Heimsmynd - 01.06.1991, Page 41
LJÓSMYNDUN: Þögul rómantík
Ungur íslenskur
Ijósmyndari, Björg
Arnarsdóttir , hlaut
fyrir skömmu
heiðursútnefningu fyrir
þessar dramatísku og
magnþrungnu myndir í
samkeppni sem allir
Ijósmyndaskólar
Bandaríkjanna stóðu að.
Björg tók myndirnar í ys og þys banda-
rísku stórborgarinnar New York á dög-
unum. Átök á alþjóðavettvangi og
hvers kyns veraldarvafstur er víðs fjarri
áhorfandanum sem á svipstundu er
hrifinn úr hversdagsleika tíunda ára-
tugarins inn í rómantík þöglu mynd-
anna. En ekki er allt sem sýnist, mynd-
ir Bjargar eru flestar teknar við mjög
frumstæðar aðstæður, á yfirgefnum
byggingasvæðum, í almenningsgörðum
eða á götum stórborgarinnar. Hún not-
ar engin ljós eða kastara til að skapa
það kynngimagnaða andrúmsloft sem
ríkir í myndum hennar heldur aðeins
þá lýsingu sem er fyrir á hverjum stað.
Það er hins vegar við framköllun sem
hún töfrar fram þau sérstæðu tilbrigði
sem einkenna myndirnar. Björg, sem
leggur stund á ljósmyndun í The New
School of Visual Arts í New York, hef-
ur hlotið mikið lof fyrir verk sín og var
meðal annars valin úr hópi nemenda
skólans til að taka þátt í mikilli keppni
bandarískra ljósmyndaskóla þar sem
myndir hennar hlutu sérstaka heiðurs-
útnefningu.
Við myndatökurnar nýtur Björg
dyggs stuðnings tveggja landa sinna,
þeirra Önnu E. Borg leiklistarnema og
Helgu Bjartmars hárgreiðslumeistara.
Það er Anna E. sem er í hlutverki fyr-
irsætu á myndunum en þess má geta að
hún er af kunnum leikaraættum því
þær systur Anna og Þóra Borg eru afa-
systur hennar. Hún segist lengi hafa
gengið með leikhúsbakteríu í magan-
um en lét ekki verða af því fyrr en
haustið 1989 að drífa sig í leiklistar-
nám. Það var leiklistardeild New York
University sem varð fyrir valinu og
þaðan lýkur Anna námi næsta ár.
Það vekur alltaf eftirtekt þegar Is-
lendingar láta að sér kveða erlendis og
ekki hvað síst þegar þrjár ungar Iista-
konur sameina krafta sína eins og hér
hefur verið gert.D
HEIMSMYND 41