Heimsmynd - 01.06.1991, Side 23
Enda segir hún mér síðar að nafnið Þórunn þýði sterk
kona sem styrki þann sem hún elskar. Og það er sá
sem ber nafn fyrsta píslarvottarins.
Stefán Baldursson var valinn úr hópi fjölmargra,
hæfra umsækjenda í stöðu Þjóðleikhússtjóra síðast-
liðið haust. Hann gegndi áður stöðu leikhússtjóra
hjá Leikfélagi Reykjavíkur í sjö ár og er í hópi
þekktustu leikstjóra landsins. Undanfarin ár hefur
hann starfað vítt og breitt um heiminn sem leik-
stjóri. Þórunn Sigurðardóttir hóf feril sinn sem leik-
kona (undir stjórn Stefáns), gerðist síðan leikstjóri
og þá leikskáld. Þekktast verka hennar er án efa
Haustbrúður sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu fyrir tveimur ár-
um. Fjórða leikritið hennar, Elín, Helga, Guðríður, var upp-
haflega skrifað að beiðni Hallmars Sigurðssonar þáverandi
leikhússtjóra LR og lauk hún við það síðastliðið sumar.
Þrátt fyrir sameiginleg áhugamál virðist fátt líkt með þess-
um hjónum. Hann er ljós yfirlitum, næstum aldurslaus og ör-
ugglega fyrsti Þjóðleikhússtjórinn sem gengur í gallabuxum að
staðaldri. Hann segist vera sjálfum sér nógur. Hún hefur
mikla þörf fyrir félagsskap. Hún virkar stórgerð við hliðina á
honum, litrík og opinská en er ein af þeim konum sem árin
klæða vel. Þau eiga að baki heilmikið starf innan leikhússins,
tvö börn og stormasama sambúð. Ef til vill eru þau sinnhvor
helmingur sömu valhnetu.
Þegar ég hitti Stefán Baldursson einan í kaffi á Hótel Borg
get ég vart varist þeirri hugsun að þessi fulltrúi sextíu og átta
kynslóðarinnar skyldi vera fyrstur til að beita aðferðum mark-
aðshyggjunnar með svo skeleggum hætti í ríkisreknu leikhúsi.
En ákvörðunin var ekki auðveld þótt hann hiki ekki við að
rökstyðja hana. Sex leikurum var sagt upp og tveimur leik-
stjórum. Hann tekur skýrt fram að hann hafi ekki greint frá
nöfnum fólksins opinberlega. Fólkið hafi sjálft lýst þessu yfir
við fjölmiðla. Enginn leikaranna var kominn yfir fimmtugt og
leikstjórarnir voru þeir einu sem eru fastráðnir á vegum ríkis-
ins og hafa gegnt þessum embættum í tæpa tvo áratugi. „Það
var strax byrjað að rangtúlka orð mín í tengslum við þessar
uppsagnir,“ segir hann og vísar í blaðaskrif vegna málsins.
„Það voru ekki mín orð að leikarar mættu ekki búa við ör-
yggi í starfi. Atvinnuöryggi er listafólki nauðsynlegt en ævi-
ráðning getur reynst varasöm. í fyrra átti ég sæti í nefnd sem
skyldi endurskoða lög um Þjóðleikhúsið. Eitt af því sem við
lögðum til þar var að enginn starfsmaður hússins skyldi ráðinn
í lengri tíma en Þjóðleikhússtjórinn eða fjögur ár í senn. Það
eru þrjátíu og þrír fastráðnir leikarar hjá Þjóðleikhúsinu en á
mismunandi samningsformum. Þeir æviráðnu eru um þriðj-
ungur. Hinir eru á samningum sem á að vera hægt að rifta
þótt það hafi sjaldnast verið gert. Hér er um að ræða sex leik-
ara, sem sagt var upp, af rúmlega þrjátíu fastráðnum og rúm-
lega tvö hundruð leikurum sem eru í leikarafélaginu. Tæplega
áttatíu umsóknir hafa borist um störf leikara sem á að ráða í
staðinn og tuttugu sóttu um starf leikstjóra. Þetta sýnir þörf-
ina á hreyfingu innan leikhússins. Fyrstu viðbrögðin við upp-
sögnunum voru þau að þetta væru harkalegar aðgerðir. Sjokk-
ið fólst í því að þetta hefur ekki verið gert áður. Þeir sem
lengst höfðu starfað voru búnir að vera þarna í fimmtán til
tuttugu ár og litu á stöðu sína sem óhagganlega.“
Nokkrir þeirra sem sagt var upp hafa hótað málsókn. Stef-
án segist hafa kannað lagahliðina á uppsögnunum áður en
hann greip til þeirra og þegar upp komu efasemdir um að
hann hefði haft rétt til þessa þar sem hann er settur við hlið
Gísla Alfreðssonar leikhússtjóra segist hann aftur hafa farið til
lögmanns og látið kanna málið. „Lagalega stenst þetta og þau
eiga ekki rétt á bótakröfum á leikhúsið. Þrjú þeirra sem sagt
var upp, leikstjórarnir Benedikt Arnason og Brynja Bene-
diktsdóttir ásamt Agnesi Löve, fóru á fund menntamálaráð-
herra eftir uppsagnirnar og hann leitaði lögfræðiálits og fékk
sömu niðurstöðu. Þau hengja sig á það að ég hafi ekki haft
þetta vald á aðlögunartímanum, sem er frá 1. janúar síðast-
liðnum fram á næsta haust þegar ég tek alfarið við. Listræn
HEIMSMYND 23