Heimsmynd - 01.06.1991, Page 74

Heimsmynd - 01.06.1991, Page 74
Valgerður Briem og Ólafur Oddsson Ijósmyndarl ásamt börnum sínum. í efrl röð eru Þrúður hattasaumakona, Haraldur bankaritari og Ingibjörg símadama. Börnin í neðri röð eru: Ragnhildur teiknari og kennari, Guðrún skrifstofumaður, Oddur læknir (faðir Davíðs forsætisráðherra) og Valgerð- ur. Oddur Ólafsson læknir, faðir Davíðs Oddssonar. Valdimar Briem, vígslublskup og sáimaskáld. Afkomendur Odds Ólafssonar læknis. F.v.: Ólafur Oddsson menntaskóla- kennari, Oddný Ingimarsdóttir, Vala Ingimarsdóttir, Vala Agnes Oddsdóttir fulltrúi, Guðrún Pálína Ólafsdóttir, Oddur Ingimarsson, Runólfur Oddsson verslunarmaður, Geir Andri Jóel Legan (sonur Völu Agnesar), Lilly Val- gerður Oddsdóttir fulltrúi, Helga Guðrún Ólafsdóttir, Davíð Oddsson for- sætisráðherra, Davíð Ólafur Ingimarsson og Þorsteinn Davíðsson. Yngri prestshjónin á Stóra-Núpi ásamt börnum sínum. F.v.: Ólafur Briem, síðar cand. mag., Katrín Helgadóttir frá Birtingaholti, Valdimar Briem, lést ungur, Jóhann Briem, síðar listmálari, og sr. Ólafur Briem. ÆTTFAÐIRINN - EINVELDISSINNINN Á GRUND Þessi volduga ætt, sem ennþá lætur til sín taka, er rakin til Gunnlaugs Briein (1773-1834), sýslumanns Eyjafjarðarsýslu, og konu hans, Valgerðar Árnadóttur Briem (1779-1872). Gunnlaugur var fæddur á Brjánslæk á Barðaströnd, sem þá var einnig stundum kallaður Briamslækur, og tók hann sér ættarnafn af nafni staðarins og kallaði sig Briem. Aðeins fimmtán ára gamall fékk hann að fara utan til náms í Kaup- mannahöfn, settist í Listaháskólann þar og lauk prófi 1795. Það átti þó ekki fyrir Gunnlaugi að liggja að gera listiðkun að lífsstarfi þó að til séu munir, skornir í tré, sem eru eignaðir honum. Gunnlaugur sneri sér að laganámi í Kaupmannahöfn. Hann kom heim 1799 og var árið 1805 skipaður sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu, 32 ára gamall, og gegndi því embætti til dauðadags. Þau hjón bjuggu lengst af á höfuðbýlinu Grund í Eyjafirði. Það sem helst heldur uppi nafni Gunnlaugs á Grund í Islandssögunni er fjandskapur hans við Jörund hundadaga- konung sumarið 1809. Gunnlaugi Briem, ættföður Briemsættarinnar, er lýst sem stoltum, siðavöndum og opinskáum manni, jafnvel dramblát- um, ósveigjanlegum og nokkuð sérlunduðum. Hann var ein- veldissinni í stjórnmálaskoðunum eins og títt var um embætt- ismenn í þann tíð, maður aga og reglu. Frelsishræringar 19. aldar létu hann ósnortinn og honum stóð stuggur af frönsku stjórnarbyltingunni og þeim hugmyndum og óróleika sem fylgdu í kjölfarið. Synir hans sumir voru hins vegar menn hins nýja tíma, fylgismenn Jóns Sigurðssonar og frelsishugmynda hans. Einn þeirra hafnaði í París og er talinn hafa fallið þar í byltingartilraun. Valgerður, kona Gunnlaugs, naut virðingar og vinsælda í sínu héraði og fékk orð fyrir lítillæti og líknarhug til fátækra. Hún var jafnan kölluð „frúin á Grund“. EINN SONURINN BYLTINGARSINNI í PARÍS Börn þeirra Valgerðar og Gunnlaugs urðu tíu talsins en sjö þeirra komust upp. Þar af ílentust þrjú erlendis og eru ættir af þeim komnar í Danmörku og Þýskalandi. Elsta barn Gunnlaugs og Valgerðar var Jóhann Gunnlaugur Briem (1801-1880), prestur í Gunslev á Falstri. Næstelstur var Gunnlaugur Briem (1802-1840) trésmiður. Hann ílentist í út- löndum og gerðist heimsmaður. Síðustu æviár sín var hann í París og er mikil hula yfir lífi hans. Samkvæmt heimildum, sem nýlega eru komnar fram í dagsljósið, virðist hann hafa fallið í tilræði við Lúðvík Filippus Frakkakonung. Ekki er vit- að til þess að hann hafi átt afkomendur. Þriðja í röðinni var svo Jóhanna Briem (1805-1886), sem kölluð var hin fagra. Hún fór ung til Danmerkur, svo sem bræður hennar eldri tveir, og átti ekki afturkvæmt heim. Dönsk hjón tóku hana að sér og fór hún með þeim til Rómar árið 1826 og dvaldi þar um árs skeið. Skrifaði hún ferðasögu sína sem birtist í Sunnan- póstinum 1838 og mun það vera fyrsta prentaða ritgerðin eftir íslenska konu. I suðurferðinni kynntist hún þýskum mennta- manni sem varð síðar eiginmaður hennar. Hann hét Carl Wil- helm Schtitz og var doktor í málvísindum. Er af þeim fjölmenn ætt í Þýskalandi. TIMBURMEISTARINN Á GRUND Ólafur Eggert Briem (1808-1859) var fjórða barnið frá Grund og elstur af börnunum sem ekki staðfestust erlendis. Hann fór þó til Kaupmannahafnar til trésmíðanáms 16 ára gamall og var þar í sex ár. Heimkominn settist hann að á Grund og var kallaður timburmeistari og bóndi. Ólafur var yf- irsmiður við fjölmargar kirkjur sem reistar voru í Eyjafirði og víðar á hans tíma. Hann var lengi hreppstjóri og annar þjóð- fundarmaður Eyfirðinga 1851, stuðningsmaður Jóns Sigurðs- sonar. Kona hans var Dómhildur Þorsteinsdóttir og eignuðust þau níu börn en ættir eru af fjórum þeirra komnar og er þeirra getið hér. Þar er margt þekktra manna, sem nú verður greint frá, en Davíð Oddsson er meðal þeirra. 1. Elsta dóttir Ólafs og Dómhildar var Sigríður Briem (1839- 74 HEIMSMYND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.