Heimsmynd - 01.06.1991, Qupperneq 56
hótelsins í Atlanta klukkan sjö þetta kvöld. Fyrir utan beið \
bíll frá kvikmyndafyrirtækinu sem flutti mig að stórri bygg-
ingu í hjarta borgarinnar þar sem kvikmyndatökurnar fóru
fram. Framhlið byggingarinnar var uppljómuð og öryggisverð-
ir voru við allar dyr. Gífurlegt magn af rafmagnssnúrum og
köplum lá um anddyrið og það fór ekki á milli mála að þetta
var rétti staðurinn. Fyrir utan var fjöldinn allur af stórum hvít-
um flutningabílum og spottakorn frá voru tugir hjólhýsa. Síð-
ar um kvöldið komst ég að því að þarna höfðu aðalleikararnir
ásamt leikstjóranum afdrep þar sem þeir hvfldust meðan hlé
var á kvikmyndatökum. Við dyrnar fékk ég hvítan límmiða,
einna líkastan þeim sem notaðir eru til að merkja sultu-
krukkur heima á íslandi, og gilti hann sem nokkurs konar að-
gangskort að kvikmyndaverinu þetta kvöld.
I þann mund sem mig bar að garði var verið að hefja tökur
á einu af lokaatriðum myndarinnar þar sem söguhetjan Alex
Furlong (Emilio Estevez) frelsar ástkonu sína Julie (Rene
Russo) úr klóm mannaveiðaranna en það er sjálfur Mick
Jagger sem leikur Vacendak, forsprakka þeirra. Ekkert bólaði
enn á aðalleikurunum en gangar og hol voru full af hávöxnum
og axlabreiðum mönnum klæddum í nokkurs konar brynjur
með hjálma á höfði og vélbyssur í hendi. Sumir voru í bláum
búningum en aðrir í svörtum. Pað setti að mér hroll þegar ég
var að skáskjóta mér milli þessara jötna til að komast út úr
auga kvikmyndavélarinnar þangað sem óhætt var fyrir áhorf-
endur að standa og fylgjast með því hvernig kvikmynd verður
til. Mér varð því ekki um sel þegar einn þeirra svartklæddu
sneri sér að mér og spurði mig hvað ég væri að gera þarna.
Hann var heldur illilegur á svip og alsettur örum og andlitslýt-
um eftir meðhöndlun förðunarmeistaranna og í hugsunarleysi
miðaði hann byssu sinni á mig meðan við spjölluðum saman.
Eg sagði honum að ég væri frá íslandi og væri komin til að
ræða við Mick Jagger. Við það fylltist hann áhuga, tók af sér
hjálminn og sagðist einmitt vera einn af mönnum Jaggers í
myndinni. I því atriði sem nú átti að fara að taka upp sagði
hann ætlunina vera að gera úrslitatilraun til að gera út af við
Emilio Estevez og fylgismenn hans.
Myndin hefst þegar hinn ungi og efnilegi kapp-
akstursbflstjóri Alex Furlong lendir í slysi og
bíll hans hendist út af kappakstursbrautinni á
fullri ferð. En nokkrum sekúndubrotum áður
en Furlong kastast í jörðina á ofsahraða er
hann hrifinn úr greipum dauðans og veit ekki
fyrr en hann rankar við sér árið 2009. Um-
hverfið er honum að vissu leyti kunnuglegt en
þó framandi. í ljós kemur að honum hefur ver-
ið rænt í þeim tilgangi að nema sál hans brott
og flytja hana yfir í líkama aldins auðkýfings,
McCandless sem Anthony Hopkins leikur. í
þessu framandi þjóðfélagi er á sveimi skuggalegur hópur
manna sem hefur það að atvinnu að fanga þá sem fluttir hafa
verið milli tímaskeiða líkt og Furlong en fyrir einhverja hand-
vömm hafa týnst í flutningnum. Þar kemur til kasta Jaggers
sem leikur forsprakka mannaveiðaranna en þeim er falið að
elta uppi hinn ógæfusama Furlong og koma honum fyrir katt-
arnef. Eina von Furlongs er hins vegar að ná fundum Julie,
fyrrum heitmeyjar sinnar sem nú er tuttugu árum eldri og
vinnur sem framkvæmdastjóri fyrirtækis McCandless, sem
framkvæmir hinn illræmda sálarflutning.
í miðjum samræðum okkar kemur til mín fullorðin kona,
blaðafulltrúi kvikmyndafyrirtækisins, og segir mér að nú sé
Mick Jagger tilbúinn að spjalla við mig. Hún býður mér að
fylgja sér niður í anddyri hússins á ný og fá mér sæti. Myndir
af Jagger sveittum á sviðinu þar sem hann syngur I can’t get
no. . . renna gegnum huga minn meðan ég bíð og það er ekki
laust við að það fari fiðringur um mig. Stuttu seinna kemur
hópur manna í dyrnar. Einn þeirra gengur í átt að mér og ég
horfi spennt á hann nálgast. Jú, það fer ekki á milli mála,
þarna er Mick Jagger kominn. Mér hafði verið sagt að honum
Kvennamál og hjónabönd Mick Jaggers hafa
alla tíð verið vinsælt umræðuefni fjölmiðla. 1.
Jagger ásamt Marlanne Faithfull, 2. Á ferð
með Chrissie Shrimpton. 3. Frá giftingu Jagg-
ers og Biöncu. 4. Nýleg mynd af Jagger og
dóttur hans Elisabeth. 5. Jerry og Jagger áður
en börnin tvö fæddust. 6. Brúðkaupið. 21.
nóvember á síðasta ári. 7. Jerry Hall og Brian
Ferry. 8. Fjölskyldan á heimili sínu. 9. Jagger
ásamt börnunum fjórum, Jade, Karis, El-
isabeth, James og eiginkonunni Jerry Hall.
10. Bianca Jagger.
56 HEIMSMYND