Skessuhorn - 22.08.2018, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGúSt 2018 15
Búsæld; markaður með mat og
handverk, sem rekinn er í samstarfi
við Svæðisgarðinn Snæfellsnes í
félagsheimilinu Breiðabliki, fagn-
ar um þessar mundir eins árs af-
mæli. Búsæld, sem á rætur sínar að
rekja til sveitamarkaðar á sunnan-
verðu Snæfellsnesi, var opnuð fyrir
ári síðan sem tilraun til þess að reka
heilsársaðstöðu fyrir sölu á mat og
handverki beint frá býli. „Hér get-
ur handverksfólk af Snæfellsnesi
selt vörur sínar gegn aðstöðugjaldi.
Einnig fást matvörur beint frá býli
sem uppfylla allar gæðakröfur. Bú-
sæld hefur skýra stefnu í umhverf-
ismálum. Lögð er áhersla á íslensk
og náttúruleg hráefni við fram-
leiðslu á vörum og eiga umbúðir að
vera eins umhverfisvænar og kostur
er. Burðarpokar úr plasti eru ekki
í boði en taupokar framleiddir hjá
fjöliðjum á Snæfellsnesi eru seldir í
staðinn,“ segir í tilkynningu.
Að sögn aðstandenda Búsæld-
ar hefur verkefnið fengið frábærar
viðtökur og salan gengið vonum
framar. „Aðalviðskiptavinir eru er-
lent ferðafólk en heimafólk hefur
ekki látið sig vanta og er markaður-
inn orðinn vinsæll áfangastaður Ís-
lendinga. Í byrjun sumars flutti Bú-
sæld í stærra og endurbætt rými og
er búin að stækka og dafna síðan þá.
Þeir sem að þessu verkefni koma
eru ákveðnir í að halda áfram og
vilja bjóða öllum sem eiga leið hjá
í heimsókn. Öðru hvoru má hitta
handverksfólk að störfum í Búsæld
og t.d. taka þátt í prjónakaffi. Fyrir
þá sem vilja frekari upplýsingar um
Búsæld er hægt að hafa samband í
tölvupósti breidablikbud@gmail.
com eða í gegnum Facebooksíðu
Búsældar.“
mm
Búsæld í Breiðabliki
er eins árs
Það eru ekki bara sjómenn sem
moka inn makríl þessa dagana,
heldur hefur einnig hlaupið á
snærið hjá áhugamönnum um
bryggjuveiðar. Þessar mæðgur
frá tælandi, búsettar í Hvera-
gerði, voru að veiðum á bryggj-
unni í Ólafsvík á sunnudaginn
og mokveiddu makríl, sandkola
og þorsk, svo óhætt er að segja
að Breiðafjörðurinn bjóði upp á
margar fisktegundir. af
Mæðgur
mokveiddu
makríl
Þrjár útgerðir línubáta í Snæ-
fellsbæ hafa sameinast um að
leigja Fiskiðjuna Bylguna af
skiptastjóra þrotabúsins sem fer
með ráðstöfun eigna. útgerða-
félögin leigja húsnæðið und-
ir frystingu á makríl sem not-
uð verður í beitu. „Við erum
að frysta 25 tonn á sólarhring,“
segir Arnór Ísfjörð Guðmunds-
son annar verkstjóranna í sam-
tali við Skessuhorn. „Þetta skap-
ar um tíu störf hjá okkur. Það er
unnið á tvískiptum vöktum og
má segja að makríllinn sé eins
ferskur og hægt er að hugsa sér
þegar hann fer í frystingu. Ætl-
unin er að frysta um 300 tonn
fyrir þessar útgerðir. Ef allt
gengur vel upp eigum við líka
möguleika að frysta fyrir aðra,“
segir Arnór.
af
Fiskiðjan Bylgja tekin á
leigu undir makrílfrystingu
Arnór Ísfjörð með nýfrystan makríl.
Markílinn er
heilfrystur.