Skessuhorn - 24.10.2018, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 201826
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Auk þess birtum
við lausn á krossgátu síðustu viku. Þeir sem vilja geta sent Skessu-
horni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukk-
an 15:00 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf
að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti
sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akra-
nesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður
úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni.
Alls bárust 72 lausnir við krossgátunni í blaði síðustu viku. Lausnin
var: „Hvatvísi“. Vinningshafi að þessu sinni Axel Gunnar Guðjóns-
son, Grenigrund 45, 300 Akranesi.
Tónn
Við-
auki
Laun
Gal-
gopi
Leit
Temur
Bergmál
Tóft
Svik
Epjast
Spila
Eink.st
Frekjan
Frændi
Tuð
Álút
Ikt
Köngull
Hrinan
Lítil
Vafa-
laust
2
Arður
Sósa
Flói
Erta
7
Kvöld-
sól
Snið
Reifi
Hjól
Örlátur
Korn
Útlim
Stertur
Veð
Ofn
Sverta
Tóku
Ras
Væta
Hópur
Kvöld
Hreinn
Bölv
Vagga
Elskar
Eink.st
Aur
Stöng
Stillt
Kopar
Þegar
5
Skokk
Sýður
Sérhlj.
Varð
valdur
að
Basl
Tónn
Far
1
Hnusa
Röð
Fis
Hávaða
Brakaði
51
Inn
Dægur-
lag
9 Arinn
Hár
Sómi
Nögl
Land-
bára
Fugl
Lærði
Átan
Að
Stjórn
4
Spotti
Fagur
3 Kveik-
ur
Á skipi
Muldur
Átt
Kl.15
Öf.tvíhlj.
Tindur
Grípur
Kona
Nagar
Ást-
fólgin
Andi
For-
feður
Hita-
tæki
Tál
Fágun
Kona
Skýlið
Heiður
Yndi
Ávöxtur
Vær
Tæma
Kassana
6 8
1 2 3 4 5 6 7 8 9
F R A M H L E Y P I N N Á R
L A G A R Á R L A E I Ð A
A S I S Ó L Ó N A S K I R
S K A S S V A K T D E K U R
Æ F I R E R L U A Ð A N
E R N A R T A R M A I Ð
R A U S M I N Ö G L Ú R
A R K U L E D R Ú A Æ
F E T A R L I U G L A Ó Ð
Í A A R M A R E L L A R I
L Ó K A N N S D R A G
L Á S S N A R T T U Ð R A
I L M A T A P A R A R A N N
M E T U R U N I R F A U K
N A K A R R I S N A N Ú
Æ K R K U N N I R A N S
S Á U K Æ N E I R Ð S A T
T A R F U R D I V I K N A
H V A T V Í S IL
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Vísnahorn
Enginn hefur ennþá haft
samband við mig út af
lestrarmerkjavísum í síð-
asta þætti þannig að það
varð mér útlátalaust en hér kemur semsé úr-
lesningin:
; sat á tröppum
sá ég ,, — „
hér er bezt að hugsa sig um
( 100 / )
Eða sagt á mannamáli:
Semíkomma sat á tröppum.
Sá ég strik í gæsalöppum,
hér er bezt að hugsa sig um.
Hundrað brotastrik í svigum.
Og næsta vísa:
Á bögu er ég byrjaður
botna þú með herkjum.
„W : „
Sem auðvitað lesist:
Á bögu er ég, byrjaður,
botna þú með herkjum
Tvöfalt vaff og tvípunktur
í tilvitnunarmerkjum.
Það er nú tæplega að það þurfi að birta
ráðninguna á þessari:
Þorsteinn sat á — — þægilegum,
sló með, og : sig um,
karl, og hafði (-).
Þorsteinn sat á þankastrikum þægilegum
sló með kommu og kólon sig um
karl og hafði strik í svigum.
