Skessuhorn - 12.09.2018, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 12. septeMbeR 2018 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Keppt var um Kristmundarbikar-
inn í golfi í Grundarfirði á laug-
ardaginn. Mótið er minningarmót
um Kristmund Harðarson, sem lést
fyrir aldur fram árið 2009. Mót-
ið var opið punktamót og spilað-
ur var betri bolti. Þátttaka var góð
í mótinu, frábært golfveður, glæsi-
legar veitingar og síðan var grillað
ofan í kylfinga að móti loknu. Fór
svo að lokum að benedikt Lárus
Gunnarsson og Guðni sumarliða-
son sigruðu og hömpuðu því Krist-
mundarbikarnum góða.
sk
Það var mikið undir hjá báðum lið-
um á Akranesvelli þegar skagamenn
tóku á móti Víkingi frá Ólafsvík í
Inkasso-deildinni á laugardaginn.
Með sigri skagamanna gátu þeir
tryggt sér sæti í pepsi-deildinni á
næsta tímabili og um leið gert út
um vonir Víkinga að komast upp.
sigur Ólsara hefði hins vegar þýtt
að Víkingur hefur góðan mögu-
leika að komast upp þegar aðeins
tveir leikir yrðu eftir. bæði lið voru
án lykilleikmanna; Víkingar án
Kwame Quee sem er þessa helgina í
landsliðsverkefni með sierra Leone
en hann hefði þrátt fyrir það ekki
leikið vegna leikbanns fyrir fjögur
gul spjöld á leiktíðinni. skagamenn
léku svo án Ólafs Vals Valdimars-
sonar sem einnig tók út leikbann og
Harðar Inga Gunnarssonar sem er í
landsliðsverkefni með U-21.
skagamenn áttu fyrir leikinn
fremur sárar minningar af heim-
sóknum Ólafsvíkur á Akranesvöll.
Liðin höfðu fyrir daginn mæst sex
sinnum á Akranesi í Íslandsmóti og
skagamenn aðeins unnið einu sinni
en 5-0 sigur Víkings árið 2013 líð-
ur skagamönnum seint úr minni.
sú Ólafsvíkurgrýla sem hvílir yfir
Akranesvelli var ekki kveðin í burtu
á laugardaginn en leiknum lauk
með 1-1 jafntefli.
stuðningsmenn beggja liða fylltu
stúkuna í mildu rigningarveðri og
fengu þeir töluverða skemmtun í
fyrri hálfleik. skagamenn byrjuðu
leikinn ívið betur og sóttu nokkuð
þungt að marki Víkings. Á 14. mín-
útu leiksins fengu skagamenn svo
hornspyrnu sem Ragnar Leósson
tók. Ragnar sendi boltann á fjær-
stöng þar sem Arnór snær Guð-
mundsson skallaði hann fyrir mark-
ið og þar kom Arnar Már Guðjóns-
son á ferðinni og kom knettinum í
netið.
Leikmenn Víkings vöknuðu til
lífsins við mark skagamanna og
varð jafnræði með liðunum út hálf-
leikinn. Það var svo komið að Óls-
urum að nýta sér hornspyrnu en
hana fengu þeir á 33. mínútu. eft-
ir fína hornspyrnu sem Árni snær í
marki skagamanna sló í burtu barst
boltinn á Vigni snæ stefánsson
sem lagði boltann fyrir sig óáreittur
í teignum og lagði hann snyrtilega
í markið. staðan 1-1 eftir skemmti-
legan fyrri hálfleik.
síðari hálfleikur var öllu rólegri
og lítið um góð færi hjá liðunum.
Þegar leið á hálfleikinn bættu Óls-
arar í sóknina en skagamenn virtust
ætla að halda fengnum hlut. Þrátt
fyrir ógn Ólsara að marki skaga-
manna í restina náðu þeir ekki að
skapa sér ákjósanlegt færi. Niður-
staðan því 1-1 jafntefli í Vestur-
landsslagnum og á heildina litið
sanngjörn úrslit.
