Heimsmynd - 01.06.1991, Side 37
«
«
Viðar Eggertsson leikari hefði ekki fæðst í Reykjavík, 18. júní 1954, hvar og hvenær hefði
hann þá viljað fæðast?
Ég hefði viljað vera meðal inkanna þegar menning þeirra reis hvað hæst.
BH ■ Hvers vegna?
Það var stórkostlegt menningarsamfélag, þar sem listir voru órjúfanlegur hluti af daglegu
lífi. Enda hafa framfarir án lista aldrei getið af sér menningarsamfélag. Til þess arna þurfa
manneskjan, sköpunargáfan og náttúran að fallast í faðma.
Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst kosið að vera?
Ég er nú alveg ágætlega sáttur við að takast á við að vera ég sjálfur. En ef ég yrði að skipta, þá hefði ver-
ið gaman að prófa að vera leikskáldið Samuel Beckett.
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
Honum afa mínum heitnum. Hann hélt því fram að hann væri engill (sem hann er örugglega núna!) og
borðaði aðeins hvítan mat til að óhreinka ekki í sér sálina. Hann komst á tíræðisaldur og var einstaklega
fallegt gamalmenni. Hár, grannur, með tálgað andlit, há kinnbein og stór vatnsblá augu sem alltaf voru
rök. Hann hafði líka þetta silfurgráa hár sem hann klippti sjálfur með því að setja skál á hvolf á höfuðið og
skera það hár sem gægðist niðurundan skálarbörmunum. Er til nokkuð fallegra en falleg gamalmenni?
En innræti?
Ekki neinni einstakri. En ég væri alveg til í að vera Skaparinn smá stund og spreyta mig á að safna saman
í einni manneskju því besta sem ég þekki í fari nokkurra góðra vina minna.
Hvaða persóna í sögunni heillar þig mest?
Vincent van Gogh sem ég var svo lánsamur að fá að leika einu sinni og kynntist því nokkuð. En ég hefði
ekki viljað vera hann.
Hvernig húsgögn viltu helst hafa í kringum þig?
Fá, þægileg, stílhrein og ódýr.
Hvernig slappar þú af?
Aleinn heima hjá mér, þegar ég hef tekið símann úr sambandi, sit, reyki og horfi út í loftið og hugsa mitt.
Heitir það ekki að dreyma dagdrauma? Verst hvað fáir þeirra komast til framkvæmda.
Hver er besta bókin sem þú hefur lesið nýlega?
Það er lítil barnabók sem heitir Ferðin til Pan-
ama. Lestu hana.
Hver er uppáhalds hljómplatan þín?
Þessa stundina held ég mikið upp á plötu
með 6. sinfóníu Bruckners.
Hvert er besta leikrit sem þú hefur séð?
Það var belgísk tveggja manna leiksýning sem ég
sá fyrir tveimur árum. Hún hét Ali, 1001 martröð og
var byggð á bók Gunters Wallrafs Niðurlœgingin. Gunter
lék ungur leikari, Eugene Bervoets, og var svo góður að
hef aldrei séð annað eins og hefur þó marga góða borið fyrir
augu mín. Þess má geta að Eugene þennan munaði ekki um
skrifa handritið og leikstýra sýningunni einnig.
Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð?
La Strada eftir Fellini sem ég sá fyrst sem krakki og hef séð nokkr-
um sinnum síðan. Eiginkona Fellinis, Giulietta Masina, lék annað að-
alhlutverkið og stal úr mér hjartanu. Það er hjá henni enn þá.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Hvítlaukur þykir mér góður og íslenskt lambalæri þegar mér tekst best upp.
Hverju sérðu mest eftir?
„Ég iðrast einskis," söng Piaf. Ef ég væri lagvissari væri ég til í að syngja fullum
hálsi bakrödd.
Hvaða hlut vildir þú helst eignast?
Það er leynd þrá hjá mér að eignast kaffivél sem hefur þá eiginleika að skammta
úr einum krana ilmandi gott kaffi og úr öðrum freyðandi flóaða mjólk. Ég er ekki á
leiðinni að láta þetta eftir mér.
Hverjir eru helstu kostir þínir?
Hvernig á ég að vita það? En þó viðurkenni ég að hugarflug mitt hefur á stundum
skemmt mér.
En veikleikar?
Óþolinmæði. Þegar mér finnst hlutirnir ganga heldur hægt fyrir sig, eða að fara inn á
óæskilegar brautir, þá pirrast ég og verð hræddur við að missa tökin á þeim og þá er
stutt í systur hræðslunnar: reiðina.
Hver er ánægjulegasta stundin í lífi þínu?
Hún á örugglega eftir að koma. Þetta er alltaf að verða meira og meira gaman.
Hvað er það sem helst veldur'þér áhyggjum?
Stundum er ég haldinn miklum verkkvíða og geymi því framkvæmdir til síðustu
stundar. Vinur minn einn kallar þetta fullkomnunaráráttu. Góður vinur það.
Við hvað ertu hræddur?
Að ná ekki að gera allt sem mig langar til.
Hverjar eru rómantískustu aðstæður sem þú getur hugsað þér?
Þegar ég verð ástfanginn þá horfist ég í augu við ástina mína og leikmyndin verður al-
gjört aukaatriði.
Ef þú ættir eina ósk, hvers myndir þú óska þér?
Að fá að hrinda í framkvæmd einhverjum af þeim draumum sem mig dreymir um að
sviðsetja í Egg-leikhúsinu.D
HEIMSMYND 37