Heimsmynd - 01.06.1991, Qupperneq 70

Heimsmynd - 01.06.1991, Qupperneq 70
undan. Skilyrðin til kristniboðsstarfs í Sinhwa voru þá næsta góð ef miðað er við að styrjöld var í landinu. Jó- hann heimsótti söfnuðina, hélt biblíuvikur og fundi, veitti sakramentin og heimsótti marga kristna menn í sveit- unum. í maí 1944 fór ástandið í nágrannasveitunum mjög að versna. Hersveitir Japana gerðu innrás og fjölmargir kristniboðar urðu að yfirgefa stöðvar sínar. Hundruð þúsunda manna urðu öreigar á fáeinum vikum og flúðu í skelfingu til þeirra staða sem ennþá voru frjálsir. Komu þá margir flóttamenn til Sinhwa og jókst þá starfið á kristniboðsstöðinni því liðsinna þurfti mörgum flóttamönnum, ekki síst kristnum Kínverjum. En einnig komu aðrir kristniboðar, einkum Bandaríkjamenn, og þótti Jóhanni ánægjulegt að geta orðið þeim að liði. Biskup Norska kristniboðsfélagsins og féhirðir tóku sér einnig bústað á stöðinni í Sinhwa. Vörn landsmanna, sem jafnan áður hafði verið hreystileg á þessum slóðum, brást algerlega að þessu sinni. Hver borgin á fætur annarri féll í hendur Japana. Leit um tíma illa út fyrir starfssvæði þeirra hjóna, en í júlí- mánuði batnaði ástandið allmikið. Fóru þau þá í sumarfrí um mánaðartíma upp á Tienchao-fjallið, áðurnefnd- an sumardvalarstað sem Norska kristniboðsfélagið átti. Þaðan var mjög gott útsýni, og hægt var að fylgjast með bardögum á milli flugvéla Japana og Bandaríkjamanna. Við þær aðstæður réðu kristniboðarnir ráðum sínum. Astrid og Jóhann í Vatnaskógi sumarið 1947 er þau höfðu komið í stutta heimsókn til íslands. Ilnttínn „1*:« n i- iijíi!. í janúar 1945 barst skeyti til íslands um að Jóhann og Astrid hefðu orðið að yfirgefa kristniboðsstöðina í Sinhwa þó ekkert kæmi fram í hinu stuttorða skeyti um ástæður þess að þau höfðu skipt um starfsvettvang í Kína. Ástæðurnar voru hins vegar þær að japönsku herirnir höfðu komið stöðugt nær. Ástand- ið hjá Norska kristniboðsfélaginu var nú orðið þannig, að fimm af átta kristniboðsstöðv- um þess voru annaðhvort í höndum óvinanna eða svo nálægt víglínunni, að þeir gátu tek- ið þær hvenær sem þeim sýndist. En þó var ekki nema helmingur af landsvæðinu í óvina- höndum, því að mörg sveitahéruð losnuðu alveg við innrásina. En þar sem auðséð var, að ekki var betra í vændum, var ákveðið á fundi kristniboðanna á Tienchao-fjalli, að tíu kristniboðar skyldu fara úr landi flugleiðis. Tveir skyldu fara til höfuðborgarinnar Chungking, annar til að vinna að þýðingum og bókaútgáfu fyrir hina kínversku evan- gelísk-lúthersku kirkju, með kínverskum samverkamönnum, hinn skyldi kenna guðfræði við lútherskan prestaskóla, sem Bandaríkjamenn höfðu endurreist þar. Kom kennslan við prestaskólann í hlut Jóhanns. Þau Astrid og Jóhann fóru frá Sinhwa 14. september 1944 ásamt Gunnhildi, tæplega tveggja ára gamalli dóttur sinni. Höfðu þau þá starfað þar í þrjú ár. Hinir holdsveiku við holdsveikrahælið héldu þeim kveðjusamkomu og báðu þau að minnast sín. Þau létu síðan fatnað, rúmföt og eitthvað smávegis annað í poka, en skildu annars allt eftir. Bátur beið þeirra. Vinir