Jafnteflið þýðir að skagamenn
missa toppsætið en eru komn-
ir í mjög góða stöðu fyrir síðustu
tvo leikina og dugar þeim tvö stig
úr þeim leikjum til að tryggja sæti
í efstu deild. Víkingur hins veg-
ar færðist fjær draumnum um sæti
í efstu deild með úrslitunum. Þeir
þurfa að vinna báða sína leiki og
treysta á það að skaginn tapi báð-
um sínum.
Næstu leikir Vesturlandslið-
anna eru laugardaginn 15. septem-
ber næstkomandi klukkan 14:00;
skagamenn gegn selfossi á úti-
velli og Víkingur gegn Njarðvík á
heimavelli í Ólafsvík. bþb
seinni hluti vinaklúbbakeppni
Golfklúbbsins Vestarr og Golf-
klúbbsins Mostra fór fram í Grund-
arfirði á sunnudag. Leiknar voru
þrjár umferðir; texas, Greensome
og einmenningur.
Leikar fóru þannig að Mostra-
menn höfðu vinninginn með 17,5
gegn 7,5 skori félaga í Golfklúbbn-
um Vestarr.
sk
M e i s t a r a f l o k k u r
kvenna vann góðan
sigur á sameigin-
legu liði Aftureld-
ingar/Fram í síð-
asta heimaleik sín-
um á Akranesvelli
í Inkassodeildinni
á mánudaginn. Leik-
urinn var þýðingarlít-
ill fyrir bæði lið þar sem ljóst
var að Fylkir og Keflavík eru þau
tvö lið sem fara upp í pepsídeild-
ina að ári. Það mátti þó ekki sjá
á leiknum þar sem mikil barátta
einkenndi leikinn. skagastelpur
voru duglegar að sækja en náðu
ekki að skapa sér nein markverð
færi. Gestirnir voru engu síðri og
drjúgar í sínum sóknaraðgerð-
um. Á 32. mínútu dró til tíðinda
þegar Lovísa Mjöll Guðmunds-
dóttir átti fína sendingu inn í teig
skagastelpna á samira sulem-
an sem skilaði boltanum í netið
og kom í leiðinni gestunum yfir.
ÍA hélt áfram að sækja það sem
af lifði hálfleiks en ekki náðu þær
að skila boltanum í netið og Aft-
urelding/Fram því með forskot
þegar gengið var til klefa.
Í síðari hálfleik komu
þær gulklæddu mun
orkumeiri og ákveðn-
ari til leiks og strax á
47. mínútu átti berg-
dís Fanney einars-
dóttir góða sendingu
á liðsfélaga sinn, Heið-
rúnu söru Guðmunds-
dóttur, sem lagði boltann
fyrir sig og skoraði af öryggi.
ÍA stúlkur voru fjarri saddar eft-
ir jöfnunarmarkið því aftur var
bergdís Fanney á ferðinni og
sendi boltann enn einu sinni fyrir
markið. Þar var Unnur Ýr Har-
aldsdóttir á fjærstöng sem skor-
aði og kom ÍA yfir.
Afturelding/Fram sóttu af
ákefð á þær gulu það sem eft-
ir lifði leiks og voru nær því að
jafna undir lokin en toni Or-
nela, markvörður ÍA, átti frábæra
markvörslu. Niðurstaðan 2-1 ÍA
í vil.
Næsti leikur er jafnframt síð-
asti leikur ÍA á tímabilinu og fer
fram á föstudaginn er þær heim-
sækja stelpurnar í Hömrunum í
Hveragerði.
glh
Keppt var um
Kristmundarbikarinn á laugardag
Benedikt Lárus Gunnarsson og Guðni Sumarliðason með Kristmundarbikarinn.
Mostramenn sigruðu í
seinni vinaklúbbakeppninni
Sigurliðið í vinaklúbbakeppni Vestarr og Mostra.
Skagastelpur unnu
Aftureldingu/Frama
Skagamenn með annan fótinn í efstu deild
Jafntefli í Vesturlandsslagnum
Vignir Snær Stefánsson í þann mund að skora jöfnunarmark Víkings. Ljósm. gbh.