Heimsmynd - 01.06.1991, Page 21
ODD STEFÁN
— fáir eru eins
áberandi í íslensku
leikhúsi og hjónin
Stefán Baldursson
og Póru7in
Sigurðardóttir. Um
þau stendur meiri
styr en flesta aðra
sem koma nálœgt
fjölunum um þessar
mundir . . .
Uppsagnirnar í Þjóðleikhúsinu nýverið komu eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Fáir bjuggust við þessari
hörku eða röggsemi, eftir því hvernig á málin er litið,
frá nýráðnum Þjóðleikhússtjóra. Stefán Baldursson
virkar allt annað en harður í horn að taka. „Ég myndi
síst af öllu kalla hann mjúkan mann,“ segir eiginkona
hans, Þórunn Sigurðardóttir leikstjóri og leikskáld.
Þegar mestu öldurnar virtist hafa lægt fóru þau hjón
úr Iandi í nokkra daga og þá birtu blöðin fréttir af því
að Stefán Baldursson hefði keypt leikrit konu sinnar
sem hún hafði upphaflega verið ráðin af Leikfélagi
Reykjavíkur til að skrifa.
„Þetta eru eins og galdraofsóknir,“ sagði Þórunn hálfmædd við
heimkomuna frá Berlín en þar sótti Stefán þing leikhússtjóra frá
N orðurlöndunum.
Þau eiga að baki næstum jafnlangt samband og feril innan leik-
hússins - yfir tvo áratugi, og tala af reynslu um hvort tveggja, sig
sjálf og leikhúsið. Um leið og hann veldur usla við valdatöku í
Þjóðleikhúsinu er hún að leikstýra vinsælum söngleik á Akureyri,
með splunkunýtt og spennandi leikrit í handraðanum og því
óhætt að segja að þau séu mest áberandi parið í íslensku leikhús-
lífi um þessar mundir. Þegar Þórunn sagði mér frá nýja leikritinu
upphaflega fylgdi ekki sögunni hver myndi taka verkið til sýn-
inga. Hún sagði aðeins að það yrði ekki vandamál, nógir væru
um hituna. Kona, nákunnug henni, sagðist hafa lesið verkið og
væri það fádæma gott. „Ég held hins vegar að hagsmunir þeirra
hjóna stangist á í þessum efnum. Hann vill taka verkið til sýninga
af því að það er spennandi og hugsar út frá hagsmunum Þjóðleik-
hússins. Hún er hins vegar þeirrar gerðar að vilja allt fyrir mann-
inn sinn gera.“
eftir HERDÍSI ÞORGEIRSDÓTTUR
HEIMSMYND 21