Skessuhorn


Skessuhorn - 12.09.2018, Side 7

Skessuhorn - 12.09.2018, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 2018 7 569 6900 09:00–16:00www.ils.is Húsnæðismál á landsbyggðinni –Tilraunaverkefni Markmið verkefnisins er að leita leiða til þess að bregðast við þeim mikla húsnæðisvanda sem ríkir víðsvegar á landsbyggðinni, m.a. vegna óvirks íbúða- og leigumarkaðar og skorts á viðunandi íbúðarhúsnæði. Horft er til þess að 2-4 sveitarfélög taki þátt í tilraunaverkefninu og að verkefnið nái að fanga mismunandi áskoranir á ólíkum landsvæðum. Þannig geta þær lausnir sem verkefninu er ætlað að móta nýst á sem breiðustum grunni. Verkefnið tekur mið af stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar sem og stefnumótandi byggðaáætlun sem samþykkt var á Alþingi þann 11. júní 2018. Í byggða- áætlun er m.a. kveðið á um markmið um fjölgun íbúða á svæðum þar sem skortur á hentugu íbúðar- húsnæði hamlar uppbyggingu í sveitarfélaginu. Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins er grundvallar- forsenda fyrir þátttöku í verkefninu. Hafi sveitar- félagið ekki þegar unnið slíka áætlun og skilað til Íbúðalánasjóðs þarf það að hafa til þess vilja og getu að ljúka við gerð hennar. Þau sveitarfélög sem óska eftir að taka þátt í verk- efninu eru beðin um að hafa samband við Sigrúnu Ástu Magnúsdóttur, deildarstjóra á húsnæðis- sviði Íbúðalánasjóðs, á netfangið sigrun@ils.is fyrir 30. september 2018. Íbúðalánasjóður óskar eftir þátttöku sveitarfélaga í tilraunaverkefni um uppbyggingu húsnæðismála á lands- byggðinni Umsóknarfrestur: 30. september 2018 Umhverfis-, skipulags- og land- búnaðarnefnd borgarbyggðar hafði á síðasta fundi sínum til umfjöllun- ar lýsingu á breytingu á aðalskipu- lagi borgarbyggðar 2010-2022 fyr- ir Iðunnarstaði í Lundarreykjadal. Fram kom í afgreiðslu nefndar- innar að engar ábendingar bárust sveitarfélaginu í lýsingarferli. sam- kvæmt tillögu sem Landlínur unnu og lögð var fyrir nefndina, er fyrir- hugað að breyta landnotkun hluta úr jörðinni úr landbúnaði í verslun- og þjónustu (hótel) og opið svæði til sérstakra nota (tjaldsvæði). Ástæða breytingar á skipulaginu er að fyrir- hugað er að hefja gisti- og veitinga- starfsemi ásamt þjónustu við tjald- svæði á Iðunnarstöðum. breyting- in mun taka til 4,2 ha svæðis, versl- unar- og þjónustusvæði verði 1,6 ha og opið svæði til sérstakra nota 2,6 ha. Iðunnarstaðir eru innarlega í sunnanverðum Lundarreykjadal, um miðja vegu milli Þingvalla um Uxahryggi og borgarness. Þaðan eru um 44 km á Þingvelli og 39 km í borgarnes. mm Horft til norðurs. Iðunnarstaðir í Lundar- reykjadal fremst á mynd en fjær er m.a. Brenna. Ljósm. úr safni: Mats Wibe Lund. Áform um tjaldstæði og hótel á Iðunnarstöðum bókaútgáfan sæmundur hefur end- urútgefið hina frægu ævisögu Guð- mundar einarssonar refaskyttu, Nú brosir nóttin. Guðmundur einarsson á brekku á Ingjaldssandi var goðsögn í lif- anda lífi. Hann var náttúrubarn sem litið var upp til fyrir einstaka hæfileika. Hér er lýst samskiptum manns við náttúruna, væntumþykju og virðingu fyrir sköpunarverkinu. Guðmundur ólst upp við kröpp kjör á seinasta aldarfjórðungi 19. aldar. Hann lýsir hér föðurmissi og erfiðri lífsbaráttu barns sem líður slíkan skort að vöxtur þess stend- ur í stað árum saman. Uppkominn varð Guðmundur samt eftirsóttur fyrir hreysti og harðfengi en einn- ig næmi á eðli náttúrunnar. Lífs- viðhorf Guðmundar refaskyttu og umhverfisvitund eiga fullt erindi við samtímann. Auk ævisögunnar sem rituð er af theódóri Gunnlaugssyni á bjarma- landi birtast hér í hinni nýju útgáfu viðaukar sem varpa frekara ljósi á líf refaskyttunnar, bæði skrif um Guð- mund og skrif eftir hann sjálfan. mm Endurútgáfa ævisögu Guðmundar refaskyttu Hb Grandi hf. hefur gert samn- ing um kaup á öllu hlutafé í útgerð- arfélaginu Ögurvík ehf. seljandi hlutafjárins er brim hf. bæði fyrir- tækin hafa aðsetur í Reykjavík, en einungis tvö ár eru síðan brim festi kaup á fyrirtækinu. Kaupverðið er um 12,3 milljarðar króna en getur tekið leiðréttingu þegar niðurstaða fjárhagsuppgjörs félagsins miðað við 31. ágúst síðastliðinn liggur fyr- ir. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Hb Granda hf. og hluthafafundar félagsins. Þá eru viðskiptin einnig háð samþykki samkeppniseftirlitsins um samruna fyrirtækjanna. Kaupin verða fjár- mögnuð með eigin fé og lánsfjár- magni, segir í tilkynningu frá Hb Granda. Jafnframt liggur fyrir vilji stjórnar Hb Granda til að skoða sölu félagins á frystitogara sem nú er í smíðum á spáni. mm HB Grandi kaupir Ögurvík

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.