Skessuhorn - 24.10.2018, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 21. árg. 24. október 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
Nýtt!
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
30%
afslátt
ur
Grettissaga Einars Kárasonar
laugardaginn 27. október kl. 16:00
fimmtudaginn 1. nóvember kl. 20:30
síðustu sýningar
Kvöldstund með KK
laugardaginn
3. nóvermber kl. 21:00
Miðapantanir:
á landnam.is/vidburdir
Tveir góðir á Sögulofti
Landnámsseturs
sími 437-1600
25. okt. – 4. nóv.
Þessir frísklegu Dalakrakkar stóðu sig vel á Íslandsmeistaramóti Glímusambands Íslands sem fór fram á laugardaginn á Reyðarfirði. Meðal árangurs þeirra má nefna
að Mikael Magnús Svavarsson varð í 1. sæti hjá 12 ára strákum, Embla Dís varð í 2. sæti í flokki 11 ára stelpna, Birna Rún varð í 2. sæti í minni flokki 12 ára stelpna og
Jóhanna Vigdís Pálmadóttir varð í 2. sæti í stærri flokki 12 ára stelpna. Nánar um mótið á glima.is. Ljósm. Katrín Lilja Ólafsdóttir.
Fyrir um hálfu öðru ári tóku lög-
regluembættin á Íslandi í notkun ný
strokupróf. Eru þau fyrst og fremst
notuð við umferðareftirlit, í þeim
tilfellum sem ökumenn eru grun-
aðir um akstur undir áhrifum fíkni-
efna. Reynslan af þeim hefur verið
mjög góð og tilkoma þeirra þýðir
miklu minna inngrip í líf fólks en
áður, að sögn lögreglunnar á Vest-
urlandi. Með nýju strokuprófun-
um er mælt fyrir neyslu á kannabis,
benzódíazepíni, amfetamíni og me-
tamfetamíni, ópíum og kókaíni.
Sjá nánar á bls. 10
Góð reynsla af
strokuprófum
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hef-
ur ákveðið að útnefna Braga Þórð-
arson heiðursborgara Akranes-
kaupstaðar. Fer útnefningin fram
við athöfn í Bókasafni Akraness að
kvöldi fimmtudagsins 1. nóvember.
Bragi segir í samtali við Skessuhorn
að þessi viðurkenning hafi komið
sér þægilega á óvart og kveðst hann
í senn hrærður, stoltur en ekki síst
þakklátur fyrir þá viðurkenningu
sem hans gamla bæjarfélag sýni
honum með þessum hætti.
Þegar skoðað er æviágrip Braga
Þórðarsonar er víða hægt að koma
við á 85 ára tímabili. Bragi lærði
prentiðn og setningu og starfaði í
Prentverki Akraness í nærri þrjá
áratugi. Fyrst við setningu, keypti
síðan hlut í prentsmiðjunni og varð
prentsmiðjustjóri, stækkaði hana
og vélvæddi. Hann stofnaði ásamt
Elínu Þorvaldsdóttur eiginkonu
sinni Hörpuútgáfuna 1960 og ráku
þau hana í 47 ár, en auk þess stofn-
uðu þau og ráku Bókaskemmuna,
bóka- og tölvuverslun á Akranesi.
Hörpuútgáfan lagði áhersla á út-
gáfuna sígildra bóka. Má þar nefna
ljóðabækur, ævisögur, bækur um
þjóðlegan fróðleik, héraðssögur og
fleira sem að stórum hluta tengd-
ist Akranesi og Borgarfjarðarhér-
aði. Samhliða útgáfustörfum hefur
Bragi verið afkastamikill rithöfund-
ur og eftir hann liggur á þriðja tug
bóka, fjöldi blaðagreina, hljóðbæk-
ur og útvarpsþættir. Þá hefur Bragi
starfað um áratuga skeið að félags-
málum. Hann hefur verið virk-
ur í skátahreyfingunni og starfaði
lengi í góðtemplarareglunni. Bragi
var fyrsti formaður Æskulýðsráðs
Akraness og sat lengi í bókasafns-
stjórn á Akranesi. Hann er heiðurs-
félagi Skátafélags Akraness og Fé-
lags íslenskra bókaútgefenda. Þá
er hann einnig heiðursfélagi Odd-
fellowreglunnar. Hann hlaut árið
2004 heiðursverðlaun minningar-
sjóðs Guðmundar Böðvarssonar og
á nýársdag 2007 var hann sæmdur
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu fyrir störf sín að bókaútgáfu
og æskulýðsmálum. mm
Bragi Þórðarson gerður að
heiðursborgara Akraneskaupstaðar