Heimsmynd - 01.06.1991, Side 78

Heimsmynd - 01.06.1991, Side 78
Álfheiður Helgadóttir Briem, ekkja Páls Briem, ásamt börnum og tengda- börnum. í efri röð eru Theódór B. Líndal prófessor, Eggert P. Briem bók- sali, Sigríður Skúladóttir, kona Eggerts, Óli Vestmann Einarsson, fóstur- sonur, Doris Briem, kona Helga, og Helgi P. Briem ambassador. í neðri röð eru Friede P. Briem framkvæmdastjóri, Þórhildur Briem Líndal, Álf- heiður, Þórdís Briem bókavörður og Jóna Einarsdóttir Vestmann. Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri var einhver fyrirferðar- mesti íslendingurinn um alda- mót. Tjarnargatan bar svip fínasta hverfisins í Reykjavík og þar bjó Briemsættin nær því í hverju húsi. Hún varð valdamesta ættin á heimastjórnartímanum og húsin eru sýnilegt tákn um þann stórhug, bjartsýni og glæsileika sem fylgdi fyrstu árum heimastjórnar í Reykjavík. Fremst er húsið nr. 28. Þar bjó Eggert Briem skrifstofustjóri, síðar hæstaréttardómari, þá er nr. 26, þar bjó Jón Helgason prestaskólakennari, síðar biskup, mágur Páls Briem, þá nr. 24, hús Álfheiðar Briem, ekkju Páls, þá nr. 22 þar sem Klemens Jónsson landritari bjó, nr. 20 sem er hús Sigurðar Briem póst- meistara og loks hús Björns Ólafssonar augnlæknis sem var svili Sig- urðar. Yfir þessari röð trónaði svo Ráðherrabústaðurinn uppi í brekkunni þar sem sjálfur ráðherrann, Hannes Hafstein af Briemsætt, bjó. úr Bessastaðaskóla og hélt síðan til Kaupmannahafnar eins og þau systkinin flest. Þaðan lauk hann lagaprófi og kom síðan heim. Kvæntist hann þá Ingibjörgu Eiríksdóttur. Hann var sýslumaður Eyfirðinga 1848 til 1861 og síðan Skagfirðinga 1861 til 1884. Bjuggu þau á Reynistað í Skagafirði frá 1872 en dvöldust síðustu ár sín í Reykjavík. Eggert Briem var fyrir- mannlegur, eins og sönnum sýslumanni sæmdi, og var á efri árum með mikið hvítt hár og skegg. Eggert var framfaramað- ur og sat þjóðfundinn 1851 sem stuðningsmaður Jóns forseta. Þau Ingibjörg eignuðust hvorki færri né fleiri en nítján börn í hjónabandi sínu en sex af þeim létust á barnsaldri. Hin urðu flest meðal kunnustu Islendinga og má segja að þau hafi myndað kjarnann í völdum Briemsættarinnar á Islandi í upp- hafi þessarar aldar ásamt þeim Tryggva Gunnarssyni og Hannesi Hafstein. Verða nú talin upp þau þekktustu: 1. Eiríkur Briem (1846-1929) guðfræðingur, prestaskóla- kennari í Reykjavík, var elstur. Hann þótti einhver mesti reikningshaus landsins um sína daga og eftir hann liggur með- al annars kennslubók í reikningi sem lengi var notuð. Honum var veitt embætti við Prestaskólann árið 1880 og gegndi því í 30 ár. Kona hans var Guðrún Gísladóttir og bjuggu þau í húsi sínu að Bókhlöðustíg 2 sem enn stendur. Eiríkur var áhuga- samur um stjórnmál eins og þeir bræður margir og sat á þingi fyrir Húnvetninga 1880 til 1891 og síðan sem konungskjörinn 1901 til 1915. A hann hlóðust fjölmörg trúnaðarstörf, einkum í sambandi við reiknings- og bókhaldsskil og var hann til dæmis lengi gæslustjóri Landsbankans. Um aldamótin keypti hann Viðey til þess að sonur hans gæti hafið þar búskap og dvaldi hann mikið í eynni eftir það. Var það táknrænt að hin nýja valdaætt keypti þannig höfuðból Stephensensættarinnar. Eina barn Eiríks, sem ættir eru frá, er: a. Eggert Briem (1879-1939). Hann nam búvísindi í Dan- mörku og hóf síðan stórbúskap í Viðey um 1903 og setti meðal annars á fót fyrstu mjólkurbúðina í Reykjavík til að koma mjólk sinni á markað. Hann var formaður Búnaðarfélags Is- lands um skeið. Kona hans var Katrín, dóttir Péturs Thor- steinssonar, athafnamannsins mikla frá Bíldudal, og mun sú staðreynd hafa stuðlað að því að höfuðstöðvar Milljónafélags- ins svokallaða urðu í Viðey. Frá þeim eru margir þekktir af- komendur. Meðal barna Eggerts og Katrínar voru Sverrir Briem (1905-1974), stórkaupmaður í Reykjavík (hans sonur er Eggert Briem (f. 1941), prófessor í stærðfræði), Gyða Briem (1908-1983), sem um skeið var gift Héðni Valdimarssyni al- þingismanni, Guðrún Briem (1914-1981), sem var fyrri kona Péturs Benediktssonar sendiherra (sjá Engeyjarætt, HEIMS- MYND 2. tbl. 1989), Eiríkur Briem (1915-1989), framkvæmda- stjóri Landsvirkjunar, og Pétur J. Thorsteinsson (f. 1917) am- bassador. 2. Gunnlaugur Briem (1847-1897), verslunarstjóri og alþing- ismaður í Hafnarfirði, var annað barn sýslumannshjónanna á Reynistað. Kona hans var Frederike Claessen. Sonur þeirra: a. Ólafur Jóhann Briem (1884-1944), sem var framkvæmda- stjóri hjá ýmsum fyrirtækjum, lengst þó skrifstofustjóri Sam- bands íslenskra fiskframleiðenda (SÍF). Kona hans var frænka hans, Anna Valgerða Claessen. Meðal barna þeirra eru Mar- grét Þuríður Briem (f. 1912), móðir Ólafs Egilssonar (f. 1936), sendiherra í Moskvu, og Valgarð Briem (f. 1925), hæstaréttar- lögmaður í Reykjavík. TVEIR FORSÆTISRÁÐHERRAR 3. Kristín Briem (1849-1881), húsfreyja á Sauðárkróki. Mað- ur hennar var Valgard van Deurs Claessen kaupmaður, síðar landsféhirðir í Reykjavík. Kristín var meðal annars frumkvöð- ull að stofnun kvennaskóla að Ási í Hegranesi en lést um ald- ur fram. Af henni er mikill fjöldi þekktra afkomenda. Börn hennar: a. Eggert Claessen (1877-1950), hæstaréttarlögmaður í Reykjavík. Hann var einn af umsvifamestu lögfræðingum í Reykjavík og keypti Skildinganes í Skerjafirði þar sem hann bjó á býli sínu sem hann kallaði Reynistað. Hann var banka- 78 HEIMSMYND
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.