Skessuhorn


Skessuhorn - 22.08.2018, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 22.08.2018, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGúSt 2018 21 Skólaárið hjá Menntaskóla Borg- arfjarðar hófst mánudaginn 20. ágúst með sameiginlegum morg- unverði nýnema og starfsfólks. Þar fengu nýnemar stundatöflur sín- ar afhentar og kennslu á kerfi skól- ans. Hefðbundið skólastarf hófst svo í gær samkvæmt stundatöflu. Í haust hefja 109 nemendur nám við skólann og verða þrettán í fjarnámi. Guðrún Björg Aðalsteinsdótt- ir, skólameistari, segir nemendur og starfsfólk Menntaskóla Borgar- fjarðar mjög spennt fyrir komandi vetri en margt er í farvatninu bæði hvað varðar nám og félagslíf. Mörg tækifæri fyrir nemendur Í haust hefst kennsla í fyrsta skipti við fjármálalæsi fyrir lengra komna nemendur. „Það er okkar trú að kennsla í fjármálalæsi sé mikilvæg og mjög hagkvæm fyrir nemend- ur,“ útskýrir Guðrún Björg í sam- tali við Skessuhorn. „Við förum einnig af stað með tvo nýja áfanga á vorönninni. Þeir eru skapandi greinar (tónlist, hljóð og mynd) og svo áfanga í félags- og náttúruvís- indum sem er sérstaklega hugsuð fyrir framhaldsskólabraut,“ bætir hún við. Þá mun myndlistarkonan Mic- helle Bird í samstarfi við skólann bjóða upp á vinnustofu fyrir nem- endur MB með það að markmiði að efla víðsýni og gefa nemendum tækifæri á að kynnast fleiri þáttum í nútímasamfélagi. Samhliða þessu verður sett upp sýning sem gest- um er velkomið að koma og kynna sér en Guðrún Björg segir að þetta verði auglýst síðar. Menntaskóli Borgarfjarðar er einnig þátttakandi í tveimur er- lendum verkefnum um þessar mundir. Annað er samstarfsverk- efni Menntaskólans við aðra skóla í Skotlandi, Hollandi og á Spáni. „Nemendur fá til að mynda mögu- leika á að komast í verkefni í er- lendum samskiptum. Farið verður til dæmist til Skotlands með hóp nemenda í október. Það verkefni snýst um sjálfbærni í umhverfis- málum,“ segir skólameistarinn. „Í apríl var farið með tíu nemendur til Noregs þar sem unnið var með norrænar sögur og áætlað er að norðmenn heimsæki svo skólann okkar hingað í Borgarnes á næstu misserum.“ Gott samstarf milli skóla í Borgarbyggð Menntaskóli Borgarfjarðar er for- sprakki að svokölluðum skóladegi sem haldinn verður sameiginlegur milli allra skólastiga í Borgarbyggð í mars á næsta ári. „Undirbúning- ur er farinn vel af stað og verkefnið mjög spennandi. Mikið er lagt uppúr fjölbreytni, að virkja frum- kvæði og sköpunargleði ásamt því að blanda saman skemmtun, fróð- leik, boðskap, umræðum og leikj- um,“ segir Guðrún Björg. Skólinn leggur mikið upp úr samstarfi við aðrar menntastofn- anir og nýtur Borgarfjörður þeirr- ar sérstöðu að geta boðið uppá öll skólastig allt frá leikskóla upp í há- skóla ásamt tónlistarskóla og sí- menntunarmiðstöð. MB er til að mynda í góðu samstarfi við Há- skólann á Bifröst og áformar há- skólinn að bjóða áhugasömum nemendum Menntaskóla Borgar- fjarðar sem og grunnskólanem- endum í Borgarbyggð í heimsókn í eins konar nýsköpunar BootCamp. „Þetta er liður í að kynna það sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða hvað varðar menntun.