er spurt: „Langar þig að fara út í geim?“ Ragnhildur Þorsteinsdóttir á Úlfsstöð- um í Hálsasveit er unnandi klassískrar tónlistar og líklega eitt stærsta safn slíkr- ar tónlistar í landshlutanum og þó víð- ar væri leitað. Hún sinni áhugamálinu vel og hefur til dæmis sótt allar Reyk- holtshátíðir frá upphafi. Ragnhildur er Vestlendingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Borgfirðingar bikarmeistarar VESTURLAND: Bikarmót Vest- urlands í hestaíþróttum var fellt inn í Norðurálsmót Dreyra sem haldið var um helgina á Æðar- odda. Hestamannafélögin Snæ- fellingur, Dreyri og Borgfirðingur áttu keppendur á mótinu. Hesta- mannafélagið Borgfirðingur stóð efst þessara liða og er því sigurveg- ari Bikarmóts Vesturlands að þessu sinni. -mm Byggir á eldra skipulagi LEIÐRÉTT: Í Skessuhorni í síðustu viku var fjallað um mál- efni tveggja fyrirtækja við Borgar- braut 55 í Borgarnesi. Í fréttinni var ranglega farið með að ákvörð- un um að endurnýja ekki lóðar- leigusamning við fyrirtækin byggði á nýlegu skipulagi. Hið rétta er að deiliskipulag fyrir reitinn var samþykkt af sveitarstjórn Borgar- byggðar í mars 2007 og öðlaðist gildi með auglýsingu 14. maí sama ár. Deiliskipulagið frá 2007 gerði ráð fyrir tveimur stórum bygg- ingareitum og þá í samræmi við landnotkun í aðalskipulagi sveitar- félagsins frá 1997. Árið 2016 ákvað sveitarstjórn Borgarbyggðar að breyta deiliskipulagi Borgarbrautar 55-59, vegna þess að þétta á byggð umfram það sem deiliskipulagið frá 2007 gerði ráð fyrir. Hámarks byggingarmagn fór úr 8000 m2 í 9460,8 m2. Aðalskipulag sveitar- félagsins frá árinu 1997 gerði ráð fyrir blandaðri landnotkun íbúða, verslunar og þjónustu. Aðalskipu- lag sveitarfélagsins 2010-2022, sem staðfest var af ráðherra 29. júní 2011 gerði ráð fyrir miðsvæði á reit Borgarbrautar 55-59. Þannig hef- ur ekki verið gert ráð fyrir athafna- svæði á reitnum frá 1997. Þetta leiðréttist hér með og beðist vel- virðingar. - mm Jón til aðstoðar Sigmundi LANDIÐ: Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, for- maður Miðflokksins, hefur ráðið nýjan að- stoðarmann. Hann heitir Jón Pétursson, er fæddur 1971 og stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1991. Jón lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1994, var stýrimaður til margra ára og er einn af stofn- endum Miðflokksins. Jón er giftur og á einn son og býr í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Miðflokknum. -mm FJARNÁM Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til 3. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam Verkalýðsfélag Akraness skoðaði heildarmeðallaun fyrir febrúarmán- uð hjá 16 launagreiðendum sem félagsmenn VLFA starfa hjá. Nið- urstaðan er sú að Norðurál greiðir hæstu mánaðarlaunin, að því er fram kemur í samantektinni, sem birt var á heimasíðu VLFA á miðvikudag. „Meðal heildarlaun hjá starfsmönn- um Norðuráls sem tilheyra Verka- lýðsfélagi Akraness voru í febrúar- mánuði rétt tæp 660 þúsund á mán- uði og hjá starfsmönnum Skagans voru meðallaunin rétt tæp 650 þús- und kr. á mánuði. Meðallaun hjá Norðuráli, Skaganum, Þorgeiri og Ellert og Elkem Ísland voru öll frá 640 þúsundum og upp í tæp 650 þúsund á mánuði,“ segir á vef verka- lýðsfélagsins. Þar er þó skýrt tekið fram að um heildarmeðallaun er að ræða þar sem ekki er tekið tillit til vinnu- stundafjölda, vaktafyrirkomulags, né starfshlutfalls starfsmanna. Lægst voru heildarmeðallaun febrúarmán- aðar hjá starfsmönnum á Heilbrigð- isstofnun Vesturlands á Akranesi og hjá Akraneskaupstað. „En rétt er að vekja sérstaka athygli á því að fjöl- margir sem starfa á þessum stöð- um eru í skertu starfshlutfalli og því gefa meðallaunin á þessum stöð- um ekki rétta mynd af launum fyrir 100% starf. Hins vegar liggur fyrir að langflestir eru í 100% störfum hjá öllum hinum fyrirtækjunum og því eiga meðal heildarlaunin að gefa rétta mynd þar en að sjálfsögðu er vinnustundafjöldinn misjafn á milli fyrirtækja.“ kgk Hæst meðallaun í Norðuráli samkvæmt samantekt VLFA Tafla yfir meðallaun í febrúar samkvæmt samantekt VLFA, án tillits til vinnustunda eða starfshlutfalls. Ljósm. VLFA. Forsvarsaðilar Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, í samstarfi við RML, hafa ákveðið að hrinda af stað verkefni sem hefur það að markmiði að hvetja til nýsköpun- arstarfs í sveitum. Leitast verður við að miðla þekkingu og reynslu þeirra sem þegar hafa farið af stað með nýsköpunarverkefni og styðja við hugmyndavinnu og þróun verk- efna frá hugmynd til raunveruleika. Átaksverkefni þetta hefur verið nefnt Gríptu boltann. Kynningar- fundur um verkefnið verður hald- inn í Dalabúð í Búðardal föstudag- inn 24. ágúst kl. 13-15. Frá þessu var greint á vef Dalabyggðar. Markhópur verkefnisins eru bændur á lögbýlum sem eru að velta fyrir sér sölu á hvers kyns Kynningarfundur þar sem bændur eru hvattir til nýsköpunarstarfs

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.