Heimsmynd - 01.06.1991, Blaðsíða 55
Iþrjá áratugi hefur Mick Jagger verið andlit Rolling
Stones. Allan tímann hefur athygli fjölmiðla og almenn-
ings beinst að honum og þá sérlega einkalífi hans og
kvennamálum. Kynngimögnuð sviðsframkoma og sú
seiðandi ára sem umlykur hann hefur heillað konur kyn-
slóð fram af kynslóð. Ekkert bendir til þess að rokkgoð-
ið sem nálgast nú óðum fimmtugt sé að tapa neinu af
töfrum sínum. Hann er ennþá ómótstæðilegur.
Mick Jagger hefur verið í sviðsljósinu allar götur síðan
hann stofnaði Rolling Stones ásamt Keith Richards og
Brian Jones árið 1962. Leiðir þeirra Jaggers og Richards
lágu fyrst saman þegar þeir voru ellefu ára gamlir í skóla
í Dartford, Kent. Jagger rifjar upp þessi fyrstu kynni sín af
Richards þannig: „Ég spurði hann hvað hann vildi verða þeg-
ar hann yrði stór. Hann sagðist vilja
verða kúreki eins og Roy Rogers og
spila á gítar. Ég var ekkert sérlega
hrifinn af Roy Rogers en ég hafði
áhuga á þessu með gítarinn.“ Hljóm-
sveitin var uppgötvuð ári síðar, eða
árið 1963, og eftir það lá leiðin hratt
upp á við. Rolling Stones kepptu við
landa sína Bítiana um hylli almenn-
ings á sjöunda áratugnum en síðan
eru liðin rúm tuttugu ár. Bítlarnir
hafa fyrir löngu lagt upp laupana en
Stones eru enn að. I dag eru þeir
elsta og virtasta rokkhljómsveit
heims.
A upphafsárunum voru Jagger og
félagar álitnir persónugervingar hins
illa. Sóðalegur klæðnaðurinn, sítt
skítugt hárið og villt samkvæmi
hneyksluðu en vöktu jafnframt
áhuga og aðdáun. Árið 1971 skrifaði
tónlistargagnrýnandi The Los Angel-
es Times svo um hljómsveitina: „Þeir
eru ofbeldishneigðir, brenglaðir,
ógeðslegir, Ijótir og smekklausir.
Þeir eru hneyksli. Það er einmitt
þetta sem gerir þá svo góða.“
Hljómsveitarmeðlimirnir hafa breyst
mikið síðan þetta var skrifað, ekki
síst Mick Jagger. Hann hefur snúið
baki við eiturlyfjum og svalli en hef-
ur þess í stað tekið að stunda líkams-
rækt og heilbrigt líferni. Engu að
síður hefur honum tekist að halda
athygli umheimsins allan tímann
meðan stjörnur annarra listamanna
hafa risið og hnigið. Það efast eng-
inn um að slíkt úthald krefst bæði
mikilla hæfileika og greindar.
Mick Jagger er óumdeilanlega
heilinn á bak við Rolling Stones en
tilraunir hans til að segja skilið við
hljómsveitina og hasla sér völl án
hennar, ýmist sem sólósöngvari, rit-
höfundur eða leikari, hafa ekki gef-
ist eins vel. Svo virðist sem þessi
fimm manna eining, „leynifélagið"
eins og Bianca, fyrrverandi kona
Jaggers, kallaði hljómsveitina, sé
lykillinn að velgengninni. En Mick
Jagger hefur ekki gefist upp. Eftir tveggja áratuga hlé hefur
hann ákveðið að reyna fyrir sér í kvikmyndaleik á ný. I upp-
hafi áttunda áratugarins lék hann í tveimur kvikmyndum, Per-
formance sem Nicholas Roeg leikstýrði og myndinni Ned Kel-
ly undir leiðsögn Tony Richardson. Nú fer hann hins vegar
með eitt af aðalhlutverkunum í stórmyndinni Free-Jack ásamt
ick, “ segir hann
leið og hann heilsar með
handabandi og fær sér sæti.
