Heimsmynd - 01.06.1991, Blaðsíða 60
Pað leynir sér ekki að Jagger hefur ekki ætlað sér að taka á
hlutverki sínu í Free-Jack með neinum silkihönskum. Öllum
þeim sem ég talaði við bar saman um að hann hafi lagt sig
fram um að undirbúa sig sem best fyrir kvikmyndatökurnar.
Reyndar gekk leikstjórinn Geoff Murphy (Young Guns II)
svo langt að fullyrða að enginn hinna leikaranna hefði komið
jafn rækilega undirbúinn og hann. „Ég get ekki annað en
dáðst að fagmannlegum vinnubrögðum hans,“ sagði Murphy.
Jagger endurskrifaði að miklu leyti hlutverk sitt og breytti
ýmsum þáttum í fari Vacendaks í samvinnu við Ron Shusett,
framleiðanda myndarinnar og höfund handrits. „Pannig hafði
ég tækifæri til að gera úr honum manneskju sem mér sjálfum
féll betur við. Ég gat til dæmis gætt hann kímnigáfu sem var
ekki til staðar í upphaflega handritinu. Ég reyndi líka að
draga fram mannlegar hliðar Vacendaks, en það var erfitt
vegna þess að hlutverkin voru að miklu leyti skrifuð eins og
teiknimyndapersónur. Hetjan var dregin sterkum jákvæðum
dráttum en illmennið neikvæðum. í myndinni eru til staðar
miklar andstæður góðs og ills en ég reyndi að draga úr þessum
öfgum eins og mér var unnt og gera Vacendak öðruvísi og á
einhvern hátt frábrugðinn hinu hefðbundna illmenni.“
Er sú persóna sem þú hefur skapað á breiðtjaldinu lík
manninum að baki rokkstjörnunni Mick Jagger? „Já ég held
það,“ segir hann og hallar sér fram í sætinu. Ég halla mér
ósjálfrátt á móti honum og nýt þess að virða fyrir mér þetta
fræga andlit í svona miklu návígi. Jú, ég get ekki annað en
tekið undir álit hundruða þúsunda kvenna, varirnar á Jagger
eru engu líkar. Hann tekur eftir því að ég er að virða fyrir mér
munn hans svo ég lít upp í blágrá augun og reyni að einbeita
mér að samræðunum. „Ef til vill kemur kímnigáfan frá mér og
illskan að einhverju leyti líka,“ heldur hann áfram. „Pegar
maður fæst við hlutverk eins og þetta þá kemur alltaf dálítið
af manni sjálfum í gegn. Þetta á við um alla listsköpun, maður
kemst ekki hjá því að gefa af sjálfum sér. Þannig má segja að í
Vacendak sé hluti af mér. Maður er maður sjálfur og því getur
maður ekki breytt.“ Hann horfir síðan hvasst á mig og segir:
„En sá Mick Jagger sem þú þekkir úr fjölmiðlum er ekki hinn
raunverulegi Mick Jagger heldur einhver annar.“
Persónan að baki rokkstjörnunni Jagger er almenn-
ingi að mestu ókunn. í hugum flestra er hann
kraftmikill rokkari sem hefur að mestu dregið sig
út úr hringiðu samkvæmislífsins og heldur til á af-
skekktum heimilum fjölskyldunnar milli þess sem
hann semur tónlist og spilar með elstu og bestu
rokkhljómsveit heims. í Atlanta hitti ég íslenskan
hárgreiðslumeistara, Helgu Harðardóttur úr Kefla-
vík eða Helgu íslandi eins og hún kallar sig. Hún
hafði komist inn á gafl hjá þeim hjónum þegar
henni var falið að klippa hár Jaggers fyrir kvik-
myndatökurnar. Þau hittust í fyrsta sinn þegar
hann mætti á hárgreiðslustofuna hjá henni ásamt bílstjóra sín-
um og einkaritara. Helga var sein fyrir þannig að hún var í
miðjum klíðum þegar Jagger bar að garði. Hann kippti sér
hins vegar lítið upp við þetta, fékk sér sæti og beið þangað til
stóllinn losnaði. Helga var að vonum mjög taugaóstyrk en um
leið og þau byrjuðu að spjalla rauk allur kvíði út í veður og
vind. „Honum fannst nafnið skrítið og fór að spyrja mig um
ísland og hvort það væri ekki rétt að Eddukvæðin væru ís-
lensk,“ segir Helga.
Stuttu síðar þurfti á ný að snyrta hár hans, því eins og al-
kunna er þá verður að gæta þess vel að hár leikara í kvik-
myndum sé alltaf í sömu sídd. Þá varð það úr að Helga færi
þangað sem Jagger bjó ásamt fjölskyldu sinni í Atlanta. Húsið
var svo til alveg hulið trjám og stóð innst við eina af glæsileg-
ustu götum borgarinnar. Þetta var laugardagskvöld og lítið
um formlegheit hjá Jagger-fjölskyldunni. „Þegar ég kom inn
gekk ég fram hjá konu í gallabuxum og skyrtu með sítt hár án
þess að veita henni nokkra athygli. Það var ekki fyrr en hún
sneri sér að mér og kynnti sig sem Jerry Hall að ég uppgötvaði
60 HEIMSMYND
Hljómleikar sveitarinnar teljast alltaf tll
meiriháttar viðburða á tónlistarsviðinu og
enn hefur enginn slegið Jagger við hvað
sviðsframkomu varðar. Myndir 1, 2, 3 og
4. eru frá hljómleikaferðalaginu Steel
Wheels á síðasta ári. Myndir 5 og 6 eru
frá upphafsárum Rolling Stones. 7.1981,
ný ímynd. Hættir í sukki og farnir að
stunda heilbrigt líferni.