Heimsmynd - 01.06.1991, Blaðsíða 81
Wathnesystur, Soffía, Anna Bergljót og Þórunn,
kaupsýslukonur í New York, eru afkomendur Lauru Hafstein,
systur Hannesar.
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, áður borgarlögmaður
(meðal barna hans eru Þórhildur Líndal (f. 1951), deildarstjóri
í félagsmálaráðuneytinu, gift Eiríki Tómassyni hæstaréttarlög-
manni, og Björn Theódór Líndal (f. 1956), aðstoðarbanka-
stjóri Landsbankans). Yngri sonur Þórhildar og Theódórs er
Sigurður Líndal (f. 1931), prófessor í lögum.
b. Helgi P. Briem (1902-1981) doktor, sendiherra í Svíþjóð,
Þýskalandi og víðar. Doktorsritgerð hans heitir Sjálfstœði ís-
lands 1809 og fjallar um byltingu Jörundar hundadagakonungs
sem Gunnlaugur, langafi hans á Grund, var svo andvígur.
7. Elín Briem (1856-1937) var sjöunda barn sýslumannshjón-
anna á Reynistað sem hér verður nefnt til sögu. Hún var með-
al merkustu kvenna og stýrði kvennaskólum í Húnaþingi, síð-
ast á Blönduósi. Frægust er hún vafalaust fyrir rit sitt Kvenna-
frœðarann, kennslubók í heimilishaldi sem kom út í mörgum
útgáfum.
8. Sigurður Briem (1860-1952) hagfræðingur, póstmeistari
og síðar póstmálastjóri í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Isleifs-
dóttur. Meðal barna þeirra:
a. Gunnlaugur Briem (1901-1971), póst- og símamálastjóri,
kvæntur Halldóru Margréti Guðjohnsen.
b. Ása Briem (1902-1947), kona Jóns Kjartanssonar sýslu-
manns. Hann var lengi ritstjóri Morgunblaðsins og alþingis-
maður V-Skaftfellinga fyrir Sjálfstæðisflokkinn í mörg ár.
9. Eggert Ólafur Briem (1867-1936) var níunda barn hjón-
anna á Reynistað sem hér er getið. Hann var sýslumaður
Skagfirðinga 1897 til 1904 en gerðist þá skrifstofustjóri í
Stjórnarráðinu. Síðar varð hann yfirdómari í Landsyfirréttin-
um en einn af fyrstu hæstaréttardómurum þegar Hæstiréttur
var stofnaður. Hann var kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur en
meðal barna þeirra voru:
a. Gunnlaugur Briem (f. 1903), ráðuneytisstjóri í atvinnu-
málaráðuneytinu og síðar landbúnaðarráðuneytinu. Kona
hans var Þóra Garðarsdóttir (sjá ætt Garðars Gíslasonar,
HEIMSMYND 3. tbl. 1989).
10. Vilhjálmur Briem (1869-1959), sóknarprestur á Staðar-
stað, síðar forstjóri Söfnunarsjóðs íslands í Reykjavík, var eitt
barnanna frá Reynistað. Meðal barna hans:
a. Gunnlaug Briem (1902-1970), kaupkona í Reykjavík
(hattabúð) og síðar forstjóri Söfnunarsjóðs íslands, eiginkona
Bjarna Guðmundssonar, deildarstjóra í utanríkisráðuneytinu
og blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar (meðal barna þeirra er
Hildur Bjarnadóttir (f. 1938), fréttamaður hjá Ríkisútvarp-
inu).
11. Jóhanna Briem (1872-1962) var eitt barna Eggerts sýslu-
manns á Reynistað. Hún giftist Einari Pálssyni, presti í Reyk-
holti. Meðal barna þeirra:
a. Ingibjörg Einarsdóttir (1895-1977), handavinnukennari og
kaupkona í Reykjavík, gift Eyjólfi Eyfells listmálara (meðal
barna þeirra Einar Eyfells (f. 1922) verkfræðingur og Jóhann
Eyfells (f. 1923), arkitekt og myndhöggvari í Bandaríkjunum).
b. Valgerður Einarsdóttir (1901-1988), kona Stefáns Schev-
ing Olafssonar, bónda í Kalmanstungu í Borgarfirði. Meðal
barna þeirra er Kalman Stefánsson (f. 1935), bóndi í Kalmans-
tungu og einn af forustumönnum sjálfstæðismanna í héraði.
c. Páll Björn Einarsson (1905-1980), vélfræðingur og for-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Gyðu Sigurðardóttur (meðal barna
þeirra er Margrét Sigríður Pálsdóttir (f. 1941), kona Magnúsar
Gústafssonar, forstjóra Coldwater í Bandaríkjunum).
TRYGGVI GUNNARSSON OG
HANNES HAFSTEIN
Jóhanna Kristjana Briem (1813-1878) var eitt barna þeirra
Gunnlaugs og Valgerðar á Grund sem Briemsættin er talin
frá. Hún giftist séra Gunnari Gunnarssyni í Laufási í Eyjafirði
sem var röskum 30 árum eldri en hún. Eignuðust þau fimm
börn. Eftir að hann lést giftist hún séra Þorsteini Pálssyni,
presti á Hálsi, en þeim varð ekki barna auðið. Meðal barna
Jóhönnu og Gunnars voru:
1. Tryggvi Gunnarsson (1835-1917), bankastjóri Landsbank-
ans og alþingismaður. Hér er kominn einhver fyrirferðarmesti
laukur Briemsættarinnar um aldamótin. Tryggvi lærði fyrst
trésmíðar hjá Olafi Briem, móðurbróður sínum, á Grund og
starfaði við þær. Hann gerðist síðan bóndi á Hallgilsstöðum
en varð einn aðalstofnandi Gránufélagsins og kaupstjóri þess.
Gegndi hann starfinu í 20 ár og bjó þá lengst af í Kaupmanna-
höfn og varð þar meðal annars mjög handgenginn Jóni Sig-
urðssyni forseta á síðustu árum hans. Hann kom heim 1893 til
að gerast bankastjóri Landsbankans og eftir það varð hann
framhald á bls. 92
HEIMSMYND 81