Reglulega berast fréttir af óheppilegum
áhrifum mannkynsins á Móður Jörð en í sjálfu
sér fátt til ráða sem ekki er þá slæmt fyrir efna-
hag hinna ríkari þjóða. Á sínum tíma orti
Bjarni frá Gröf:
Mannkynið er mesta heimsins plága
og mönnum þarf að fækka yfirleitt
því dauðinn sjálfur drepur alltof fáa
og dagleg morð þau gagna ekki neitt.
Við fáum ekki endalaust að traðka
á okkar jörð og fjölga eins og mýs.
Því verður fólki breytt í mold og maðka
svo myndist aftur jarðnesk paradís.
Og þótt svo taki heiminn aldir alda
að endurbæta lífsins keðjuslit
á menning vorri hann þarf ei að halda
í honum enginn fær að svíkja lit.
Svo ætla ég að óska þess við Drottinn
eftir langa reynslu og syndabann
hann fari ekki að flana í gamla pottinn
og fikta við að skapa nýjan mann.
Margt kom gott frá Bjarna sem ýmist er
nefndur Bjarni frá Gröf (í Víðidal) eða Bjarni
úrsmiður en hann starfaði lengst sem úrsmiður
á Akureyri. Þetta er ein:
Mjög þó sé í mörgu breytt
mínum æskuvonum
tíminn getur ekki eytt
æskuminningonum.
Og ætli það hafi ekki verið á tímum stuttu
pilsanna og upphafsárum bikini sundfata sem
þessi varð til:
Upp um lærin allir sjá
og allt í kringum naflann
en mjög er hulin meyjum hjá
margföldunartaflan.
Verður hver að skilja þau orð eftir sínu höfði
en það var hinsvegar Anna frá Steðja sem leit
til baka yfir æviferilinn með þessum orðum:
Er ég skoða útganginn
ofbýður mér stórum
Ég er orðin ástfangin
af áttatíuogfjórum.
Það mun hafa verið Halldór J. Einarsson
sem orti þessa og væntanlega eftir annarskon-
ar lífsreynslu. Kannske endingarbetri:
Heim með þér í húmi gekk,
hikandi þú bauðst mér inn.
Í eldhúskróknum feiminn fékk
fyrsta ástarkossinn minn.
Þegar verið var að byggja skólahús og
félagsheimili á Brúarlandi í Mosfellssveit
stóðu að byggingunni ungmennafélag sveit-
arinnar, kvenfélagið og hreppurinn. Eins og
gengur miðaði byggingunni ekki óhæfilega
hratt og stóð lengi kjallarinn einn og ei meir.
Þótti mönnum þetta ekki reisulegt menning-
arhúsnæði svo útlítandi og stóð enda skammt
frá vegi og því takmörkuð sveitarprýði. Eitt
sinn áttu þeir þar leið hjá Hjálmar á Hofi og
Kolbeinn í Kollafirði og segir þá Hjálmar:
Hús er reist við héraðsbraut
Kolbeinn bætti við:
Hreppsins þrenning á það
Segir þá Hjálmar:
Það ætti að standa ofaní laut
Og síðan Kolbeinn aftur:
Svo enginn þurfi að sjá það.
Síðar var byggt ofaná húsið og gerði þá
Lárus Halldórsson þessa vísu:
Á Brúarlandi byggð er höll,
barnaskóli fríður.
Það ætti að flytja hann uppá fjöll
svo allur sjái hann lýður.
Lengi hafa menn velt fyrir sér misskiptingu
auðsins og víst lítil hætta á að þær vangaveltur
minnki nokkuð í bráð. Það eru nú orðin all-
mörg ár síðan Kristján Ólason orti þessa en
ætli hún sé ekki í fullu gildi enn:
Allavega fengið fé,
forsjá valdahringsins,
boða þeir að besta sé
bjargráð fátæklingsins.
Jæja ætli það sé ekki rétt að ljúka þessu með
þessari gömlu vísu sem ég vona sannarlega
verði að áframhaldandi áhrínsorðum:
Meðan eldur er í glóð
og alda berst að sandi
yrkir þjóð til yndis Ijóð
í okkar kalda landi.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Ég er orðin ástfangin - af áttatíuogfjórum