“ Öflugt félagslíf Leiklistarfélagið Sv1 fékk styrk úr menningarsjóði fyrir skemmstu og er áætlað að setja upp leik- verk á skólaárinu. WestSide verð- ur á sínum stað en það er sam- starfsverkefni Menntaskóla Borg- arfjarðar, Fjölbrautaskóla Vestur- lands og Fjölbrautaskóla Snæfell- inga þar sem nemendur skólanna etja kappi í hinum ýmsum íþrótta- greinum, hefðbundnum sem og óhefðbundnum greinum, og enda svo daginn á dansleik. Í ár fer við- burðurinn fram í FSN í Grundar- firði. Þá hefur nemendafélagið ver- ið í samskiptum við nemendafélag tækniskólans, Framhaldsskólans í Mosfellsbæ og Borgarholtsskóla um sameiginlegan skemmtidag sem einnig endar með dansleik. glh SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS Menntaskóli Borgarfjarðar: „Margt í farvatninu varðandi nám og félagslíf“ Hefðbundin kennsla hófst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 21. ágúst. Ljósm. úr safni. Um liðna helgi fóru fram nýnema- dagar og skólasetning Háskólagátt- ar við Háskólann á Bifröst í Borgar- firði og var skipulögð dagskrá fyrir nýnema frá föstudegi til sunnu- dags. Þá var meðal annars farið yfir réttindi og skyldur nemenda í há- skólanum og kennslukerfi skól- ans kynnt. Nýnemadagar grunn- og meistaranema fer svo fram um helgina og hefst formleg dagskrá á fimmtudag þegar Vilhjálmur Eg- ilsson, rektor háskólans, ávarp- ar nemendur, kennara og gesti við skólasetningu. Kennsla fer á fullt í framhaldi af því. „Nýnemar í skól- anum í haust verða eitthvað á fjórða hundrað þegar allt er talið og nem- endur alls líklega um 600,“ seg- ir Vilhjálmur í samtali við Skessu- horn. „Mun fleiri eru að koma inn í grunnnámið í haust en á síðasta ári,“ bætir hann við. Umsóknir í Háskólann á Bifröst eru um 25% fleiri en á síðasta ári og er fjölgun- in fyrst og fremst í umsóknum um grunnnám sem eru tæplega 50% fleiri en í fyrra. Vilhjálmur segir meistaranámið vera enn í sókn eftir mikinn vöxt í fyrra. Fyrir ári síðan fjölgaði meistaranemum úr um 70 í 100 við háskólann og ætla má að um 5% aukning verði í ár. Í heild eru umsóknir í skólann um 16% fleiri en í fyrra. Fjarnám í fararbroddi Viðskiptafræðin er vinsælasta náms- leiðin á meðal nemenda í grunn- námi og nýtt diplómanám í opin- berri stjórnsýslu fer vel af stað seg- ir rektor skólans. Í meistaranámi er vinsælasta námslínan forysta og stjórnun. Skólinn hefur einnig ver- ið í fararbroddi í fjarnámi og er sú námsleið orðin ráðandi þar sem rúmlega 80% nemenda velja það fyrirkomulag. „Skólinn er í far- arbroddi í fjarnámi og nýjungar í námsframboði og kennsluháttum hafa skilað sér vel. Bifröst er 100 ára á þessu ári og hlutverk skólans hefur alla tíð verið að mennta fólk fyrir leiðandi hlutverk í atvinnulíf- inu og samfélaginu. Skólinn mun halda áfram að þróast eins og þarf til að gegna hinu mikilvæga hlut- verki sínu í íslensku samfélagi,“ segir Vilhjálmur. Háskólinn á Bifröst fagnaði 100 ára afmæli sínu í ár og hófst form- leg afmælishátíð í febrúar á árinu með hátíðlegri athöfn. Hátíðarvið- burðir hafa verið síðan þá yfir árið og verður afmælishátíðinni slúttað með formlegri afmælisveislu þann 3. september næstkomandi. Afmæl- isveislan fer fram á Bifröst þar sem margir góðir gestir munu heiðra samkomuna með nærveru sinni. Háskólinn hefur meðal annars boð- ið Guðna th. Jóhannessyni, forseta Íslands, að vera viðstaddur þennan merkis dag. glh Töluverð fjölgun nýnema við Háskólann á Bifröst Umsóknir í háskólann um 25% fleiri en á síðasta ári Nemendur á Bifröst. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.