Skessuhorn - 12.09.2018, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 2018 23
steinunn Guðmundsdóttir frá
Hvammi í Hvítársíðu sendi
skessuhorni tvær sextán ára
myndir lesendum til skemmtun-
ar. Voru þær teknar í Nesmelsrétt
haustið 2002. Á annarri er réttar-
fólk úr síðunni, en hinni Ásmund-
ur eysteinsson frá Högnastöðum,
sem tvímælalaust var fjárgleggsti
maður sem uppi hefur verið. mm
Úr Nesmelsrétt
fyrir sextán árum
svipmyndir úr réttum síðustu daga
Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson bóndi stendur hér framan við Bakkkotsdilkinn í Þverárrétt, skömmu áður en hleypt var út og
reksturinn hélt heimleiðis niður Þverárhlíðarveginn. Ljósm. mm.
Hér koma fyrstu kindurnar af Arnarvatnsheiði þegar langt
var liðið á laugardagskvöldið. Réttað var í hinni fornu
Fljóts tungurétt. Ljósm. mm.
Gangnamenn koma af Arnarvatnsheiði. Veður var stillt og því
gekk hægt að reka safnið til réttar. Ljósm. mm.
Á spjalli við Þverárrétt. F.v. Sigurður Magnússon frá Bergi,
Magnús Magnússon á Hamraendum og Kristinn Egilsson.
Ljósm. mm.
Réttað var í Svignaskarðsrétt í Borgarhreppi síðastliðinn
mánudag. Ljósm. Þórólfur Sveinsson.
Rekið inn í Skarðsrétt. Jómundur Ólafson rekur inn og
Einar Magnússon fylgir á eftir. Ljósm. Þórólfur Sveinsson.
Á miðvikudag í liðinni viku var réttað í Oddsstaðarétt í
Lundarreykjadal í hægu veðri, en þokuloft var niður í miðjar
hlíðar. Ljósm. Gro J Hansen.
Hún Arnfríður Birna Jóhannsdóttir tíndi fallegan blómvönd meðan fullorðna
fólkið dró féð í Oddsstaðarétt. Ljósm. Gro J Hansen.
Féð rekið í Ljárskógarétt í Dölum. Ljósm. Svala Svavarsd.