þeirra kvöddu þau á bakkanum og lyftu Ijóstýrum sínum í myrkrinu. Segist Astrid aldrei munu gleyma þeirri sjón. För þeirra til Chungking tók þrjá mánuði. „Var sú för hin erfiðasta, sem ég hef farið á ævinni," sagði Jóhann í grein árið 1946. Lá leið þeirra meðal annars eftir Gula fljótinu. Mikið var af hringiðum í ánni, og einu sinni steypist báturinn þannig niður að Astrid seg- ist hafa haldið að dagar þeirra væru taldir, en bátnum skaut upp aftur. Ferð þessi var mjög óhugnanleg því oft mátti sjá lík fljóta í ánni báðum megin bátsins eftir loftárásir Japana. Japanir tóku bæði kirkjuna og spítalann þar sem þau hjónin höfðu starfað. Sjálf lentu þau Astrid og Jóhann þó aldrei í návígi við Japani beinlínis en sprengjur þeirra komu þó nærri þeim í nokkur skipti. Astrid minnist þess að eitt sinn sem oftar glumdu kirkjuklukkur til merkis um að flugvélar væru á leiðinni. Hún stóð þá úti í garði, og áður en varði voru flugvélarnar komnar yfir þau þannig að þau sáu þær varpa niður „eggjunum", eins og Kínverjar kölluðu sprengjurnar. Astrid tók til fótanna skelfingu lostin, en hvasst var og vindurinn bar sprengjurnar yfir ána svo að þær sprungu á bakkan- um hinum megin. Astrid segir að þá hafi eitthvað gerst innra með sér. Hún öðlaðist ró og losnaði alveg við allan ótta við stríðið. „Ég veit að það var Guð sem leit til okkar í náð sinni,“ segir hún. „Hörmungar stríðsins voru þannig að varla er hægt að lýsa þeim. Hermennirnir, sem urðu á vegi okkar þegar við fórum niður Gula fljótið voru svo illa haldnir að þeir lágu á vegarbrúninni og nöguðu grasrótina. Öll árin okkar í Kína var stríð, og stríðið kom þann- ig svo nálægt okkur. Kólera geisaði, þó ekki veiktumst við af henni,“ segir Astrid. „En árið 1946 veiktist Jóhann af Asíu-sýki, sem var svipuð kóleru og þornaði allur upp.“ Þetta var um það leyti sem þau höfðu verið að búa sig til brottfarar frá Chungking. Það voru stopular ferðir til Hong Kong, og urðu þau að sleppa flugvél vegna veikinda Jó- hanns. Hann lá lengi með mikinn hita. Norski sendiherrann í Chungking hafði dáið úr þessari veiki og var lengi óttast um líf Jóhanns. En hann náði sér um síðir „og við fengum far svolítið seinna,“ segir Astrid. Sjálf veiktist hún einnig í Kína, fékk bæði blóðkreppusótt og malaríu. Mii&lxm&il/nnHnln m PUnniil#inn * Chungking tók Jóhann við kennslu í guðfræði við yllOTrCCOIKcflllSlcl I miUViyKllly Lutheran Theological Seminary, eins og ákveðið hafði verið á fundi kristniboðanna á Tienchao-fjalli, en skóli þessi sá um menntun presta fyrir margar lúthersk- ar kirkjur í Kína. Skólinn hafði upphaflega verið skammt frá Hankow en var nú „í útlegð“ í Chungking, sakir styrjaldarinnar við Japani. En Chungking var höfuðborg Kínaveldis á stríðsárunum. Jóhanni þótti sárt að verða að yfirgefa stöðina í Sinhwa en vissi að tækifærin yrðu ekki færri er til höfuðstaðarins kæmi. „Þarna beið mín ánægjulegasta starf sem hugsast getur,“ skrifar Jóhann. „Að útskýra Heilaga Ritningu og kenna meginatriði framhald á bls. 89 70 HEIMSMYND
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.