Heimsmynd - 01.06.1991, Side 46
FEGURÐ: Brúnt eöa hvítt?
Þrátt fyrir ítrekaðar
viðvaranir húðsjúk-
dómalcekna og ótvírœð-
ar niðurstöður rann-
sókna sem sýna að
geislar sólar eru húð-
inni hœttulegir virðast
vinsœldir sólbrúns hör-
unds lítið hafa dvínað.
Mánaðardvöl á sólar-
strönd er enn talin til
sérstaks munaðar og
slikar ferðir eru ekki síð-
ur vinsœlar nú en und-
anfarin ár. Snyrtivöruframleiðendur hafa brugðist skjótt við og eru teknir að fram-
leiða sólvarnarkrem sem draga verulega úr skaðsemi sólbaða og flýta fyrir pví að
húðin verði brún á lit.
Sólbrúnt hörund þykir eftirsóknarvert og meðan svo er er
ljóst að margir freistast til að stunda sólböð eða leita annarra
leiða til að verða sér úti um brúnan húðlit. Pess má þó sjá
merki að tískan hefur verið að breytast síðasta áratug. Það
þykir ekki lengur fallegt að vera svarbrúnn og margar stór-
stjörnur líkt og söngkonan Madonna hafa gert hvítt hörund að
vörumerki sínu. Þannig má segja að tískan sé að vissu leyti að
hverfa til fyrri tíðar því sem kunnugt er kepptust konur öldum
saman við að verja húð sína fyrir ágengni sólar. Þær báru
þykk smyrsl og púður á andlit og hendur og gengu jafnvel svo
langt að ganga með þykkt slör á heitum sólardögum, allt til að
forðast þann sólbrúna húðlit sem í dag þykir svo eftirsóknar-
verður. í upphafi tuttugustu aldar gjörbreyttist tískan, brúnn
húðlitur varð merki um hreysti og heilbrigði og svo er enn í
dag. Baðstrandamenning varð til og strendur fylltust af sól-
dýrkendum sem notuðu sumarfríið til að flatmaga í sólinni.
En Adam var ekki lengi í Paradís. Liturinn er fljótur að
hverfa eftir að heim er komið og daglegt amstur tekur við á
ný. Eftir eru aðeins ljúfar minningar um langa daga á sólar-
strönd.
SKAÐVALDUR
Það eina sem er varanlegt eru þær skemmdir sem sólin hef-
ur valdið á undirlögum húðarinnar og koma fram fyrr en
margan grunar sem ótímabærar hrukkur. Mikil sólböð geta
einnig valdið húðkrabbameini. En hvernig er hægt að bregð-
ast við þessum vanda? Svar snyrtivöruframleiðenda eru sól-
varnarkrem sem mörg hver innihalda efni sem flýta fyrir því
að húðin verði brún. Flest fyrirtæki hafa sett á markaðinn fjöl-
breytilegt úrval sólvarnarkrema sem taka mið af mismunandi
húðgerðum. Þannig má fá sólvörn sem nánast kemur í veg fyr-
ir að húðin taki nokkrum breytingum þótt dvalist sé í sterkri
sól klukkustundum saman. Það er þó nauðsynlegt að benda á
að þótt húðin taki lítinn sem engan lit, vegna þess hversu
sterk sólvörn hefur verið borin á hana, geta of langar setur í
sól verið skaðlegar og því ætti ætíð að stilla sólböðum í hóf.
Þá má fá sólvarnarkrem sem verja húðina en hleypa engu að
síður talsverðu magni af sólargeislum í gegn þannig að hún
verður fallega brún. Ecran Solaire Invisible frá Clarins er til
dæmis sólvarnarkrem sem ætlað er ljósri og viðkvæmri húð og
gerir það að verkum að húðin tekur smám saman lit.
SÓLARMEGIN
Þeim sem hins vegar kjósa að sleppa sólböðum alfarið má
benda á að hægt er að fá sérstök brúnkukrem sem innan
nokkurra stunda frá því þau eru borin á húðina framkalla
mjög eðlilegan og jafnan brúnan lit. Þessi litur er ólíkur hefð-
bundnum andlitsfarða að því leyti að hann er ekki hægt að
þvo af heldur máist af smátt og smátt líkt og sólbrúnka. Þessi
krem eru jafnframt flest þeim kostum búin að þau innihalda
vörn gegn skaðlegum sólargeislum líkt og Esprit De Soleil frá
Lancöme. Slík krem má nota samhliða sólböðum eða án
þeirra.
Það er hins vegar ljóst að lausn vandans felst fyrst og fremst
í því að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólar svo að
hægt sé að njóta útivistar og jafnvel takmarkaðra sólbaða án
þess að hljóta af varanlegan skaða. Þeim sem hafa komist á
bragðið með að liggja klukkustundum saman og vilja ekki fyr-
ir nokkurn mun missa af þeirri ánægju, má benda á tvennt
sem gott er að hafa í huga. í fyrsta lagi ber að forðast að liggja
í sólböðum langtímum saman, mun betra er að skipta degin-
um með því að vera til dæmis klukkustund í sólinni, þá aðra í
skugga og síðan koll af kolli. í öðru lagi ættu allir að forðast
sólina þann tíma sem hún er hæst á lofti og geislar hennar eru
hvað sterkastir. Til að koma í veg fyrir að húðin brenni er
vissara að fara hægt í sakirnar í fyrstu og nota mjög mikla sól-
arvörn á viðkvæmustu staði líkamans eins og andlitið og
bringu. Face-Zone Sun Block frá Clinique er glært og matt
sólvarnarkrem og sérlega vel til þess fallið að verja þau svæði
sem eru hvað viðkvæmust. Þegar síðan líða tekur á er óhætt
46 HEIMSMYND