Heimsmynd - 01.06.1991, Page 14
að verkum að hann getur hrint því í
framkvæmd sem hann nánast fýsir til. Á
hinn bóginn er staða borgarstjóra kröfu-
hart starf, ekki bara fólgið í því að
klippa á borða og mæta í veislur.
Þeir eru margir sem nota borgarstjórn-
ina sem stökkpall yfir í landsmálapólitík-
ina. Enda oft talað um það að í borgar-
stjórn sitji annars og þriðja flokks póli-
tíkusar sem skína í annars og þriðja
flokks ljósi - allir nema borgarstjórinn.
Vernduð staða stjórnandans í þessu
stönduga fyrirtæki er umlukin velvild og
vinsemd. Því spyrja fleiri en Ellert
Schram ritstjóri, hver vill ekki verða
borgarstjóri? Reykvíkingar eru hins veg-
ar ekki spurðir að því nú hvern þeir vilji í
þetta embætti.
Þrír borgarfulltrúar hafa opinberlega
lýst því yfir að þeir vilji taka við af Davíð
Oddssyni: Katrín Fjeldsted, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson og Árni Sigfússon. Ekk-
ert þeirra kemur sjálfkrafa til greina.
Spurningin um arftakann hefur lengi leg-
ið í loftinu. Strax haustið 1989 var ljóst
að Davíð Oddsson hugði á landsmála-
pólitíkina þegar hann tók við varafor-
mennsku í Sjálfstæðisflokknum. Á sama
tíma var ákveðið að efna ekki til próf-
kjörs fyrir borgarstjórnarkosningarnar
vorið 1990 þegar Sjálfstæðisflokkurinn
vann sinn stærsta sigur í sögu borgarinn-
ar. Tæpu ári síðar var Davíð Oddsson
kjörinn formaður Sjálfstæðisflokks og þá
var næstum borðliggjandi að þeir tugir
þúsunda Reykvíkinga sem veittu honum
umboð til að stýra borginni til ársins
1994 sátu eftir í tómarúmi.
Þegar Davíð var orðinn formaður
komust umræður um arftaka hans í há-
mæli. Hann skýrði fréttamönnum frá því
að hann myndi tilnefna arftaka sinn og
hefði ákveðinn aðila í huga. Skömmu
síðar voru fréttir á Bylgjunni um að Árni
Sigfússon sem nú skipar sjötta sæti list-
ans væri umræddur maður. Við þessar
fréttir brá ýmsum borgarfulltrúum. Þeim
brá einnig sumum þegar Davíð lýsti því
yfir eftir að hann myndaði ríkisstjórn að
niðurstaða fengist í málinu 15. maí. En
maðurinn sem myndaði ríkisstjórn á
mettíma gat ekki leyst þessa þraut á þre-
falt lengri tíma. Davíð Oddsson tilnefndi
engan sérstakan arftaka þegar kom að
hinum örlagaríka degi. Þrátt fyrir fréttir
á Bylgjunni og Stöð 2, sem eru í eign
sömu aðila, um að Árni Sigfússon væri
líklegasti arftakinn, þótt mjótt væri á
mununum milli hans og Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar.
Þegar hér var komið sögu voru einnig
uppi raddir um að borgarstjórinn yrði
sóttur út fyrir borgarstjórnarflokkinn
næðist ekki samstaða um aðila þar. Þær
raddir voru lágværari sem ýjuðu að því
að allan tímann hefði ætlunin verið að
sækja mann utan flokks og því hefði
prófkjörinu verið sleppt fyrir síðustu
kosningar. Nafn Kjartans Gunnarssonar
framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins
og náins fylgismanns Davíðs Oddssonar
var nefnt í þessu sambandi sem nöfn
fleiri karla og kvenna, þótt ekkert þeirra
hafi umboð kjósenda til að gegna starf-
inu. Þessar vangaveltur gera lítið annað
en að endurspegla og staðfesta viðhorfið
til dverganna eða kjósenda, eftir því
hvernig á málin er litið.
Það var erfið stund fyrir Davíð Odds-
son að tilkynna fjölmiðlum að fresta yrði
ákvörðuninni um nýjan borgarstjóra.
Svo virðist sem Davíð hafi orðið undir
hafi það verið ætlunin að tilnefna Árna
Sigfússon. Borgarfulltrúar segja hann
ekki taka afstöðu í málinu - einfaldlega
vegna þess að enginn er sigurvegari í
hópnum. Að vísu komst sá kvittur á
kreik eftir fundinn 15. maí að Árni Sig-
fússon hefði verið tilnefndur af flestum
sem heppilegasti arftakinn. Aðrir borg-
arfulltrúar neita þessu og segja stöðuna á
milli Árna og Vilhjálms hnífjafna. Hvor
um sig hefur stuðning níu borgarfulltrúa
og þá eru tveir eftir, Katrín Fjeldsted og
Davíð Oddsson.
