Skessuhorn - 28.11.2018, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 20182
Nú styttist í að aðventan gangi í garð,
en fyrsti sunnudagur í aðventu er 2.
desember. Því er ekki úr vegi að fara að
draga fram aðventukransinn, eða búa
til nýjan. Þá má einnig hægt og rólega
fara að huga að smákökubakstri, jóla-
skrauti og ljósum til að lýsa upp í myrk-
asta skammdeginu.
Á morgun, fimmtudag, verður norð-
austan 15-23 m/s, hvassast suðaustan-
lands og snjókoma á norðanverðu land-
inu. Slydda verður austast en annars úr-
komulítið. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands
og með austurströndinni, en annars 0
til 5 stiga frost. Á föstudag er útlit fyr-
ir 10-18 m/s og snjókomu en síðar él á
norðanverðu landinu, lengst af úrkomu-
laust syðra. Hvassast verður á annesjum
austan til. Frost víða 1 til 6 stig. Á laug-
ardag eru líkur á norðvestan hvassviðri
með snjókomu norðaustan til en annars
hægari og él. Áfram verður kalt í veðri.
Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir
fremur hæga breytilega átt, él á víð og
dreif og talsvert frost.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvort kaupir þú sérvöru frek-
ar í verslunum eða á Internetinu?“ Af-
gerandi meirihluti segist kaupa meira í
verslunum, eða 79%. Aðeins 11% svar-
enda kaupa fremur á netinu. 10% skipta
viðskipum sínum jafnt á milli verslana
og netverslana.
Í næstu viku er spurt: Hvenær lýkur
þú venjulega jólagjafainnkaupum?
Leikskólastarfsmenn í landshlutanum
eru Vestlendingar vikunnar að þessu
sinni. Þeir vinna ómetanlegt starf alla
daga ársins, en í lok nóvember eykst
álagið á sama tíma og börnin gerast
spenntari í aðdraganda jóla.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Gul viðvörun
í dag og morgun
LANDIÐ: Veðurstofan hef-
ur gefið út gula viðvörun fyr-
ir allt landið frá því um nón-
bil í dag, miðvikudag, og fram
á fimmtudagskvöld. Í við-
vörun sem gefin var út í gær
sagði: „Það gengur í norðaust-
an 15-23 m/s um miðjan dag
á miðvikudag [í dag]. Hvassast
verður á Snæfellsnesi og við
Hafnarfjall þar sem vindhvið-
ur geta náð 45 m/s. Þar verður
varasamt að vera á ferð á öku-
tækjum sem taka á sig vind.“
-mm
Lagt hald á
heimabrugg
AKRANES: Lögreglan á
Vesturlandi stöðvaði ólöglega
bruggun í heimahúsi á Akra-
nesi á þriðjudaginn í síðustu
viku. Að sögn lögreglu þurftu
lögreglumenn nánast að setj-
ast niður og rifja upp hvernig
ætti að bera sig að, svo langt
er síðan laganna verðir hafa
þurft að hafa afskipti af ólög-
legri bruggun. Lagt var hald
á nokkra lítra af landa og um
hundrað lítra af gambra. Einn-
ig var lagt hald á öll bruggtæki
og annan búnað. -kgk
Atvinnuleysi
mælist nú 2,9%
LANDIÐ: Áætlað er að
204.700 manns á aldrinum
16–74 ára hafi að jafnaði ver-
ið á vinnumarkaði í október
2018, samkvæmt vinnumark-
aðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands, en það jafngildir 81,2%
atvinnuþátttöku. Af þeim voru
198.700 starfandi og 6.000 án
vinnu og í atvinnuleit. Hlut-
fall starfandi af mannfjölda
var 78,9% og hlutfall atvinnu-
lausra af vinnuafli var 2,9%.
Þetta er verulega lægra hlut-
fall en Hagstofan skráði sem
atvinnuleysi í október 2017,
en þá var það 3,7%.
-mm
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar
með ferskum kryddjurtum og rjómaosti, ásamt
fylltum paprikum. Bragðlaukarnir verða ekki
sviknir af þessari hollustu.
