Heimsmynd - 01.06.1991, Side 95
Ég geng út í hlýja aprílnóttina í At-
lanta og það síðasta sem ég sé áður en ég
ek í burtu í leigubíl er hópur hávaxinna
svart- og bláklæddra leikara sem standa í
röðum fyrir utan McDonalds og eru að
fá sér í svanginn.D
Parið í leikhúsinu. . .
framhald af bls. 26
heillynd en haldin þráhyggju. Hún varð
ófrísk eftir að hann er orðinn amtmaður
og í minni útgáfu deyr barnið. I>á stefnir
hún honum og þá niðurlægingu fyrirgef-
ur hann henni aldrei. Þó hef ég aldrei
ásakað hann. Ég skildi hann svo vel eins
og flestar konur sem sáu verkið. Þær
þekktu allar þennan mann. Hins vegar
ögraði hann karlkyns áhorfendum. Þeir
töldu flestir að hann hefði átt að bregð-
ast öðru vísi við. Þeim fannst ég mörgum
draga upp mynd af Níels Fuhrman sem
hálfgerðum aumingja. Þá hafði ég samúð
með dóttur frú Hólm, sem var mjög
barnaleg. Frú Hólm var hins vegar hold-
tekja valdagræðgi og óheilinda."
Hún lýsir leikritinu sem svartsýnu
verki. „Hún deyr. Hann deyr. Hvorugt
fyrirgefur og engum er umbunað. Óham-
ingja þeirra hefur áhrif á alla í kringum
þau og þannig skildi Appólónía við mig.
Hún hefur þó verið meira til friðs en áð-
ur. Ég trúi á heilbrigða ást,“ bætir hún
við, „jákvæða hluti sem fólk getur stjórn-
að sjálft. Blind ástríða er bölvaldur,“
segir hún. „Astin er eins og hitasótt.
Maður lendir í þoku og þegar henni létt-
ir sér maður hvort maður hefur villst. “
Fyrsta leikrit Þórunnar var um Guð-
rúnu Ósvífursdóttur og var sýnt í Iðnó
1983 með Ragnheiði Arnarsdóttur í titil-
hlutverki. „A milli Guðrúnar og Kjart-
ans var sterk ástríða en stöðug valdabar-
átta. Hún var sterk kona sem stjórnaði
sínu lífi en aldrei hamingjusöm. Hún var
í stöðugri örlagaglímu og saga hennar
sýnir hve stutt er milli erótíkur og valda.
Enda er hin fullkomna harmónía efalaus
og ósexí. Lífið gengur út á að þekkja
sjálfan sig og þora að kannast við sig.“
Stefán fékk tilboð um að setja verk
Birgis Sigurðssonar, Dagur Vonar, upp í
Los Angeles nú í maí með bandarískum
leikurum en varð að hafna því sökum
anna í Þjóðleikhúsinu. Eftir að hann
hætti sem leikstjóri hjá LR1987 tók hann
að sér að leikstýra víða um lönd. Hann
fékk tækifæri til að setja Dag Vonar á
svið í Los Angeles til kynningar. „Ég
vann stíft í tvær vikur með amerískum
leikurum án leikmyndar og leikhúsið,
sem er hið annað stærsta í Los Angeles,
ákvað að kaupa verkið til sýninga. Það
var valið úr hópi ellefu verka. Þó ég geti
ekki orðið við þeirri bón að leikstýra því
nú verður það samt sett á fjalirnar. Það
var ánægjuleg reynsla að vinna með
bandarískum leikurum. Þeirra á meðal
Veitingahúsið FÓGETINN er opið daglega
frá kl. 18-01
Ljúfengir réttir bomir fram jafnt
af matseðli dagsins sem af fjölbreyttum
sérréttaseðli. Vönduð og lipur þjónusta.
Lifandi tónlist 5 kvöld vikunnar.
Kreditkortaþjónusta.
Upplýsingar og borðapantanir í síma: 16323.
Aðalstræti 10 - 101 Reykjavík
VEITINGAHÚSIÐ FÓGETINN - SVO SANNARLEGA
í HJARTA REYKJAVÍKUR!
HEIMSMYND 95