„Ef -Árni hefði orðið yfir á þessum
fundi hefði málið verið útrætt,“ segja
fleiri en einn fulltrúi. Árni segist sjálfur
vilja láta kjósa um þessa stöðu, hann
kvíði ekki úrslitunum og muni sætta sig
við niðurstöðuna. Katrín er ekki hlynnt
kosningu enda sér hún sér leik á borði
verði mjög mjótt á mununum milli Árna
og Vilhjálms og þá fallist á hana sem
málamiðlun. Katrín hefur lent svolítið á
milli skers og báru í þessum slag þar sem
fólk hefur tilhneigingu til að fylkja sér
um þá fulltrúa sem hafa raunhæfa mögu-
leika á meirihluta. Hún lenti í þriðja sæti
í síðasta prófkjöri fyrir kosningarnar
1986, Árni í sjöunda og Vilhjálmur
fimmta. Sá valkostur ku vera inni í
myndinni að Katrín verði borgarstjóri,
jafnvel ásamt Magnúsi L. Sveinssyni, og
bjóði sig þá í staðinn ekki fram í próf-
kjöri fyrir næstu kosningar. Enda mun
Katrín, eins og fleiri, hafa augastað á
landsmálapólitík þegar fram í sækir. Vil-
hjálmur mun frekar sætta sig við Katrínu
en Árna verði hann undir í slagnum.
Þessir þrír borgarfulltrúar ásamt
Magnúsi L. Sveinssyni forseta borgar-
stjórnar hafa ákveðið að heyja ekki
kosningabaráttuna í blöðum. Nýverið
birtist forsíðumynd á helgarblaði DV af
Katrínu, Magnúsi og Vilhjálmi en Árni
neitaði á síðustu stundu að vera á mynd-
inni - á þeirri forsendu að fjölmiðlarnir
væru að búa til slag á milli þessara full-
trúa.
Ótti fulltrúanna við fjölmiðla í þessu
samhengi mun vera sprottinn af því sem
þau nefna áróður Bylgjunnar og Stöðvar
2 í fréttaflutningi. Bent er á tengsl stuðn-
ingsmanna Árna við þessa útvarps- og
sjónvarpsstöð. Þegar HEIMSMYND
hafði samband við þessa fjóra fulltrúa
var málið tekið upp á fundi hjá þeim 22.
maí. Daginn eftir skýrðu þrír fulltrúanna
undirritaðri frá þessu samkomulagi á
fundinum en það gekk ekki eftir. í bar-
áttu sem þessari er enginn annars bróðir
í leik.
Fyrir þessa fulltrúa er mikið í húfi.
Þau Katrín, Árni og Vilhjálmur eygja
þarna mikilvægt tækifæri á sínum póli-
tíska ferli. Staða þeirra er nokkuð erfið
þar sem ekkert þeirra þykir áberandi
álitlegasti kosturinn. Hvert um sig verða
þau að halda fram eigin ágæti, en gæta
þess um leið að varpa ekki rýrð á hina.
Sá vegur er vandrataður. Katrín og Vil-
hjálmur munu sætta sig illa við utanað-
komandi aðila en Árni, sem yngsti mað-
urinn í hópnum, gæti hugsanlega fellt sig
við þann valkost frekar en að vera ýtt út
úr myndinni nú af Vilhjálmi eða Katr-
ínu.
Þá er líklegt að sú staða sem upp er
komin skaði borgarstjórnarflokkinn út á
við. Það kemur enginn afgerandi leiðtogi
úr þessum slag. Verði eitt þessara
þriggja borgarstjóri mun það taka við-
komandi töluverðan tíma að ávinna sér
trúverðugleika sem leiðtogi.
Katrín og Árni líta bæði svo á að þau
séu heppilegri ímynd fyrir flokkinn út á
við en Vilhjálmur. Jafnvel stuðnings-
menn Vilhjálms viðurkenna að þau séu
betri söluvara fyrir flokkinn. Vilhjálmur
hefur hins vegar mikla reynslu í borgar-
stjórn og er ef til vill sá þeirra sem mest
samstaða gæti náðst um innan flokksins.
Árni er fulltrúi ungu kynslóðarinnar í
hópnum og Katrín er konan - en á þeim
tíma sem konur eru að hasla sér völl í
toppstöðum víða um heim, kona er for-
seti írlands, kona er forsætisráðherra
Noregs og kona formaður hægri flokks-
ins í sama landi, kona er forsætisráð-
herra Frakklands og svo mætti áfram
telja, þætti mörgum tímabært að kona
yrði borgarstjóri í Reykjavík.
Katrín Fjeldsted er læknir og starfaði á
áttunda áratugnum í Englandi. Hún er
44 ára gömul af rótgrónum reykvískum
ættum, hefur eignast fjögur börn og
misst eitt. Hún hefur öðlast menntun og
lífsreynslu en er helst legið á hálsi fyrir
að vera ekki með nógu sterkt pólitískt
bakbein. Sjálf telur hún sig vera í stakk
búna til að vinna vel með öðrum borgar-
fulltrúum, að auki geri menntun hennar
og lífsreynsla hana færa í flestan sjó og
ímynd hennar komi til með að afla
flokknum fylgis.
Árni Sigfússon er 35 ára gamall, kenn-
araskólamenntaður og var einn vetur við
nám í stjórnsýslufræðum í Bandaríkjun-
um og veitir nú Stjórnunarfélagi íslands
forstöðu. Hann er fjögurra barna faðir,
alinn upp í Vestmannaeyjum. Árni var
kjörinn formaður Heimdallar strax í
menntaskóla og formaður SUS árið
1987. Þá voru Friðrik Friðriksson og
Hannes Hólmsteinn Gissurarson and-
stæðingar hans en hann nýtur stuðnings
þeirra núna. Friðrik var kosningastjóri
Davíðs í formannsslagnum á síðasta
Framhald á bls. 97
14 HEIMSMYND