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
bakaðar
kjúklingabringur
Hollustan hefst á gottimatinn.is
Fyrirtækið Vogir og Lagnir ehf á
Akranesi hafa keypt Rafþjónustu
Sigurdórs. Að sögn Sigurðs Axels
Axelssonar eiganda báru kaupin
frekar brátt að. „Við höfum grín-
ast með þetta hjá báðum fyrirtækj-
um, en þessi tími einfaldlega hent-
aði. Við vildum stækka við okkur
og seljandinn vildi minnka við sig
svo þetta bara hentaði vel,“ seg-
ir Sigurður í samtali við Skessu-
horn. Fyrirtækin verða sameinuð
undir nafni Voga og Lagna. „Það
breytist ekki mikið hjá okkur. Það
halda allir sínum störfum og við
höldum áfram að þjónusta vog-
ir um allt land og rafmagn á okk-
ar starfssvæði hér á Akranesi og í
nágrenni. Við leggjum fyrst og
fremst áherslu á að halda áfram að
veita góða þjónustu og leitast allt-
af að því að gera enn betur,“ segir
Sigurður. arg
Vogir og Lagnir hafa keypt
Rafþjónustu Sigurdórs
Þessa dagana er unnið að sjóvörn-
um víða um Snæfellsbæ. Áætlað-
ur kostnaður við sjóvarnargarða
er 35,1 milljón króna og skiptist
kostnaðurinn á milli ríkis og sveit-
arfélagsins þannig að 87,5% fellur
á ríkið og 12,5% á Snæfellsbæ.
Undir Ennisbökkum er Grjót-
verk ehf. frá Hnífsdal að endur-
hlaða 180 metra garð. Áður en
verkið hófst þurfti að hreinsa úr
bakkanum og kom þá í ljós gam-
all netaafskurður sem notaður var
á árum áður til að binda jarðveg og
varna því að eins mikið hryndi úr
bakkanum. Grjótverk mun jafn-
framt hlaða nýjan 90 metra sjó-
varnargarð við Gróuhól á Helln-
um og er áætlað að því verki verði
lokið um miðjan apríl á næsta ári.
Ásamt því verður hlaðinn nýr 125
metra sjóvarnargarður við gamla
Hraðfrystihús Hellissands og eru
verklok áætluð í lok júní 2019.
B.Vigfússon hefur einnig unnið að
því að hlaða nýja sjóvarnargarð við
Marbakka í Staðarsveit. Þar verður
garðurinn 55 metra langur og eru
verklok áætluð um áramótin.
þa
Unnið við grjótvarnargarða víða í Snæfellsbæ
Skipulags- og umhverfisráð Akra-
neskaustaðar hefur fengið afhent
minnisblað frá verkfræðistofunni
Mannviti um væntanlegt niðurrif
á strompinum á lóð Sementsverk-
smiðjunnar. Sviðsstjóra hefur verið
falið að gera samkomulag við verk-
takafyrirtækið Work North ehf.
um niðurrif hans. Gerð var könn-
un meðal bæjarbúa Akraness þess
efnis hvort fella ætti strompinn eða
varðveita hann. Reyndust 94% íbúa
fylgjandi því að hann yrði rifinn.
Bæjarstjórn ákvað í kjölfar þeirr-
ar niðurstöðu að gera breytingu á
skipulagi til að rífa mætti stromp-
inn. Gert er ráð fyrir að niðurrif
strompsins verði öðrum hvorum
megin við næstu áramót.
Um ár er liðið síðan byrjað var
að rífa hús Sementsverksmiðjunn-
ar og hefur niðurrif að mestu geng-
ið vel. Þegar verkið var boðið út á
sínum tíma hafði Mannvit gert ráð
fyrir því að niðurrifið á verksmiðj-
unni myndi kosta 326 milljónir
króna en tilboð Work North ehf.
hljóðaði upp á rúmar 175 milljónir
króna. Sú áætlun hefur staðist, að
sögn Sævars Freys Þráinssonar bæj-
arstjóra. „Langmestar líkur eru á að
strompurinn verði sprengdur og
látinn falla inn á athafnasvæðið þar
sem verksmiðjuhúsin stóðu áður,“
segir Sævar. Niðurrif strompsins
og veggjarins sem umlykur sem-
entsþróna voru ekki skilgreind í
upphaflega samningnum sem gerð-
ur var við Work North. Þarf því
að semja sérstaklega við fyrirtækið
um niðurrif strompsins. Að sögn
Sævars er það til skoðunar hvenær
og hvernig verði staðið að niður-
rifi veggjarins við þróna, en engin
ákvörðun hefur verið tekin um það.
mm
Samið verður við Work North um niðurrif strompsins