Hann talar með mjög sterkum
breskum lireim og það er
greinilegt að margra ára sam-
búð með Texasmærinni Jerry
Hall hefur ekki haft áhrif á
málfar hans.
Anthony Hopkins, Emilio Estevez og þokkadísinni Rene
Russo. Það er Nýsjálendingurinn Geoff Murphy sem leikstýrir
en tökum á myndinni er nýlokið. Ron Shusett er höfundur
handrits og á hann m.a. heiðurinn af metsölumyndunum Al-
ien og Total Recall. Það er kvikmyndafyrirtækið Morgan
Creek Productions sem framleiðir myndina, spennumynd með
léttu ívafi sem á að gerast árið 2009.
í þetta sinn er Jagger ákveðinn í að láta ekkert fara úrskeið-
is. Hann hefur tekið hlutverk sitt föstum tökum því nú gerir
hann úrslitatilraun til að hasla sér völl utan rokkbransans.
Hann vill þó ekki viðurkenna að hann sé orðinn leiður á rokk-
stjörnuhlutverkinu en margt bendir til þess að sú sé reyndin.
Lífsstíll gamla Stones-meðlimsins er gjörbreyttur. Hann er
kominn fast að fimmtugu og er meðal þeirra allra elstu og
reyndustu í rokkheiminum. Hann
lifir orðið því sem næst hefðbundnu
fjölskyldulífi með eiginkonu sinni,
bandarísku fyrirsætunni Jerry Hall,
og börnum þeirra tveim, Elisabeth
Scarlett og James. Fjölmiðlar eru
eftir sem áður jafn áhugasamir um
allt sem tengist Jagger, en honum
hefur tekist að halda vissri fjarlægð
og viðhalda þannig hinum dularfulla
ljóma. Hann veitir til að mynda ekki
viðtöl nema á margra ára fresti og er
sjaldséður gestur í næturklúbbum
stórborganna. Það er helst að fjöl-
miðlar nái myndum af rokkgoðinu á
leið um flugvelli þegar hann er á
ferð ásamt fjölskyldunni milli fimm
heimila þeirra beggja vegna Atlants-
hafsins. Það var því lyginni líkast
þegar blaðamanni HEIMSMYND-
AR bauðst það einstaka tækifæri að
eiga viðtal við Jagger þar sem hann
var við kvikmyndatökur á myndinni
sem á að marka upphafið að endur-
komu hans á hvíta tjaldinu. Ráðgert
var að viðtalið færi fram í borginni
Atlanta í Georgíufylki í maíbyrjun,
þá daga sem kvikmyndatökum var
að ljúka.
Það rigndi og þrumuveður var í
aðsigi þegar vélin loks lenti á flug-
vellinum í Atlanta. Engu að síður
var svo heitt í veðri að þunn skyrta
var kappnógur klæðnaður þótt tekið
væri að líða á kvöld. Um tíu mínútna
akstur frá miðborginni taka við
endalausar götur með glæsilegum
einbýlishúsum í hefðbundnum plant-
ekrustíl. Húsin og garðarnir minna á
rómantískt andrúmsloft kvikmynd-
arinnar Gone with the Wind enda
ekki að furða því í þessu umhverfi
var myndinni einmitt valið sögusvið.
En Atlanta á sér margar hliðar, hér
var einnig að finna hið fullkomna
umhverfi framtíðarmyndarinnar
Free-Jack.
Morgunkyrrðin við ána Chatta-
hooche, sem rennur í gegnum borg-
ina miðja, er algjör og frægur hæga-
gangur íbúa í suðurríkjunum verður loks skiljanlegur. Atlanta
er eins og paradís á jörð á þessum árstíma en á sumrin getur
orðið svo heitt að ekki er vært nema inni í loftkældum húsum.
Dagurinn líður og það dregur að því að stóra stundin renni
upp.
Það var umsamið að ég mætti í anddyri Hyatt Regency-
HEIMSMYND 55